1.5.2009 | 17:00
Fallegt Baul!!
Mikið var það gleðilegt að heyra baulað á þennan plebba í dag, og að hann vogi sér að tala fyrir hönd verkalýðsins og fullyrða að við eigum að fara í ESB er hreinlega napurlegt og sorglegt.
Hann var djúpt í þessu öllu saman og vissi meira en ég og þú, hann vissi hvað allir leiðtogar undirfélaga ASÍ hafa í laun hvernig hann og aðrir léku sér með lífeyri okkar allra er mjög slæmt og hrikalegt tap sem við höfum öll orðið fyrir.
Að vita ekki sinn vitjunartíma er svosem eitt að að ganga lengra og fara að tala um ESB er alveg ömurlegt, þeir sem ekki bauluðu bölvuðu í hljóði og skömmuðust hvert í öðru, það er eldra fólkið sem er ekki vant að láta heyra í sér.
![]() |
Nýjan sáttmála um stöðugleika |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.4.2009 | 23:13
Með ólíkindum..
Þarna erum við að tala um eitt af flaggskipum Bandaríkjanna fyrr og síðar og það er farið í þrot, og er að falla í eigu erlends fyrirtækis.
Algjörlega ótrúlegt og kannski sterk vísbending um það sem koma skal, erum við að horfa á algjört hrun Bandaríkjanna eða mun Obama leiða þá inná braut lítillætis og auðmýktar og syndaaflausnar einsog hann boðar þessa dagana.
![]() |
Chrysler í þrot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
30.4.2009 | 13:18
Eigandi moggans auglýsir bónusinn sinn...
![]() |
Samherji umbunar starfsmönnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fullkomið væl, allir væla, þingmaðurinn sem fáir vilja vælir undan einelti, hagsmunahópurinn sem ekki vill hann en hvetur kjósendur annar flokka til að strika hann út til að ógilda atkvæði vælir og svo les ég þessa frétt og hlæ. Mikið er lífið furðulega yndilegt.
Árni Johnsen er og verður þingmaður.
![]() |
Fásinna að útstrikanir hafi verið skipulagðar í Árborg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.4.2009 | 13:07
Segja myndirnar ekki nóg?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.4.2009 | 14:20
Hirðfífl og puntudúkka
Þessi gæi er alveg ferlegur og ekki orð að marka hann, það hefur hann sannað, því spyr ég hvers vegna velja sunnlendingar sér lygara sem málsvara?
![]() |
Björgvin G.: Mögulegt samkomulag vegna ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
26.4.2009 | 13:56
Enginn sigurvegari?
Samkvæmt þessu kusu 15% að kjósa ekki yfirhöfuð, það er mikið vægi og hefði geta breytt heilmiklu, þar tel ég tap atkvæða Sjálfstæðisflokksins hafa vegið þyngst. Þeir sátu heima brúan þungir margir hverjir og gengu hálf skömmustulegir um göturnar.
Ofsalega er það sorglegt að heil 15% þjóðarinnar láti sig engu varða hvað verður um stjórn landsins, og leiðir það líkum að því sem er soldið skemmtileg pæling að enginn raunverulegur sigurvegar sé kannski í þessum kosningum nema vera kynni við í Borgarahreyfingunni.
En þeir sem telja sig sigurvegara skulu gæta sín, það er mikið og óvinsælt þjóðþrifaverk framundann, skattahækkanir og niðurskurður einsog aldrei hefur hér sést áður. Tiltekt í hinu opinber kerfi og einkageiranum, þar eru margar visnaðar greinar sem ber að skera af svo sprotarnir geti blómstrað og nýtt þjóðfélag hafist hér handa við uppbyggingu og endurreisn þess sem vert er að endurreisa.
Sjálfstæðismenn ganga svo langt að kenna síðustu tveim formönnum flokksins um hrun flokksins, ss DO og GH bera ábyrgðina en núna eru þeir vissir um að hafa valið rétta leiðtoga þegar þeir tapa, það er nú skrítinn málatilbúnaður sem ætti heima í gamanþáttum. Minnir á þegar Brian Clough kom inn í klefa í hálfleik og það eina sem hann sagði við liðið sitt var "Sorrí strákar ég valdi vitlaust lið".
En alveg sama hvað hver segir þá tapaði Sjálfstæðisflokkurinn gríðarlegu fylgi og það meira segja í heimavelli sínum Garðarbæ, samt sem áður er hann hér einna stærsti flokkurinn, þann flokk kýs fólk sem er með eindæmum þröngsýnt, illa upplýst og visst um eigið ágæti, fólk sem er ekki tilbúið að gefa upp á bátinn þá hugmynd um ofsagróða og markaðshyggju.
Framsókn nær einhverri ótrúlegri uppsveiflu, með tilstilli bílasala og markaðsmanna dauðans hefur þeim tekist að ná sér í vinsældir á ný, þrátt fyrir fáránleg loforð um álver og einvher jarðgöng um allt einsog við séum bara vaðandi í monní hér á skeri. Nú síðast var hlegið að Höskuldi Þórhallssyni á Reyðarfirði á miðvikudaginn þegar hann lofaði flokkinn og fortíð hanns og framtíðarframkvæmdir á vegum framsóknar á Bakka, salurinn hlóa að honum. Þegar fólkið var innt eftir ástæðu hlátursin svaraði það því til að forstjóri ALcoa hefðoi verið hjá þeim daginn áður að segja sorgarfréttir að minnlun framleiðslu, uppsagnir næturvakta og hann fullyrti að það yrði ekki byggt álver í HEIMINUM NÆSTU 3 ÁRIN!!! Þið eruð búin að kjósa Guðmund Steingrímsson á þing, takk fyrir það líka.
Samfylkingin siglir flautandi í gegnum kosningu á bakinu á Jóhönnu, flautandi sakleysislega einsog pjakkurinn í teiknimyndunum sem er nýbúinn að brjóta rúðu með slöngubyssunni sinni. Og inn fer Björgvin G, einn skipulagðast lygari íslenskrar stjórnmálasögu, maður sem trekk í trekk laug að þjóðinni og gerði ekkert gagn sem ríkjandi bankamálaráðherra, sorglegt........og í ofanálag felur Samfylkingin bókahald sitt með stuðningi Sjálfstæðisflokksins, kannski er eina lausnin á þeirri leynd að öll fyrirtæki landsins fari á hausinn svo upplýsingarnar "leki" úr skrokkum þrotabúanna einsog olía úr skipshræi. Já fátt er svo með öllu illt.
VG fá mun verri kosningu en þeir og aðrir bjuggust við, það er reyndar frekar undarlegt þar sem þeir eru heiðarlegur og tiltölulega óspilltur flokkur en það er víst ekkert vinsælt á Íslandi þarsem alltof margir kjósa með veskinu og eigingirninni......þeir hefðu mátt vita það að samkvæmt Lacan sannar Jókerinn fíflsku sína með tali um jöfnuð og réttindi sem ekki ganga upp samkvæmt neinni formúlu heldur bara í útópískri hugmynd hanns sjálfs sem kostar þjáningar annarra, á móti Jókernum sem er kaldur skíthæll og meðalmaður en bara af miklu meiri krafti en við hinir og það er hann tilbúinn að viðurkenna BLÁkalt...
Já gaman að þessu......
![]() |
Nýtt Alþingi Íslendinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.4.2009 | 12:51
Ódýrir þingmenn sem eru ekki til sölu
Til hamingju með þessa glæslegu kosningu kæru vinir mínir...nú eru kannski nýr tímar framundann.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.4.2009 | 14:30
Setjum öryggið á O-ddinn
Nú er mikill meðbyr með Borgarhreyfingunni í samfélaginu, á næsta sólahring ákveða margir sig og í ljósi nýlegra kannana getur fólk treyst því að atkvæði til okkar í Borgarahreyfingunni er ekki sóun heldur trygg leið til að raddir okkar nái inn til þessara haáu herra sem þarna starfa.
Á morgun verður hér breyting í hinu pólitíska landslagi, breyting sem mun koma okkur öllum til góðs til langs tíma, látið hræðsluna ekki stjórna lengur komum á breytingum hér til að byggja nýtt og réttlátt þjóðfélag.
![]() |
Stjórnin heldur enn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.4.2009 | 20:52
Eru börnin með álpappír í hárinu?
Þetta er svo sorglegt að sjá, fók sem gerir sig að fífli fyrir peninga. Og þessi fréttaflutningur er alveg kostulegur af síðu sem ítrekað laug um og talaði niður fjölda fólks í mótmælum á Austurvelli, kallar þennna litla hóp "hundruði" í fyrirsögn, skammarlega léleg blaðamennska.
