Rafmagnsstóllinn

Og rafmagnsstóllinn er þetta réttlæti hér á jörð?

Meira að segja rússarnir vondu hafa bannað dauðarefsingar.

Trúarlegt stríð Bandaríkjanna nær nú yfir hálfann hnöttinn.

En guð blessi ættingja fórnarlambanna jafnt sem gerandans í þessu máli....og það gerir hann.


mbl.is Obama leiddi minningarathöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ef þetta hefðu ekki verið hermenn sem féllu heldur aðeins almennir borgarar hefði Obama ekki haft svona mikið við.

Sigurður Þór Guðjónsson, 10.11.2009 kl. 23:28

2 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Það voru ekki bara hermenn sem féllu.

Gústi, ég styð gullnu regluna.  Allt sem þú vilt....  og líka Allt sem þú vilt ekki.....

Dauðarefsingar eru ógeðfelldar, en ég get vel skilið réttlætingu þess að það sé gert.  Stundum væri ég sjálf tilbúin til þess að dr....

Held að það gæti jafnvel verið líkn að losa mannkynið við svona úrþvætti... það er að segja siðblinda menn sem taka líf annarra með þessum hætti sem um er rætt..

Hvað ef árásarmaðurinn hefði hitt fyrir barnið mitt og skotið það, ég hef skilning á dauðarefsingu, þó að ég sé ekki beinlínis hlynnt þeim.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 11.11.2009 kl. 09:08

3 Smámynd: Einhver Ágúst

Ég hef engann skilning né sé neina réttlætingu fyrir að ein manneskja drepi aðra, hvort sem hún er ein að verki eða í hópum, eða drepi barnið mitt eða börn annara.

Við erum öll börn einhvers, svo finnst mér skrítið hvað ameríkönum eru viðkvæmir fyir að hermenn deyji, er það ekki soldið tilgangur þeirra að drepa og vera drepnir?

Ég verð sjaldan hissa ef ég brenni mig í mínu starfi, það er svona gefið.

Þsð stendur samt hvergi kæra stjúpa, "allt sem þú vilt ekki" er það nokkuð?

Einhver Ágúst, 11.11.2009 kl. 11:26

4 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Hef ekki lesið ritninguna en ef að maður gerir öðrum það sem maður vill að aðrir geri sér, þá hlýtur það að virka einnig fyrir þsð að maður geri ekki öðrum það sem maður vill ekki að aðrir geri sér.

Hins vegar stendur í ritningunni „auga fyrir auga og tönn fyrir tönn“ Hvað þýðir það.

Hvaða skilningsleysi er þetta eiginlega.....   Ef einhver drepur mig, þá er ég ekki í standi til að drepa viðkomandi, en gefi hann mér kinnhest, þá get ég lofað þér því að ég er djöfull snögg upp á lagið og sterk af konu að vera.  Spurðu bara hann       þinn.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 11.11.2009 kl. 12:34

5 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Það er rétt hjá þér, ég hef ekki lesið ritninguna, en ég hef komið í kirkju eða Guðshús eins og sumir kjósa að kalla kirkjuna sína.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 11.11.2009 kl. 12:35

6 identicon

Óbama  viðurkennir  að  vera  múslími  á  þessu  youtube  myndbandi.

Hann  hlýtur  að  vera  hæst  ánægður  með  ,,Jihad  afrek"  Hasans majórs.

http://www.youtube.com/watch_popup?v=tCAffMSWSzY#t=28

Á  þessari  slóð  kynnir  majórinn  Íslam  á  ,,power point"  og  ,,Jihad"  hugmyndafræði  íslams.

http://www.washingtonpost.com/wp-dyn/content/gallery/2009/11/10/GA2009111000920.html

Skúli Skúlason (IP-tala skráð) 11.11.2009 kl. 16:37

7 identicon

Það er nú bara einfaldlega þannig að sumir glæpir verðskulda dauðarefsingu.  Styð dauðarefsingu í mörgum tilvikum, það er fáránlegt að skattar fólks fari í kostnað við að halda þessum aumingjum á lífi.

Baldur (IP-tala skráð) 11.11.2009 kl. 16:49

8 Smámynd: Einhver Ágúst

Er þeta alltaf sami Baldurinn? Fer að verða orðatiltæki í mínu lífi, þú ert nú meiri Baldurinn....

Einhver Ágúst, 11.11.2009 kl. 21:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband