Karlmenn allra landa.....

Ég sé að karlmenn eru voða mikið að  missa sig af hneykslun yfir þessu, það er afar einfalt að kenna trúarbrögðum um hegðun karlmanna gagnvart konum ef okkur líður betur.

Það er ekki guði að kennna að ógeðslegir karlmenn níðast á konum og jafnvel börnum í ljósi einhversskonar helgissiða eða fórnar, takið eftir að þetta eru reglur karlmanna, alveg óháð hvort um er að ræða Inka, kaþólikka, gyðinga, mótmælendur eða guðleysingja í fyrrum sovétríkjunum.

Þetta er ógeðslegt mál en að nota það til að færa rök fyrir eigin skoðunum er bara frekar glötuð leið til að upphefja eigið ágæti, tala nú ekki um þegar það eru frumstæðar hvatir karlmanna sem stjórna för, ekki neinn guð.

Hugsið ykkur síðustu stundir þessara stúlku, fyrst gékkst hún við vilja einhverra dengja og fékk svo að finna fyrir vilja sinna eiginn feðra og bræðra.

Gott að hún er hjá guði núna, væntanlega kom hann henni skemmtilega á óvart.


mbl.is 16 ára stúlka grafin lifandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll.

Misgjörðir fólks eru hvorki á ábyrgð trúar né frumstæðra hvata karlmanna, heldur eru þær á ábyrgð þeirra sem þær drýgja.

Matthías (IP-tala skráð) 6.2.2010 kl. 13:23

2 Smámynd: Einhver Ágúst

Vissulega Matthías, góður punktur.....en við strákarnir erum nú tölfræðilega heldur duglegir við ofbeldið, með og án guðs.

Einhver Ágúst, 6.2.2010 kl. 19:28

3 identicon

Nei, auðvitað hefur þetta ekkert með islam að gera, það er alltaf "í nafni" þess sem þeir trúa á, aldrei "vegna" þess. Trúarkennisetningar hafa raunveruleg áhrif á hegðun fólks, að halda öðru fram er afneitun á hinu augljósa.

Arngrímur (IP-tala skráð) 6.2.2010 kl. 21:02

4 Smámynd: Einhver Ágúst

Hið augljósa er að manneskjan er ofbeldisfull og stjórnsöm, hvað svo sem hún notar til afsökunar eða réttlætingar.

Það er kallað að sjá ekki skóginn fyrir trjánum þegar maður einblínir á hlutina á þennann hátt, svona meðferð á fólki er ekki neitt frekar bundin við Islam eða Austurríki frekar en miðríki bandaríkjanna.

Köllum bara spaða spaða.

Einhver Ágúst, 6.2.2010 kl. 21:26

5 identicon

En þetta margfalt margfalt algengara meðal múslima, þótt það finnist einhver einstök dæmi annars staðar breytir engu, þessi heiðursmorð og heiðursofbeldi virðist renna eins og rauður þráður í gegnum mörg múslimasamfélög.

Arngrímur (IP-tala skráð) 6.2.2010 kl. 21:34

6 Smámynd: Einhver Ágúst

Nú bjó ég í nokkur ár í Noregi, þar var sama umræða alveg þangaðtil 5 norskir hermenn voru búnir að drepa konur sínar og jafnvel börn á undir 2 árum, þá var minna rætt um þetta á eftir og norskir hermenn látnir skila inn örygginu úr byssunum sínum.

Ég held Arngrímur að þú hafir frekar litlar upplýsingar á bakvið þessi orð þín og skoðun.

Einhver Ágúst, 7.2.2010 kl. 00:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband