Kirkjusandsfangelsi?

 

 Nýtt fangelsi að Kirkjusandi? Takið eftir hve byggingarstíllinn fellur að Litla Hrauni

 

Ég birti þessa færslu í síðasta skipti þarsem hún smellpassar við viðfangsefnið, og líka aðeins af því að ég hef verið svo svekktur yfir hvað hún fær lítil viðbrögð.

Það er ófremdarástand í fangelsismálum landsins, einsog fram kemur í greininni eru menn ekki teknir til afplánunar í lengstu lög, margir sleppa alltof vel vegna þessa en aðrir verða fyrir alverlegri lífsskerðingu vegna biðarinnar efitr plássi einsog bent er á í greininni.

Við höfum þyngt dóma og hert refsiramma án þess að auka pláss í fangelsum, á þetta eykst svo góður árangur lögreglunnar í "stríðinu" gegn eiturlyfjum, þetta hefur og er að hafa slæmar afleiðingar, hópurinn stækkar hratt og fangelsin stækka ekki, auk þess að enn er starfrækt fangelsi á Skólavörðustíg sem helst er til þess fallið að verða safn eða einhversskona túristagildra frekar en mannsæmandi fangelsi.

Já tala nú ekki um þegar verið er að handtaka menn í fangelsunum sjálfum einsog gerðist fyrr á þessu ári. 

Já þetta er algjört grín, en staðreyndin er nú sú að það er bara ekkert pláss í fangelsum og lööööng bið eftir afplánun, því miður veldur þetta því að menn ganga lausir og afleiðingar eru afar vægar við afbrotum sem þessum. Gæsluvarðhaldsklefar eru fullir allstaðar og nú er það þannig að einangrunarklefa Litla Hrauns eru allir uppteknir svo þar er engin leið að setja þá erfiðustu í einangrun.


Það þarf að þjóðnýta aðalstöðvar Íslandsbanka/Glitnis við kirkjusand ásamt gamla strætósvæðinu og gera það að fangelsi, húsið er virkilega vel til þess fallið og lýtur meira að segja út einsog fangelsi, strætósvæðið gæti svo nýst sem viðhaldsplan fyrir ríki og bæ þarsem hægt er að gera við og janfvel byggja einhverja skemmtilega hluti sem nýtast okkur í kreppunni sem framundan er, jafnvel tilraunamatvælaframleiðslu með áherslu á nýbreitni og fullvinnslu. Þeir sem gerst hafa sekir um ræktun geta svo sett upp gróðurhús og svo er þarna kjörið tækifæri fyrir markað svo fangelsið getur að vissu leyti rekið sig sjálft.

Sérálmu er hægt að gera fyrir fjárglæframennina okkar þarsem þeir verða nýttir til að hjálpa til við að gera upp fortíðina og segja okkur satt  um hvað gerðist í bönkunum, þeir sem sýna samvinnu fá afslátt á refsingum og hóflega launað starf við að endurreisa bankakerfið, hér þarf að búa til nýjar leikreglur og refsa þeim sem virkilega valda fjöldanum skaða.


Þar gæti líka farið fram síbrotavistun og frelsissvipting fyrir fíkla til endurhæfingar, þarsem ég trúi lítið á að dæma veikt fólk í fangelsi og ég persónulega tel eiturlyfjaneitendur undir veikt fólk sem þarf hjálp.

"Stríðið" gegn eiturlyfjum sem Nancy Reagan og maður hennar stóðu fyrir er ekki eiginlegt stríð vegna þess að stríð í skilningi þess orðs enda einhverntímann, þetta mun aldrei taka enda.

Þarna væri hægt að kalla saman þá aðila sem vinna að endurhæfingu fíkla, SÁÁ, Samhjálp, Samstöðu, Krýsuvíkursamtökin, Fangelsismálastofnun, Landspítalann, Hjálpræðisherinn, Ekron auk allra sem ég er að gleyma. Halda einn fund og bjóða ÖLLUM að starfa innan þessarar stofnunnar, án samkeppni því að ekki henta allar meðferði öllum, svo að fangarnir/sjúklingarnir fái virkilega hjálp til að komast útúr þessu lífi ef þeir kjósa svo. Svo er það að hafa öflug og góð samskipti við þá sem eru í hinum ýmsu 12 spora samtökum um mikið starf innan vegja þessa "Endurhæfingarfangelsis" sem án spaugs er að miklu leyti byggt á Kardemommubænum.

Ég er draumóramaður en ég er ekki sá eini og þetta er vel geranlegt.

Stundum er mesti ósigurinn falinn í uppgjöfinni og eftir það að velja sér bardagana sem taka skal og forðast hina sem eru algjörlega fyrirsjáanlega tapaðir. Hver sýnist ykkur vera árangurin af hertum viðurlögum við eiturlyfjum? Svarið því heiðarlega, ég hef svarað því fyrir mitt leyti að sá árangur er lítill sem enginn, vissulega eru millisalarnir og smásalarnir læstir inni reglulega en það er svosem nóg til af þeim svo það sér ekki högg á vatni, stórlaxarnir nást afar sjaldan og t.d. þekki ég til þess að lögreglumenn eru enn þá steinhissa á sumum af þeim stóru málum sem þeir hafa komið uppum síðustu ár. En raunverulegir athafnamenn, verktakar og bissnissmenn eru orðnir stórir þáttakendur beint og óbeint í fíkniefnasmygli.

 

Það skírist af því að verð hér er mjög hátt og arðsemin er gríðarleg, arðsemi er jú málið í viðskiptum, þegar þú svo þarft aldrei að taka neina áhættu sjálfur þá verður þetta freistandi fjárfestingmöguleiki.

Gerum fangelsi að freistandi fjárfestingu fyrir ríkið og notum svo tímann í að endurhugsa þetta stríð gegn eiturlyfjum og refsingar almennt.


mbl.is Geta greitt sekt en borga ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vendetta

Það er öldungis rétt hjá þér, að það eru núorðið fleiri milljón fermetrar af ónýttu skrifstofurými sem mætti breyta í lokuð fangelsi, (sem þó yrðu ekki háöryggisfangelsi.)  Það hlýtur að vera ódýrara að umbyggja t.d. höfuðstöðvar Glitnis með tilliti til að styrkja gluggarúður og dyr heldur en að byggja nýtt fangelsi frá grunni. Þröngsýnin hjá yfirvöldum er ótrúlegt, halda í aurana en henda krónunum.

Og til að spara tíma og fé við keyrslu fram og aftur milli dómsala og Eyrarbakka með gæzluvarðhaldsfanga (menn sem enn er ekki búið að dæma), væri einnig  hægt að breyta einhverju verksmiðjuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu sem keypt yrði fyrir slikk, í gæzluvarðhaldsfangelsi í staðinn fyrir að bíða endalaust eftir þannig fangelsi á Hólmsheiði.

Hins vegar er ég ósammála þér í því að gefa fjársvikurum afslátt á refsingu fyrir að "aðstoða". Myndir þú treysta Björgúlfi Thor til að "hjálpa" við endurreisnina eins og hann fór fram á? Nei.

Vendetta, 10.5.2010 kl. 13:00

2 Smámynd: Einhver Ágúst

Nei en sú hugmynd að samvinna og full játning geti dregist af refsingu hugnast mér.....

Einhver Ágúst, 10.5.2010 kl. 13:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband