18.6.2009 | 07:09
Við erum orðin of góð fyrir landsins gæði
Þetta er vissulega vandræðalegt, það vill enginn vinna við fiskvilnnslu í landi þarsem langstærsta tekjulindin er einmitt fiskvinnsla og sala sjávarafurða.
Þetta hefur verið svona lengi og helst mikið í hendur með síhækkandi menntunarstigi þjóðarinnar, en nú kemur þetta vandræðalega út þarsem erfitt erað manna 4rar stöður þarsem 80 eru atvinnulausnir.
Ég er reyndar sjálfur kominn með snertiofnæmi fyrir fisk eftir 20 ár í eldhúsinu þannig að ég er löglega afsakaður enda held ég að enginn vilji mann í fiskvinnslu með opin sár í lófunum, þannig að ég er löglega afsakaður. Er það ekki?
Svo á ég ekket hús, gamlan steisjónbíl og er með vinnu. Þarsem ég reyndar oft elda fisk.
![]() |
Barningur að fá fólk til fiskvinnslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Kona sem vinnur í fiski sem ég þekki í Danmörku er með 3048 krónur íslenskar fyrir hvern dagvinnutíma fyrir utan orlof sem er 12%. Kona sem ég þekki á Íslandi og vinnur sömu störf er með 1050 krónur og með 10.17% orlof sem bætist við það. Ég er þess fullviss að ef íslenskt vinnuafl væri boðið íslensk launakjör í Danmörku væri það fyrirtæki þó það væri með fullorðna í vinnu kært fyrir barnaþrælkun því ekkert yfirvald tryði að fullorðin heilvita fólk í Vesturheimi ynni á slíkum ölmusugjöfum. 112- spekin sem hljóðar svona vertu vakandi yfir náunga þínum því hann gæti haft sitt hvað misjafnt í pokahorninu. Ekki hikka við að hringja þó þú sért ekki viss við hringjum svo í viðeigandi yfirvöld. Mér skilst að nú standi til að breytta boðskapnum þannig,,Ef það er eitthvað athugavert á þínu heimili hafðu þá samband strax á undan slúðurberunum og við munum koma þér og þínum til hjálpar því að betra er að grisja illgresið í eigin garði áður en maður fer að tala um hvað þyrnarnir á rósunum í kring geti stungið mann.
Baldvin Nielsen Reykjanesbæ
B.N. (IP-tala skráð) 18.6.2009 kl. 07:48
laun í fiskvinnlu hafa verið mjög léleg, vinnuaðstaða öll er oft á tíðum mjög svo ábótavant, það að vinna í fisk hefur verið keyrt niður móralskt af hálfu SF í mörg mörg ár, ég held því fram að það hafi verið gert til að geta lækkað launin og dregið inn fólk erlendis frá, það er ekki í boði lengur
Jón Snæbjörnsson, 18.6.2009 kl. 08:05
Heheh djúpur Baldvin......en jú ekki eru launin beysin í fiskvinnslu, við kokkarnir erum heldur ekkert að moka inn seðlum, enda erum við í þeim bransa þarsem orleof er talið með innifalið í launum oft og vinnutíminn ómanneskjulegur nema maður fari í skólana eða leikskóla einsog ég með mun lærri laun en eru að fást fyrir vaktirnar óþægilegu.
Ég er þess fullviss að enginn teldi mig heilbrigðann ef hann sæi hve miklum tíma ég hef varið í eldhúsinu launalaust þarsem ég yfirleitt vinn bara efitr föstum mánaðarlaunum, með engri yfirvinnu.
En hneykslaður er ég ekki það er eithvað sem mér mun seint takast.
Bara svona að velta þessu fyrir mér.
Einhver Ágúst, 18.6.2009 kl. 08:07
Ef það er vandamál að manna stöður og það er atvinnuleysi á því svæði þá er svarið oftast ekkert leyndarmál.
Ætti ekki að vera erfitt að hækka laun í þessum geira þar sem tekjur fyrirtækisins ættu að hafa hækkað töluvert við gengishrun.
Það er ekki starfsfólkinu að kenna að flest fyrirtæki í þessum geira hafa tekið lán fyrir öllum hagnaði mörg ár fram í tímann í erlendum gjaldeyri.
Eðlileg þróun við þannig ójafnvægi væri sú að ný fiskvinnslufyrirtæki með litlar skuldir á bakinu myndi koma gömlu illa reknu fyrirtækjum á hausinn vegna þess að þau væru ósamkeppnishæf.
Garðar Þórisson, 18.6.2009 kl. 08:09
Og svo hefur skuldsettur sjávarútvegurinn ekki efni á að hækka laun fóksins að sjálfsögðu, en þeir vilja halda í Porsche jeppana og kvótann, því að þeir eru augljóslega bestir til að hantera kvótann okkar.
Þetta er eitt af mínum áhugamálum, hvernig við getum aukið virði vörunnar með fullvinnslu og hugmynda- og vöruþróun, þar er vaxtarbroddurinn okkar og í raun nauðsyn fyrir framhaldið þarsem við verðum að verða sjálfbær næstu árin hvað matvöru varðar.
Einhver Ágúst, 18.6.2009 kl. 08:12
Góður Garðar! Mikið líkar mér hugsanagangurinn þinn.....
Einhver Ágúst, 18.6.2009 kl. 08:14
Ekki gleyma að almennt menntar fólk sitt til að komast áfram í betur launuð störf. Íslendingar erlendis sem ekki hafa mál heimamanna vinna við ræstingar og annað sem til fellur þar til tungumálið er komið, þá er reynt að komast áfram. Svona er þetta bara.
En auðvitað er þetta allt rétt hjá ykkur. Einhvern veginn hef ég á tilfinningunni að tveir grunnatvinnuvegir okkar starfi á herðum okkar, styrkir, styrkir, styrkir! Skuldir, skuldir skuldir! Við borgum, við borgum, við borgum.
Hildur Harðardóttir (IP-tala skráð) 18.6.2009 kl. 09:06
Sýnir bara hver verkalýdsforystan er ÓNOTHAEF OG GERSPILLT. Thad tharf ad laekka laun ASÍ formannsins um 67% minnst. Thad tharf almennilega uppreisn til thess ad thvinga burt spillinguna.
Hraedilegt er ad vita af thví ad Ásmundur Stefánsson, sem ekkert gerdi í verkalýdsforystunni annad en ad semja af sér, sé nú bankastjóri í ríkisbanka.
Alger vidbjódur ad vita af thví ad slíkur skadvaldur sé í slíkri stödu.
Foffi (IP-tala skráð) 18.6.2009 kl. 10:19
Ágúst nú ertu algerlega á villlugötum. Þú hefur látið ljúga því ofan í þig að íslenska þjóðin sé of góð fyrir fiskvinnslu. Launin eru hreinlega ekki samboðin íslendingum.
Verkalýðsfélögin stóðu sofandi á verðinum. Bakkavör byrjaði á því að fá inn pólverja því þeir voru ódýrari, eftir að íslendingar fóru að átta sig á því að launin í fiskvinnslu hækkuðu ekki í samanburði við önnur störf fóru íslendingar þá að leita í önnur störf.
Í kjölfarið í staðinn fyrir að hækka launin í takt við önnur laun þá fluttu kvótakóngarnir verksmiðjur og vinnslur úr landi til að fá ódýrara vinnuafl og þeir sem ekki vildu gera það réðu ekkert nema tailendinga og pólverja.
Því var síðan logið ofan í þjóðina að hún væri orðin of fín fyrir þessa vinnu. Og hver sem hefur þorað að opna kjaftinn á sér í þessu samhengi hefur verið kallaður kynþáttahatari og fordómafullur hástöfum og útgerðarfyrirtækin varin með kjafti og klóm. Það er til háborinnar skammar.
Þegar foreldar mínir ( og kannski þú náir þeim aldri ) voru yngri þá kíktu þau í fiskvinnslu og unnu 3-4 tíma eftir skóla og unnu í þessu á sumrinn með fínustu laun, laun sem ef borin væru saman við kaupmátt og verðlag í dag væru örugglega í kringum 2500 á tímann.
Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 18.6.2009 kl. 10:54
Já þessi útgerðaryrirtæki eru alltaf varin með kjafti og klóm, en ertu að reyna að særa mig með þessu forledra commenti Arnar? heheh
Launin fara að verða samboðin íslendingum, þarsem enga vinnu er að hafa en vissulega hafa verkalýðsleiðtogar þessa lands brugðist hrapalega enda hefur nú verkalýðsbarátta ekki verið mikið í tísku heldur, en það sést nú augljóslega á því að í dag eru gamlir verkalýðsleiðtogar orðnir bankastjórar.....hverja þarf maður að gleðja til að verða bankastjóri?
Einhver Ágúst, 18.6.2009 kl. 12:23
Hehe, ég er nú soddan polli þannig ég veit ekki hvort þetta ætti að vera særandi
Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 18.6.2009 kl. 13:06
Fantur.....hahaha...
En við viljum flest verða rík og fræg og ung og falleg með "réttar" skoðanir, það er nú allt sem ég er að segja.......og allir eiga að vera "eitthvað", þá finnst fóki undarlegt að eðlilegt fólk vinni í fiski, í rauninni var það orðið þannig að eldra fólk var pirrað að geta ekki talað íslensku í bakaríinu en sama fók vildi ekki að börnin sín og barnabörn ynnu þar.
Það var soldið erfið staða í þessu lúksusástandi sem við fórum í gegnum.
Einhver Ágúst, 18.6.2009 kl. 16:31
Nei það hreinlega gleymdist að skapa afgreiðslufólkinu í bakaríinu almennilegt starfsheiti. Hefði getað heitið "brauðskurðarmeistari" og þá hefðu allir veirð sáttir ( þeas hefðu launin verið góð. Hinsvegar er það nú líka einu sinni þannig að grunnlaun fyrir 18 ára manneskju í bónus eru samkvæmt taxta frá verkalýðsfélagi um 128 þús á mánuði síðast þegar ég athugaði.
Það er því ekki hægt að segja að fólkið hafi verið of flott launin í verstu stöðum voru hreinlega bara ekki nógu góð og hækkuðu ekki neitt í samanburði ( eða hækkuðu reyndar bara ekki neitt ) við önnur almenn laun í landinu.
Það er til nóg af fólki sem að myndi sætta sig við það að fara ekki í skóla ef það fengi bara þokkalegustu laun við að vinna verkamanna vinnu.
Hinsvegar er ástandið orðið þannig að maður hreinlega lifir varla af nema að fara í nám og komast í betri störf.
Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 18.6.2009 kl. 16:47
Og verkmenntamálin eru í algjöru rugli, svo það sé tekið fram.
Þar hvorki náðu launin é skólarnir að hanga með í "góðærinu" sem ekki skilaði sér.
Já ég nefnilega held að það væri soldið hollt fyrir okkur að snúa þessu menntasnobbi aðeins í aðra átt, menntun er yndilega en nú held ég að við séum alveg með nóg af viðskipta- og hagfræðingum svo ekki sé talað um mannfræðinga og félagsfræðinga.
Einhver Ágúst, 18.6.2009 kl. 17:04
Menntasnobbið er ömurlegt. Ég hjóp nú sjálfur á eftir þessu á tímabili en svo fattaði ég það að ég ætla og hef alltaf ætlað að vera minn eigin atvinnuveitandi og hef ekkert með skólagráður að gera.
Ég ákvað því að slá bara til og stofna mitt eigið fyrirtæki strax. Ég ætla þó að hafa örlítið örðuvísi rekstrarhætti á en margir en það er minn draumur að geta borgað starfsfólki sem hæst laun. Hvort sem það er menntað eða ekki.
Þannig fæ ég fólk sem að er ánægt með vinnuna sína og get bókað það að topp starfsfólk verður alltaf til í að vinna með mér.
Maður gerir þó reyndar ekki mikið meira en að borga reikninga í þessu efnahagsástandi en þó allavega það :)
Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 18.6.2009 kl. 17:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.