26.5.2009 | 11:15
Æ sér gjöld til gjalda?
Ef ég skil þetta rétt?
Launin mín lækka og umsamdar hækkanir fæ ég sko alls ekki.
Lánin mín hækka vegna gjaldeyrishafta sem eru sett á til að halda gjaldmiðlinum sofandi í öndunarvél eftir harða meðferð Vilhjálms og félaga.
Gjaldmiðillinn minn er í rúst þarsem Vilhjálmur og félagar hans tóku massíva afstöðu gegn krónunni til að bjarga eigin skinni, og teflsu lífi landsmann og afkomu í stórhættu í leiðinni.
Þar af leiðandi hækka hér allar vörur vegna þess að sömu félagsmenn Vilhjálms þurfa að borga meira fyrir þær í krónum talið vegna falls krónu sem þeir sjálfir slátruðu.
Og svo er fullyrt að það muni engin áhrif hafa á viðræður millii hins opinbera og SA um stöðugleikasátt?
Þetta er nú pínu ósanngjarnt Vilhjálmur......
Mikið er nú líka bensínið orðið dýrt á Íslandi.
Gengi krónunnar skýrir hækkun vísitölunnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ditto! Algjörlega, en Ágúst Már, hvenær hefur réttlæti verið í forgrunni sjálfstæðismanna sem vilja bara þægilega innivinnu.
Ingibjörg Friðriksdóttir, 26.5.2009 kl. 13:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.