14.8.2009 | 15:04
Þar fór það
en svo það sé sagt svo Þráinn geti líka farið í mál við mig og almennt bara fólk útum bæinn þá hef ég varið hann heilmikið en hann er augljóslega mikið veikur þegar kemur að samskiptum og að starfa í hópi, fólk hváði mikið þegar hann var tekinn inn í hreyfinguna og ég tel að það hefði jafnvel verið gæfulegra að hafa mig í fyrsta sæti enn gamlann stirðnaðann rithöfund/leikstjóra úr framsókn.
Þráinn er emð egósólói sínu að kosta þessa vel meintu hreyfingu mikið, til hamingju þráinn.
Ég hélt að hann og almennt annað fólk í okkar flippuðu og óhefðbundnu hreyfingu næði að rölta yfir svona smávægilegann ágreining en það er víst ekki.
Skítt með Alzheimerróg, maðurinn er framsóknarmaður í eðli sínu þarf eitthvað að blanda Alzheimer við þannig geðveiki? Held ekki.
Ég tek það fram að ég er að tala sem 17 varaþingmaður Þráins Bertelssonar í Reykjavík Norður, kannski kemst ég ekki á þing þetta kjörtímabilið, ooooooooooooo.
![]() |
Þráinn segir sig úr þingflokki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
11.8.2009 | 11:42
Kannski maður fái sér ís ef það er gott veður...
Mér sýnist nú verða kosið um þetta á lýðræðislegann hátt á Alþingi og væntanlega fellt, að því tilefni langar mig að rifja upp tvær dagsetningar, 10 maí 1940 og 24 maí 1958, það eru dagetningar þegar breskur her var sendur að íslandi til að berjast hreinlega í þorskastríðinu og til að hernema landið í seinni heimsstyrjöldinni, eru menn fullvissir í hjarta sínu að bretar muni ekki gera það sama aftur? Þetta eru nú bretar og þeirra hagkerfi veltur á því að við tökum á okkur þennann pakka sem viðbjóðslegt Icesave er, sveitarfæelög í bretlandi eru með greiðslufresti til 2012 og lengra vegna skulda sinna og taps sökum Icesave. Bara að pæla, en ég trú ibretum til alls í ljósi sögu þeirra sem byggist á stríðsrekstri og landnámi auðlindaríkra landa.
En aftur að "Samstöðufundinum" fyndið að heyra hægri sinnaða menn nota svona verkamannafrasa frá tíð Lech Walensa.
Það sem er allavegann pottþétt að fullt af fólki finnst allur andskotinn og kemur þarna af mismunandi ástæðum, en marktæk mótmæli verða þetta ekki þarsem krafan er óljós og vafi leikur á hvers vegna sumir eru að mótmæla, Indefence mennn koma þarna dulbúnir sem einhverjar frelsishetjur, þegar þeir eru bara bankastarfsmenn og stuttbuxnadrengir sjálfstæðisflokksins.
Slíkir einræðistlburðir hafa verið hér viðhafðir í áratugi og þetta er í raun nýtt að vg liðar séu með uppsteyt og er það vel, samfylkingin er einsog áður öll saman í spillingunni og viðhefur sínar spilltu stjórnmálaklæki til varnar sínum spilltu "bissnissmönnum" henni er ekki meira sjálfrátt en móður eiturlyfjafíkils.
Og þó að þetta mundi heiðarlega snúast um að koma ríkisstjórninn frá þá væri ekkert að því, það sem væri þá heiðarlegt að gera væri að segja það bara beint út einsog við gerðum í vetur á Austurvelli, það var sko ekkert verið að fela sig á bakvið neitt þar enda lét kraftur fólksins ekkert á sér standa, þann kraft hafa sjálfstæðismenn og framsóknarmenn ekki með sér í dag.
En þjóðerniskennd og ofstækistrú eru virkilega hættuleg í þessa blöndu, þar blossar ofbeldið upp sem aldrei fyrr í ljósi sögunnar, því menn nota guð SINN og þjóð SÍNA til að réttlæta ofsóknir og ofbeldi.
![]() |
Boða samstöðufund á Austurvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.8.2009 | 12:05
Hvar eru okkar útreikningar?
Hvað eru Rio og félagar búnir að kosta okkur? Hvernig væri að reikna það út áður en það er bætt við fleiri álverum...
Kínverjar eru ekkert að hika við þetta, en það eru nú Rio Tinto ekki heldur.
![]() |
Segir njósnir Rio kosta Kína háar fjárhæðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.8.2009 | 11:45
Við skulum leiða hugann að þeim sm virkilega eiga um sárt að binda....
ekki hækkandi húsnæðislán, ódýrari bíl, engar utanlandsferðir og minni lúksus almennt.
Mér hefur orðið tíðrætt um gengisfellingu orða, hvernig orð eru tekin og gerð merkingarlaus í nútímanum, þunglyndi er svo virkilega eitt þessara orða, menn nota þunglyndi um leti og sjáfsvorkun almenna sem á ekkert skilt við hinn alvarlega sjúkdóm þunglyndi. Svona meir aeinkenni þunglyndi og mun almennari einkenni hér á landi en nokkur rannsókn eða sjálffræðingur getur sagt okkur frá.
Leiðum hugann að þjóðum afríku þarsem við stöndum fyrir skipulegu arðráni auðlinda í ríkum löndum og skiljum íbúana eftir slyppa og snauða í borgarastríði einsog td í Nígeríu, til Taíwan sem nú stríðir við náttúruhörmunga með gríðarlegu manntjóni, til samkynhneigðra sem ekki ganaga um frjálsir í mörgum þjóðum heims, til Rússa og Bandaríkjamann sem ekki búa við málfrelsi sökum öfgakenndra stjórnvalda og lítum í kringum okkur og spáum í hvort að virkilega sé svo mikið að væla yfir á þessu yndislega landi.
![]() |
Gífurlegt þunglyndisálag á íslensku þjóðinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.8.2009 | 21:45
Vissulega er sannleikurinn hvorugu meginn....
Sannleikurinn verður ekki klæddur í einkennisbúning og veitt vald til valdbeitingar, né heldur býr hann í tökuhúsum með sjónarmiðum grænmetisétandi júróhippa.
Hann er þarna einhversstaðar á milli, flækist á milli og virðist fela sig fyrir flestum sökum skoðanna þeirra eða hlutdrægni yfirleitt, með SI, með eða á móti Löggum, hata ál, elska ál(???) eða eitthvað slíkt.
Þá gleymist að það má í raun ekkert sletta skyri en logreglan mætir ekki á svæðið við mun alvarlegri atburði næstum daglega svo þetta virðast nú vera harkaleg viðbrögð við smá skyri, og j´aþetta er litða skyr fyrir þá sem vilja halda efanum á lofti um það og "telja" þetta jafnvel vera eitthvað annað og hættulegra og vilja harkalegri framferði lögereglu.
Það gleymist líka fljótt að lögreglann ber litla ábyrgð oglögreglumenn þurfa að verða uppvísir af miklum afglöpum til að rannsókn nái fram að ganga.
Berið bara saman upptökur af útkallinu vegna skyrssletta og svo útkalli vegna ofbeldis í kompási þarsem löggan tekur bar kunningjalegt spjall við kauða svona í vegkantinum, ekkertverið að handtaka hann enda hann svo rosa sterkur, var það kannski málið? Auðveldara að snúa niðurstelpu og lemjaandlitinu hennar í malbikið.
Þetta er nú ljóta ruglið hérna á landinu okkar góða.
![]() |
Ásakanir Saving Iceland ekki svara verðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.8.2009 | 21:00
Fallegur dagur.....
Ég naut dagsins að vanda með litla bróður og Gunna mág í göngunni, við hlið mér konan mín og sonurinn með regnbogafána.
Þetta er yndislegur dagur og mikið höfum við það gott hér á landi aðeins örfáir hlutir eftir ógerðir til að mannréttindi náist jafnt fyrir alla.
Til hamingju með daginn öll sömul!!
![]() |
Stærsta gangan til þessa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.7.2009 | 10:34
Gúrkutíðarlögga?
Uppgrip fyrir lögreglumenn og byssukalla er í stórhættu þarsem niðurskurðurinn frægi bitnar á öllum.
En þessi frétt er nú alveg met, dýrbitið lamb lesum við um í dýrtíðinni og grejuskyttan vælir undann litlum peningum, ef honum er svona annt um lömbin afhverju fer ahnn ekki bara og drepur tófuna, hví gera bændurnir það ekki bara sjálfir? Eða mynda samlag og ráða sér skyttu?
Ég drap persónulega svona ca 20 minka þegar ég var barn og fékk smá verðlaun hjá oddvitanum fyrir skottin, en það yrði náttúrulega tilefni til að senda börn til sálfræðings í dag miðað við að þetta sé frétt.
![]() |
Dýrbitið lamb í Borgarfirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
23.7.2009 | 14:45
Einmitt.....
Lögreglan sendir út massívann áróður um hversu aumt það séð að vera lögga í dag og hvernig við eigum ÖLL að vera mjööög hrædd, var ég einn um að taka eftir að Fréttablaðið í gær var undirlagt af lögreglunni?
Þar var betlað og kvartað og eitt sakamál allt að því gefið eftir við lögfræðing með því að játa í forsíðufrétt að engar upptökur væru til af stórhættulegum eltingarleik í síðustu viku vegna skorts á upptökudiskum í myndavélarnar.
Það má ekki gagnrýna störf lögreglunnar án þess að það séu fordómar 0og maður sé einhver kommúnistavesalingur og svo beita þier svona líka virkilega ósmekklegum þrýstingi og fjölmiðlafléttum til að hræða fólk og snapa sér pening, afhverju ætti löreglan að sitja framar í úthlutun ríkisfés en sjúkraliðar, ljósmæður, ruslakallar, vörubílstjórar og annar almenningur?
Er Það verjandi að lögregla í ljósi og krafti embættis síns noti fjölmiðla til að blekkja tækifærissinna á alþingi til að gefa sér fé umfram aðra þjóðfélagshópa með frétta tilkynningum frá embættinu?
Blaðamaður Fréttablaðsins meira að segja hafði á orði að þessar tilkynningar hefðu aukist frá lögreglunni og væru orðnar ansi undarlegar.
Ég sé ekki betur en að Lögreglan sé líka að nota sér ótta stjórnmálamann eftir ástandið sem skapaðist við þinghúsið í vetur, pólitíkusra mega ekki til þess hugsa að þeirra einkaher verji þá ekki í komandi átökum sem viðrast blasa við þegar líður á haustið, það get ég ímyndað mér að verði nefnt á þessum fundi með dómsmálaráðherra og fulltrúa lögreglunnar honum Snorra.
Ef þið passið okkur ekki þá pössum við ykkur ekki, Ísland er lítið að breytast.
Það þýðir lítið að herða refsingar og auka löggæslu ef það er ekkert pláss að setja krimmana og það þýðir lítið að herða löggæslu til að bregðast við misskiptingu og óréttlæti í samfélaginu sem veldur gremju og jafnvel uppreisn þegar upp verður staðið.
Hræddir stjórnmálamenn stinga hausnum í sandinn og vona að löggan passi sig. Stjórnm´lamenn sem ekki vilja verða dæmdir af verkum sínum.
Dugmiklir stjórnmálmenn láta þegna sína sitja við sama borð þrátt fyrir háværan hóp sem fer fram með hótunum og hræðsluáróðri, einsog fyrirsögn Fréttablaðsins í gær, "Glæpir aukast á meðan lögreglan er fjársvelt"(ekki kannski orðrétt).
Ég leyfi mér að fullyrða að það er enginn starfsstétt sem fær slíka áheyrn hér á landi.
![]() |
Erfitt og sársaukafullt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.7.2009 | 14:31
Þetta er nú meiri pólitíkin
Lögreglan sendir út massívann áróður um hversu aumt það séð að vera lögga í dag og hvernig við eigum ÖLL að vera mjööög hrædd, var ég einn um að taka eftir að Fréttablaðið í gær var undirlagt af lögreglunni?
Þar var betlað og kvartað og eitt sakamál allt að því gefið eftir við lögfræðing með því að játa í forsíðufrétt að engar upptökur væru til af stórhættulegum eltingarleik í síðustu viku vegna skorts á upptökudiskum í myndavélarnar.
Það má ekki gagnrýna störf lögreglunnar án þess að það séu fordómar 0og maður sé einhver kommúnistavesalingur og svo beita þier svona líka virkilega ósmekklegum þrýstingi og fjölmiðlafléttum til að hræða fólk og snapa sér pening, afhverju ætti löreglan að sitja framar í úthlutun ríkisfés en sjúkraliðar, ljósmæður, ruslakallar, vörubílstjórar og annar almenningur?
Er Það verjandi að lögregla í ljósi og krafti embættis síns noti fjölmiðla til að blekkja tækifærissinna á alþingi til að gefa sér fé umfram aðra þjóðfélagshópa með frétta tilkynningum frá embættinu?
Blaðamaður Fréttablaðsins meira að segja hafði á orði að þessar tilkynningar hefðu aukist frá lögreglunni og væru orðnar ansi undarlegar.
Ég sé ekki betur an að Lögreglan sé líka að nota sér ótta stjórnmálamann eftir ástandið sem skapaðist við þinghúsið í vetur, pólitíkusra mega ekki til þess hugsa að þeirra einkaher verji þá ekki í komandi átökum sem viðrast blasa við þegar líður á haustið, það get ég ímyndað mér að verði nefnt á þessum fundi með dómsmálaráðherra og fulltrúa lögreglunnar honum Snorra.
Ef þið passið okkur ekki þá pössum við ykkur ekki, Ísland er lítið að breytast.
Það þýðir lítið að herða refsingar og auka löggæslu ef það er ekkert pláss að setja krimmana og það þýðir lítið að herða löggæslu til að bregðast við misskiptingu og óréttlæti í samfélaginu sem veldur gremju og jafnvel uppreisn þegar upp verður staðið.
Hræddir stjórnmálamenn stinga hausnum í sandinn og vona að löggan passi sig. Stjórnm´lamenn sem ekki vilja verða dæmdir af verkum sínum.
Dugmiklir stjórnmálmenn láta þegna sína sitja við sama borð þrátt fyrir háværan hóp sem fer fram með hótunum og hræðsluáróðri, einsog fyrirsögn Fréttablaðsins í gær, "Glæpir aukast á meðan lögreglan er fjársvelt"(ekki kannski orðrétt).
Ég leyfi mér að fullyrða að það er enginn starfsstétt sem fær slíka áheyrn hér á landi.
![]() |
Lögreglan þarf aukið fjármagn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
17.7.2009 | 13:11
Téður úfliður snýr aftur
Nú er ég aftur minntur á að Týr missti höndina við úlfllið einsog það var kallað þegar Æsirnir böksuðu við að binda Fenrisúlf, seinna virðist þetta hafa breyst í úlnlið.
Kemur málinu náttla ekkert við, en afhverju er þetta frétt? Er verið að fela eitthvað? Fer kaþólskt sæði til spillisí páfagarði í það miklu mæli að menn slasast á úlflið?
Tý refsaðist fyrir fífldirfsku.
![]() |
Hlúð að heilögum úlnlið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)