Þúsundir atvinnutækifæra? Er Halldór Ásgríms mættur aftur? Hvaða rugl er þetta?
![]() |
Hundruð slógu skjaldborg um Helguvík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þetta er að verða frekar þreytt ,hvað afsakar svona vitleysu? Ekki er það stóraukinn afbrot, fyrir því hef ég ekki séð neinar tölur og hvað þá að það sé eitthvað meira á ábyrgð útlendinga.
Aðeins hörðustu þjóðernissinnar halda öðru fram og það er að myndast þannig stemmning hér á landi, annaðhvort ertu sossadjöfull sem vilt ganga í "sovétríki" nútímans ESB eða þú verður að vera kristilegur hægri þjóðernissinni sem flokkar fólk eftir þjóðerni og vilt ekki skoða hugmyndir annara, hvorugur hópurinn er sáttur við að hlusta á rök hins og það er lítið um málamiðlun.
Eina sem hefur aukist er að lögreglan hefur ná meiri eiturlyfjum, eiturlyf hafa ekki aukist heldur hefur meira náðst.
Útlendingum hefur fjölgað á íslandi og hlutdeild þeirra í glæpum að sama skapi, svona einsog í eiturlyfjasmyglinu 1 útlendingur á móti 5 íslendingum, og þessi auglýsing sem er nú margendurtekin um "útlendingslega" menn elur á mannfyrirlitningu og hatri, sérstaklegaq þarsem það fylgja með myndir og algjör óþarfi að lýsa fólki ennfrekar.
Ég hef einmitt búið á Akureyri og þykir afara vænt um þann stað enn þar kynntist ég þessu frá fyrstu hendi hvernig "utanbæjarmenn/útlendingar" eru hanteraðir á Íslandi, fræg er frétt af maríjuanaræktun í hafnarfirði um árið þegar bæjarverkfræðingur taldi fullvíst að um utanbæjarmenn hafi verði að ræða.
En einsog frétt af Arnarnesinu í þessari viku sýnir þá viljum við síður viðurkenna að um okkar eigin börn sé að ræða.
Við vildum að útlendingar kæmu hér og ynnu alla þá leiðinlegustu og óþægilegustu vinnu sem við þurftum að láta inna af hendi án þess að við yrðum þeirra vör, það er því miður ekki hægt nema með þrælabúðum og að drepa svo vitnin.
Fólk er fólk alveg sama hvaðan það kemur og einsog hefur verið sagt um innflytjendur í nýlegri baráttu, það er ekkert til sem heitir ólögleg manneskja það á líka að gilda í ufjöllun fjölmiðla og opinberra aðila svo sem lögreglunnar.
Þó að við búum hér við alheimsverndarstefnu NATO og séum þar í raun einsog blóm í eggi þá megum við ekki falla í þá gryfju að dæma þjóðir sem lifa nær nató línunni og hafa átt erfiða æfi og með stríðshörmungum og fátækt. Það eru rauninni okkar hagsmunir og stanslausa velferðarkrafa sem skapa flest þessi stríð því að með heimsvaldastefnu Ameríku og Breska konungsveldisins erum við að kúga aðrar þjóðir til að framleiða fyrir okkur vörur sem ódýrast og jafnvel arðræna ríki af þeirra náttúruauðlindum, við erum sjálf að lenda í því núna og hvað ætlum við að gera?
Ganga í ESB? Ekki ég takk fyrir, nató hefur sýnt okkur nóg um hvað hlýst af svona bandalögum.
En að stimpla manneskju fyrir þjóðerni þeirra, sleppum því bara.
Við verðum að kjósa um þetta annars næst aldrei sátt, ég tel persónulag að okkur sé best borgið utan ESB þar mun evran hrynja inna skamms og eftir 2 ár verðum við komin á ról með þessum þjóðum aftur þó við séum utan ESB.
En einsog ég segi kjósum um þetta og tökum þeta úr höndunum á valdagráðugum stjórnmálaflokkum þarsem þeir hafa ekker tum þetta að segja í raun og veru og í raun fáránleg að armar valda í þessu þjófélagi ætli að hagnast á þessari umræðu og segir kannski mikið um hve illa er komið fyrir þeirra hugmyndafræði að þurfa að stilla þjóðinni upp hvert gegn öðru á eins ósmekklegan og sundrandi hátt sem raun ber vitni.