"Grasrótarhreyfing stofnfjáreigenda"

Ógeðslegt hugtak sem virkilega skrumskælir þetta orð sem notað hefur verið um róttækt ungt fólk og starfsemi inna stjórnmálaflokka,  en mest bara fyndið.
mbl.is B-listi með þrjá menn í stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ferskur blær

Ungir eitthvað í einhverjum stjórnmálaflokki sem leyfa sér að efast um leiðtogana sína og jafnvel gagnrýna þá, það þykir mér spennandi kostur.

Svo að feminismanum, það þarf að berjast fyrir réttindum kvenna, það er bara þannig.

Það að það rísi svona margir karlmenn upp og mótmæli kvenréttindabaráttu sannar svo málið.


mbl.is Ósátt við kynjaskiptingu í ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Menn með brjóst og konur með skegg

Gaman að þessu, leiðinlegt að láta bíta sig i brjóstið, leiðinlegra þykir mér að vera með brjóst yfirleitt.

Einn brjóstgóður


mbl.is Beit dyravörð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það sem ekki drepur mann

Ég verð alveg illa vinstri grænn þegar ég les svona, vona að við séum ekki að gera þessa jarðkúlu óbyggilega fyrir afkomandur okkar með græðgi okkar og leti, en sá grunur læðist samt að mér.

Svo huggum vð okkur við að flokka rusl sem ekki er endurnýtt, og hver er búinn að gleyma kolefnisjöfnun bankanna?

Við erum snillingar.


mbl.is Mikil svifryks- og ósonmengun í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Almennt frekar hlynntur hefðum?

Gullsetning frá lítið breyttum formanni framsóknar sem þykist svo mikið endunýjuð en er samt bara alveg eins?  Svona frekar almennt orðalag sem samkvæmt hefðum er notað til fyrirsláttar og sem undankomuleið seinna ef maður skyldi vera staðinn að að segja einhverja vitleysu. Hann kann þetta strákurinn, hoppar inná þing fullmótaður í gamalt form. Semsagt engar breytingar.....


mbl.is Þingmenn læra góða siði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heróín spilafíknarinnar

Spilakassar eru hliðstæða heróíns í spilafíkn, póker er svo rauðvínið, fólk sem spilar póker lítur niður á spilakassaliðið.

En vangaveltan er ef heróín er ólöglegt og spilakassar löglegir, hví er þá rauðvín löglegt og póker ekki?

 


mbl.is 3.000 milljónir í spil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rétthugsun eða réttlæti?

Fatty er vissulega ekki fallegt viðurnefni en að sótthreinsa heiminn af öllu óþægilegu mun ekki ganga og er hreinlega fordómafullt.

Í vikunni sem leið var anti megrunar dagurinn og viku seinna koma þessa sláandi fréttir.

Við erum fyndið fólk mannfólkið, væri örugglega fyndið að vera geimvera og finna okkur, margt sem kæmi mér á óvart. Við erum að pæla í svo undarlegum hlutum oft.

 


mbl.is Finnur frækni látinn grennast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég vel að fagna þessu

Ég vel að fagna þessu og ákvað að trúa þessum mönnum, Steingríkmur hefur ekki verið staðinn að miklum óheiðarleika sem stjórnmálamaður og er ekkert að fara að byrja á því núna.

En jafnframt veit ég að þetta þýðir að það á eftir að borga reikninginn og það eru húsnæðiseigendur sem þurfa að borga ásamt launamanninum litla. Ekki eru Jón Ásgeir og Björgúlfarnir að fara að borga krónu, það er nokkuð ljóst.

En þetta með sveigjanleikann er rétt og getur munað miklu.

Ég er sveigjanlegur í dag og vel að vera bjartsýnn, eitthvða segir mér að það borgi sig fyrir mig og þá sem í kringum mig eru.


mbl.is Það versta mögulega afstaðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gríðarlega útbreitt félagslegt vandamál

Tannhirða er það fyrsta sem rýkur út hjá fólki vegna fátæktar, margir hafa ekki efni á að senda börnin til tannlæknis og fjölmörg dæmi þekki ég um að fók steinhættir að fara til tannlæknis eftir 16 ára aldur.

Ég var sjálfur einn af þeim og er að glíma við þann vand í eiginn ranni nú, um daginn talaði ég við mann sem hafði rifið sjálfur úr sér 3 tennur sem voru að kvelja hann, margir ganga um með mikla verki og afskaplega lága sjálfsmynd vegna þessa heilbrigðisvandamáls.

Þarna þarf að leiðrétta málin.


mbl.is Sofna ekki án verkjalyfja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

3ja mánaða hausverkur

Það virðist ekki mega segja neitt ljótt um kaffi, fólk er bara frekar pirrsa yfir þessu.

Ég er hættur að drekka kaffi, til að byrja með hætti ég að drekka kaffi fyrir 3 árum þegar ég hætti að reykja, bara svona til að vera viss, því að kaffi og sígó voru miklir vinir.

Það sem gerðist í mínu tilfelli kom mér innilega á óvart, nikótínfráhvörfin voru slæm í viku, með svefntruflunum og hálfgerðu flensuástandi og miklum hausverk. Eftir viku hurfu öll einkennin nema hausverkurinn og varð hann viðvarandi í ca 3 mánuði, ég ræddi við marga og komst að því að fólk fékk oft hausverk ef það fékk ekki kaffi strax á morgnana.  Eftir 1 og 1/2 ár fékk ég mér kaffi og féll fyrir tóbakinu 2 tímum seinna.

Nú er ég aftur hættur að reykja og drekka kaffi og er að upplífa sama hausverkjatímabilið aftur.

Kaffi getur ekki verið hollt að neinu leyti, engin næringarefni og eitthvað örvandi efni til að halda sér vakandi og ljúga líkamann til. Og það skrítna er að fók er voða hissa almennt að maður hafi hætt að drekka kaffi, það þykir undarleg uppátekt hjá kaffielskandi Íslendingum.

Dauð svæði veit ég nú ekki um svosem, ætla nú ekkert að vera að þykjast vera gáfaðri en kaffidrykkjumenn almennt, en kannski maður geti gripið í þetta í rökræðum í framtíðinni þgar manni finnst á mann halla?  Fyrirgefðu en drekkur þú kaffi?  heheheh

 

 


mbl.is Kaffi skaðar heilann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband