Gerum eitthvað í þessu

Ég birti þessa færslu í síðasta skipti þarsem hún smellpassar við viðfangsefnið, og líka aðeins af því að ég hef verið svo svekktur yfir hvað hún fær lítil viðbrögð.

Það er ófremdarástand í fangelsismálum landsins, einsog fram kemur í greininni eru menn ekki teknir til afplánunar í lengstu lög, margir sleppa altof vel vegna þessa en aðrir verða fyrir alverlegri lífsskerðingu vegna biðarinnar efitr plássi einsog bent er á í greininni.

Við höfum þyngt dóma og hert refsiramma án þess að auka pláss í fangelsum, á þetta eykst svo góður árangur lögreglunnar í "stríðinu" gegn eiturlyfjum, þetta hefur og er að hafa slæmar afleiðingar, hópurinn stækkar hratt og fangelsin stækka ekki, auk þess að enn er starfrækt fangelsi á Skólavörðustíg sem helst er til þess fallið að verða safn eða einhversskona túristagildra frekar en mannsæmandi fangelsi.

Já tala nú ekki um þegar verið er að handtaka menn í fangelsunum sjálfum einsog gerðist í þessari viku. 

Já þetta er algjört grín, en staðreyndin er nú sú að það er bara ekkert pláss í fangelsum og lööööng bið eftir afplánun, því miður veldur þetta því að menn ganga lausir og afleiðingar eru afar vægar við afbrotum sem þessum. Gæsluvarðhaldsklefar eru fullir allstaðar og nú er það þannig að einangrunarklefa Litla Hrauns eru allir uppteknir svo þar er engin leið að setja þá erfiðustu í einangrun.


Það þarf að þjóðnýta aðalstöðvar Íslandsbanka/Glitnis við kirkjusand ásamt gamala strætósvæðinu og gera það að fangelsi, húsið er virkilega vel til þess fallið og lýtur meira að segja út einsog fangelsi, strætósvæðið gæti svo nýst sem viðhaldsplan fyrir ríki og bæ þarsem hægt er að gera við og janfvel byggja einhverja skemmtilega hluti sem nýtast okkur í kreppunni sem framundan er, jafnvel tilraunamatvælaframleiðslu með áherslu á nýbreitni og fullvinnslu. Þeir sem gerst hafa sekir um ræktun geta svo sett upp gróðurhús og svo er þarna kjörið tækifæri fyrir markað svo fangelsið getur að vissu leyti rekið sig sjálft.

Sérálmu er hægt að gera fyrir fjárglæframennina okkar þarsem þeir verða nýttir til að hjálpa til við að gera upp fortíðina og segja okkur satt  um hvað gerðist í bönkunum, þeir sem sýna samvinnu fá afslátt á refsingum og hóflega launað starf við að endurreisa bankakerfið, hér þarf að búa til nýjar leikreglur og refsa þeim sem virkilega valda fjöldanum skaða.


Þar gæti líka farið fram síbrotavistun og frelsissvipting fyrir fíkla til endurhæfingar, þarsem ég trúi lítið á að dæma veikt fólk í fangelsi og ég persónulega tel eiturlyfjaneitendur undir veikt fólk sem þarf hjálp.

"Stríðið" gegn eiturlyfjum sem Nancy Reagan og maður hennar stóðu fyrir er ekki eiginlegt stríð vegna þess að stríð í skilningi þess orðs enda einhverntímann, þetta mun aldrei taka enda.

Þarna væri hægt að kalla saman þá aðila sem vinna að endurhæfingu fíkla, SÁÁ, Samhjálp, Samstöðu, Krýsuvíkursamtökin, Fangelsismálastofnun, Landspítalann, Hjálpræðisherinn, Ekron auk allra sem ég er að gleyma. Halda einn fund og bjóða ÖLLUM að starfa innan þessarar stofnunnar, án samkeppni því að ekki henta allar meðferði öllum, svo að fangarnir/sjúklingarnir fái virkilega hjálp til að komast útúr þessu lífi ef þeir kjósa svo. Svo er það að hafa öflug og góð samskipti við þá sem eru í hinum ýmsu 12 spora samtökum um mikið starf innan vegja þessa "Endurhæfingarfangelsis" sem án spaugs er að miklu leyti byggt á Kardemommubænum.

Ég er draumóramaður en ég er ekki sá eini og þetta er vel geranlegt.

Stundum er mesti ósigurinn falinn í uppgjöfinni og eftir það að velja sér bardagana sem taka skal og forðast hina sem eru algjörlega fyrirsjáanlega tapaðir. Hver sýnist ykkur vera árangurin af hertum viðurlögum við eiturlyfjum? Svarið því heiðarlega, ég hef svarað því fyrir mitt leyti að sá árangur er lítill sem enginn, vissulega eru millisalarnir og smásalarnir læstir inni reglulega en það er svosem nóg til af þeim svo það sér ekki högg á vatni, stórlaxarnir nást afar sjaldan og t.d. þekki ég til þess að lögreglumenn eru enn þá steinhissa á sumum af þeim stóru málum sem þeir hafa komið uppum síðustu ár. En raunverulegir athafnamenn, verktakar og bissnissmenn eru orðnir stórir þáttakendur beint og óbeint í fíkniefnasmygli.

Það skírist af því að verð hér er mjög hátt og arðsemin er gríðarleg, arðsemi er jú málið í viðskiptum, þegar þú svo þarft aldrei að taka neina áhættu sjálfur þá verður þetta freistandi fjárfestingmöguleiki.

Gerum fangelsi að freistandi fjárfestingu fyrir ríkið og notum svo tímann í að endurhugsa þetta stríð.


mbl.is Aðbúnaður fanga ekki nógu góður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

þetta er aldeilis frábær pistill!

Og nákvæmlega eins og málin eru í raun og veru. Við eigum að taka Kanadamenn okkur til fyrirmyndar í fangelsismálum.

Kv,

Óskar Arnórsson, 15.6.2009 kl. 11:46

2 Smámynd: Einhver Ágúst

Algjörlega og þakkir fyrir innlitið, það er gremjulegt að skrifa pistla stundum, því loks þegar manni finnst maður skrifar eitthvað af viti eða er með einhverjar lausnir  þá les það enginn og lítið um comment.

Fólk virðist mest vilja rífast.

Einhver Ágúst, 15.6.2009 kl. 13:03

3 Smámynd: Óskar Arnórsson

Sammála því Ágúst! Ég gef ekkert fyrir krítik á málefnum ef fólk getur ekki komið með einhverjar vitrænar lausnir. Og þú kemur með þær. Þetta er eiginlega "dejavu" eða hvað það er nú kallað. Ég sendi BB skýrslu og tillögur þegar ég var að vinna á Litla-Hrauni. Hún er nú bara ekkert ósvipuð og þessi pistill þinn, bara 6 A4 síður.

Ég bý nú ekki á Íslandi, og langar ekki lengur til þess. Enn ég vildi ekki mínum versta óvini að gista Íslensk fangelsi eða finnsk. Allar tillögur mínar til úrbóta urðu til að ég fékk fangavarðafélagið á mig, geðlæknasambandið, yfirmann heilbrygðisteymis á Litla-Hrauni, sem er bara venjulegur heimilslæknir sem kann ekki neitt!

Ég fór lítið harkalega í starfsfólkið þarna, Valtýr Týran Sigursson Þ.v. Fanngelsismálastjóri fékk taugaáfall, því hann reyndi að þagga niður í mér. Mesti fýlupoki sem ég hef kynnst sem manni í svona stöðu.

Einn glæpasálfræðingur sem vit er í, er ekkert notaður. Allt bara pólitík. Kristján fangelsistjóri, mjög góður maður, enn hver kemur frá vinnu við að stjórna flugfélagi og gerður að fangelsistjóra? Á Íslandi auðvitað! 

Að koma úr alvöru fangelsi og inn í þennan glundroða var algjört sjokk fyrir mig. Ég hélt alltaf að allir væru svo miklir mannvinir á Íslandi, enn ég hafði rangt fyrir mér.

15.000.- kall á tíman! Sama kaup ég hafði 1988 í Svíþjóð! Þetta er bara rugl! Enda er það Bæjarsyjórn Eyrarbakka sem stjórnar þarna og fangarnir, ekki Borgartún. 

Enn það má víst ekki segja neitt upphátt á þessu Íslandi. Alla vega ekki um glæpi. Allar tillögur mínar voru notaðar gegn mér. Nú jæja, þetta er svo sem ekkert í fyrsta skipti sem ég set allt í háaloft...

Í sambandi við eiturlyf bendi ég bara á www.leap.cc Ég get ekki farið að skrifa heila ritgerð um það málefni. Einföldu lausnirnar eru oft bestar, enn ekki alltaf.

Kv, að sinni,

Óskar Arnórsson, 15.6.2009 kl. 14:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband