Lög alþingismanna?

Afhverju er fólk að fjargviðarast yfir að farið sé að fundarsköpum á Alþingi? Og það eru ekki rök á Alþingi að einhver hafi mátt eitthvað einhverntímann, það er barnalegt.

Sigmundur Davíð var í alvöru að lesa uppúr Fréttablaðinu í ræðustól, og það í dagskrárlið sem heitir fundarstjórn forseta, þá nottla ber forseta að stjórna fundinum og þagga niður í þessu gasprara og fulltrúa fasteignasala, bílasala og myntkörfulánþega þessa lands.

Sigmundur getur svo bara lesið úr blaðinu á kaffistofunni og tuðað eitthvað heima hjá sér einsog við hin sem ekkert höfum um málin að segja.

Þetta verður eitt mesta baráttumál sem framsókn hefur staðið í í mörg ár og nú gleðst ég persónulega á meðan öll þeirra orka fer í að mótmæla þessu svkalega óréttlæti.

Gamli þáttarstjórnandinn ætti bara að fá útsendingarsleða til að lækka í ræðumönnum, svona einsog í gamla daga þega hún var skífuþeytir og útvarpskona.

Grienilegt að Sigmundarspangól(ámáttlegt ýlfur) er ekki óskalög Forseta Alþingis.

 


mbl.is Óásættanleg framkoma forsetans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband