Færsluflokkur: Bloggar
9.12.2009 | 11:53
Vá, rosalegt...
Hefði samt hentað betur að hann ræki uppí höfn í Kaupmannahöfn, en það er langt að fara......
Risaísjaki sunnan við Ástralíu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
9.12.2009 | 11:52
Vei vei vei!!!
Algjörlega umhverfisvæn? Hljómar einsog kunnuglegt stef...
Fyndið að einn stærsti olíuframleiðandi heims sé að standa í þessu, svona eins og kaþólskur prestperri með drengjakór.
Og svo byrjar kórinn um vondu kommana og umhverfissinna sem nú nýverið var gengið svo langt að kalla nasista.
Kannski er einhver í þessum hópi umhverfissinna hræddur um að börninn hans fái ekkert "uppí hendurnar", kannski er vel meinandi fólk í þessum umhverfissamsærum sem virkjana-sjálfstæðismenn sjá allsstaðar.
Ég meira að segja vona alveg innilega að þið framkvæmdar/virkjunar/álversbjálfarnir hafið rétt fyrir ykkur, en er soldið hræddur um ekki.
Þið kannski teljið nýja skýrslu 2500 vísindmanna samsæri? Samsæri um að aukning gróðurhúsalofttegunda sé órekjanlega af mannavöldum.
Er mengun sú og endanleg eyðilegging náttúru í virkjanaframkvæmdum talin með?
Ognú í gær lak það út að stórþjóðirnar eru með eitt stærsta hössl sögunnar í gangi í Kaupmannahöfn þarsem þeirra kvóti kemur til með aukast á kostnað þróunarlanda, nú skil ég betur hvað það var mikill áhugi á þessari ráðstefnu í aðdragandanum og hvers vegna bindandi samningur var allt í einu mikilvægur í augum USA
Og það sem kannski skilst best hjá ykkur iðnaðarfólkinu, erum við að hagnast á þessu rafmagni? Með orkufyrirtækin gjaldþrota og óhagstæða innkomu sé ég ekki þennan hagnað, vissulega er fólk á Reyðarfirði með vinnu og stór hópur kínverja og portúgal fékk vinnu við bygginguna en samkvæmt þeim tölum sem ég sé þá er þessi bransi ekki að skila okkur hagnaði eða raunverulegum tekjum í dag.
Kommi eða ekki þá þegi ég nú ekki þó að eitthvert fyrirtæki í einu minnst þróaða lýðveldi heims vilji kaupa íslanskt ál, þetta er alveg ágætis auglýsing fyrir Saudana og Alcoa en é held við ættum að fara varlega í að telja þetta okkur til tekna eða á einhvern af hinum frægu "good will" reikningum.
Aðeins ál frá Íslandi í Masdar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.12.2009 | 00:07
Úff...
Það ætti að banna Hibbert, áður enn hann skaðar einhvern fyrir lífstíð, eða sækja hann til saka fyrir vanhæfni í starfi.
Hann komst nýverið í úrvalslið þeirra sem ekkert geta en hirða þúsundir punda á viku í laun.
Og nú þetta.
Palacios fluttur á sjúkrahús | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.12.2009 | 12:24
Til hamingju Andri...
Glæsileg verðlaun fyrir glæsislegt verk, vildi að það hefði verið hlustað og að það væri hlustað í dag.
Því miður eru máttug öfl sem vilja veg landsins ekki hið besta en vilja selja foldina og vatnið fyrir skyndigróða sem á að skaffa okkur lifistandard á við olíufursta.
Það er sorglegt en ég gleðst með Andra Snæ sem hefur snert viðkvæma sál landans, hrædd og gráðug sem hún er.
Andri Snær hlýtur Kairos verðlaunin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.12.2009 | 12:20
Að stúta sér...
á hún þá við
-að kljúfa steinbítshaus
-að splundra rúðu
-að fyrirkoma einhverjum
Ég skal ekki segja, en vissulega eru þau kauðsk nú Jó og Co.....en vond eða óheiðarleg trúi ég nú ekki að þau séu, óttaslegin við reiða þjóð og afar grimma breta held ég að sé nærri lagi.
Hótanir ekki frá ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.12.2009 | 12:16
Hvað eru 580 milljónir?
Er það ekki niðurskurður í grunnþjónustu leikskólabarna? Það þykir mér undarlegt og merkilegt að halda þessu fram til að koma höggi á stjórn landsins.
Það vekur mér ugg að tveir stærstu flokkar landsins séu í einhverjum uppgjörshug gagnvart hvor öðrum á þessum válegu tímum, orku þessa fólks væri betur varið í að vinna saman að lausn vanda þjóðar og borgar en að ver eilíft að skíta hvort annað út.
Vissulega eru Jóka og Steingrímur ekki vön að hafa völdin og virka kauðsk en hefur einhver í alvör ástæðu til að væna þau um óheilindi? Og vissulega eiga Sjallar að skammast sín og sýna auðmýkt efitr það sem á undan er gengið.
En að borgarstjórinn og Dagur B sjái ekki sóma sinn í að tala um fjármál borgarinnar af ábyrgð og sýna okkur þegnunum að þau séu að vinna okkur í hag er dapurlegt.
Annars verð ég að játa það á mig að ég er einlægur aðdáandi Hönnu Birnu, hún er kreftakona og hefur tekist að róa öldurnar áður í borgarstjórn, hún ætti að sýna sama viuljan til að lægja öldurnar í landsmálunum ekki ýfa upp óvinsemd og hatur milli fólks með svona ræðum og sendingum.
Hanna Birna: Standa vörð um velferðarþjónustu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.12.2009 | 13:34
Kallinn er bara í sjálfsvörn....
En skoðið hvað hefur tíðkast af ráðherrum fyrri tíðar, eru þessi svör ekki með því einlægara sem við eigum að venjast frá herrum í þessu sæti.
Minnumst Geirs Hilmars og snöggra og stundum dónalegra svara hanns, minnumst forvera Steingríms í starfi sem svaraði ávallt sveittur þannig að engin leið var að botna eitt né neitt í því sem hann sagði dýralæknirinn og minnumst fyrrverandi viðsk.raðherra Björgvins G. sem alltaf hljómaði sannfærandi þó að sagan sýni að hann á sumum tímapunktum hreinlega laug að þjóðinni í beinni útsendingu svo vel var hann æfður á málfundum Samfylkingar og væntanlega ræðuliðs menntaskólans síns.
Okkur var hótað já, er einhver hissa? Við erum að hjálpa risastórum heimsveldum að verjast þeirri vandræðalegu staðreynd að þeir hafa ekki unnið vinnuna sína og regluverk ESB sé meingallað í bæði eftirlitsmálum með fjármálafyrirtækjum og tölum ekki einu sinni um innistæðutryggingar.
Slík heimsveldi náðu að frest áhrifum kreppunnar á sín lönd og eru nú smátt og smátt að knýja minni þjóðir einsog okkar í hálfgert gjaldþrot, Grikkir eru nú síðastir, Írar og við fórum á undann.
Bretar leika sér að þjóðum sem okkar og með fulltyngi olíurisans Shell í hollandi eru þeir afar valdamiklir, en sjáum svo hvort þeir séu ekki einsog Intrum, ágætir þegar á reynir og við stöndum okkur.
Gerum ekki neitt eða ekki gera ekki neitt, það er spurningin......
Held enn að það sé afar lítill eðlismunur á því, það eru eflaust einhverjir Brian Tracy aðdáendur ósammála mér enda farið á málfundi og tamið sér sjálfstraust og ræðulist.
Yndislega ótrúlega ómerkilegt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.11.2009 | 18:57
Það er ekki á allra færi...
að fjárfesta í sæti á Þingi
þó sýnist mér ekki að þjóðin læri
að varast þó þjófurinn syngi
Þar kom að því, ég bloggaði í bundnu máli, nýjum botni er náð.
45 hafa skilað uppgjörum vegna prófkjara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.11.2009 | 10:01
Partý!! Nei afsakið, mannfagnaður!!!
Ég bara kemt því miður ekki...leiðinlegt.
Bóndi er bústólpi og allt það....en ekki fæ ég nú samt vatn í munn af Guðna þó hálfnafni minn sé, þvílík leiðindi og tímaskekkja að fá einn af postulum klúðursins, manns sem minnst verður fyrir að hafa í misgóðum félagsskap stýrt landinu hraðbyr fram af brúninni.
Fullveldishátíð Heimssýnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.11.2009 | 09:53
Þetta þýðir...
....að við erum búin að vera afar dugleg að breyta neyslunni okkar og hlúa um leið að innri hagkerfinu og minnka atvinnuleysi.
En fallegt, þetta gátum við.
Kannski er samt bygginga og framkvæmdamarkaðurinn sem stendur fyrir stórum hluta þessa "sparnaðar", en það er nú alveg ágætt, sá bransi þurfti að fara í meðferð eftir áralangt sukk og óráðsíu.
60 milljarða afgangur af vöruskiptum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)