Örvænting

Nú er hann orðinn örvæntingafullur kallinn, lítur ekki vel út hjá honum og þá á að fara að segja satt fyrir kosningar er það ekki bannað?

Auðvitað er allt að fara niður hér aftur það gefur augaleið þarsem hér eru einhver jöklabréf virði hundruða milljarða sem vilja fara, og króna sem er einskis virði.

Við verðum að vera klár í að herða ólarnar hér og vera sjálfum okkur næg um mat og húsaskjól. Þetta verður allt í lagi og við plummum okkur það er mín trú og við munum vonandi nýta tímann á meðan til að byggja nýtt og réttlátara samfélag þarsem ekki er eins auðvelt að traðka á öðrum og eignast hlutina með klíkuskap og spillingu að hætti Framsóknarflokksins.

Og fara gegn vilja þjóðarinnar með NATO og að samþykkja stíð í fjarlægum löndu í okkar nafni.

 


mbl.is Sigmundur Davíð spáir öðru hruni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borgarahreyfingin endar í 12%

Það hefur verið mín trú síðan ég bauð mig fram á lista Borgarahreyfingarinnar að við myndum enda með þetta 10-12%, nú er kominn sökkull undir þá trú mína og fólk getur séð að atkvæði á okkur er ekki sóun því við munum ná 5% markinu allaveganna.

Kjósið breytingu og verið opin fyrir nýjum hlutum, hversvegna starfa t.d. Þing eftir Sauðburði og því hvenær reiðfært er milli kjördæma, eru þingmenn ekki á launum allt árið?

Þjóðin velur um inngöngu í ESB hvort eð er afhverju eru stjórnmálaflokkar að gera það að sínu máli? Þeir hafa ekki það vald lengur.

Það verður erfitt framundan, og Borgarahreyfingin er ein um að hafa talað um það í aðdraganda þessara kosninga, ekki innistæðulaus og heimskuleg loforð um störf og peningaaustur í framkvæmdir. Stjórnmálamenn eiga ekki að hafa vald til að lofa svona hlutum, í litlum bæjarfélögum og litlu landi kallar það á spillingu Möllerar og Johnsenar séu með völd til að ráðstafa peingum okkar fyrirfram í kosningum, þetta er ekki Freemans eða CAse listinn og komið nóg af svoleiðis pólitík.

Ég vil persónulega útrýma svetiarstjórnarkosningum og spara þannig stórfé og tíma, það er hvort eð er kosið kjördæmaskipt svo það geta bara verið sveitarstjórnirnar líka eða þingmenn geta unnið að sveitarstjórn í sínu kjördæmi. Þetta er mál fyrir stjórnlagaþingið að afgreiða.

Hættum að vera hrædd, við eigum mat og húsaskjól og það er enginn að fara að taka það af okkur, Sjálfstæðismenn eru ekki að hlera neinn í dag, Sjálfstæðismaður rekur þig ekki úr vinnunni á morgunn vegna þess að þú kaust vitlaust. 

Veldu framtíðina og veldu hag barnanna okkar settu X við O

 

 


mbl.is Dregur saman með flokkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við samþykkjum vatnspyntingar

I skjóli NATO og öryggisráðsins sem okkur langaði svo að vera með í  fremja USA þessi óhæfuverk, með fullum stuðningi mínum og þínum, eruð þið ánægð með það? Ekki ég, ég vil ekki að menn sem ég þekki séu vopnaðir að drepa fólk í Afganistan í mínu nafni, við höfum ekkert með það að gera að stjórna aöðrum löndum og ráðast þar inn með okkar skoðanir og "siðferði" að leiðarljósi.

Bandaríkin áttu sína blóðugu og eiga sína blóðugu sögu allt til dagsins í dag, Evrópa hefur ekki alltaf verið til friðs né einhver fyrirmynd fyrir aðrar þjóðir.

Ógeðslegar aðferðir sem ekkert getur réttlætt, við verðum að kjósa gegn svona löguðu á laugardaginn og það gerum við aðeins með því að kjósa VG eða okkur í Brgarahreyfingunni.

Gleðilegt sumar


mbl.is Rice samþykkti vatnspyntingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loðinn um lófana gaf hann loðin svör

Alveg merkilegur náungi, langaði ekki að skipta við hann en merkilegt hvað hann var kúl.

Finnst allt eðlilegt sem hann hefur gert og finnst þetta bara ósanngjarnt, hvar er nú Bíbí sem hefur vælt undann Guðlaugi og hanns penínagamaskínu í 2 ár?

Þvílíkt afhroð sem maðurinn hefði beðið ef það hefði ekki verið fyrir afskaplega fölann Össur og passívar Svandísi, skil svosem Össur þarsem hann getur lítið sagt um þessi mál, hann hefur líka fengið MIKINN pening.

En Guðlaugur slær samt öllum við og að halda að einhver trúi því ða þú fáir milljónir frá Jóni Ásgeiri án þess að hann vilji eitthvað í staðinn eða Bjöggunum? Heldurðu að við séum fífl?

 


mbl.is Segir 40 aðila hafa styrkt sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlega erfið málsvörn

Þetta er allt saman farið að hljóma soldið kunnuglega, og allt í einu rann þetta upp fyrir mér.....hér fylgja tvær sterkar samlíkingar við kosningabaráttu dagsins í dag.

Fyrst er það Framsókn í líki Nixons (reynda soldill DO í þessu líka)

"I am not a crook" sagði Richard Nixon

http://www.youtube.com/watch?v=ZmjMa2hLXpc&feature=related

En best er nú hvernig Sjálfstæðisflokkurinn endurvinnur lélegasta kosningaloforð mannkynssögunnar og treystir því að við séum fávitar, takk fyrir það.

"Read my lips" sagði George Bush eldri!!

Mikið verður gaman að sjá Guðlaug Þór annað kvöld, er verið að photoshopa hann útúr plakötum Sjálfstæðisflokksins?

Mætir kannski Birgir Ármanns fyrir hann, það kæmi mér ekkert á óvart, Guðlaugur er ekki alveg að slá í gegng þessa dagana.

http://www.youtube.com/watch?v=CP9_kkzfN-w


mbl.is Háir styrkir frá Baugi og FL
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bragð er að þá barnið finnur

Mikð er þetta hressandi maður, maður sem er að leggja eitthvað á sig í engum fjárhagslegum eða pólitískum tilgangi, heldur hjálpsemi og náungakærleikur.

Gullfallegt Helgi og haltu áfram, okkur veitir ekki af jákvæðum fréttum og að beita þessa lífeyrissjóði þrýstingi.....


mbl.is Hugsjónamaðurinn Helgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðivík?

Glæsilegt, fiskiskipin okkar eru til margs nýt...

En ansi skrítið að lögreglustjóri segist rannsókn hafa staðið yfir í langann tíma ef það var fiskiskip sem sagði til þeirra fyrir rest, frekar slök rannsókn það en engu að síður mikið þrekvirki í löggæslunni.

Samt soldið svakalegt hvað það þarf marga menn og mikla tækni til að taka 6 menn, 100 manns er nú soldið ójafn leikur og svakalega dýrt líka. En vissulega 109 kíló tekin svo það er mikið unnið að höggva svoan stórt skarð í salana.

 

 


mbl.is Fiskiskip lét vita af skútunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Andlit PR mennsku og undirförli

Til hamingju Þór!! Pr menn eru í miklu uppáhaldi hjá mér, gamlir afdankaðiur frétamenn í framboði og svona lúðar sem taka hér þátt í sukkinu bullinu og lygunum gegn ákveðinni þóknun.

VAr á tali hjá Eggert Skúla? Nei ég meina á ekki maðurinn að missa vinnuna, er hann ekki að vinna hjá hinu opinbera, hvers erinda gengur hann þessu máli kjósenda eða sjálfstæðisflokksins?

Algjörlega siðlaust og óprúttið, skil Atla vel að hafa reiðst í gær.......þetta er skítlegt

 


mbl.is Tengist ekki endurreisnarhópi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og nú kemur undiraldan, O-listi Borgarahreyfingar 12% um helgina

Nú er fólk að vakna, nú farið þið að sjá að atkvæði ykkar er ekki kastað á glæ með því að kjósa breytingu.

Breytingu á starfsháttum, hugarfari og framkvæmd......Alþingi sem vinnur ekki eftir sauðburðartímum og hvnær er reiðfært um landið, stjórnmál sme ekk snúast um framapot, völd og peninga.

Fólk sem vill komast iná Alþingi til að tryggja að hörmungar síðasta hausts endurtaki sig ekki, svo lygarar lofi ekki rándýrum loforðum hér á 2ja ára fresti sem keyra okkur í gjaldþrot.

Við tölum elkki óábyrgt um dýrar framkvæmdir sem viði ekki höfum efni á....

Við viljum landi okkar og börnum bjarta framtíð og það sem kannski skiptir mestu máli, við erum ekki stjórnmálamenn..

 


mbl.is O-listi fengi fjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar talar ærulaus maður sem ærir óstöðugann

VG skipulagði ekki mótmælin Björn og hægri bláir látið mig í friði ef þið gerið sjálfkrafa ráð fyrir því að ég styðji vinstri græna, ég er í framboði annarsstaðar og stend fyrir alvöru breytingum.

Það þarf að breyta stjórnarskránni okkar, hún leiddi okkur í þessar ógöngur, stjórnsýsla þessa lands er í molum svifaseint kerfi sem er ormétið af spillingu og vinargreiðum í formi stöðuveitinga.

Björn það er að verða sorglegur viðskilnaður þinn við stjórnmálin, tókst þátt í versta skipbroti þjóðarinnar, sérð ekkert rangt við spillingu og mútur og þykist svo allt í einu vera málsvari heimilanna og stjórnarskrár íslands, var svosem ekki við öðru að búast þar sem slektið þitt er vant því að geta valsað um og brotið mannréttindi fólks hér hægri vinstir með ofbeldi og hlerunum án þess að það hafi neinar afleiðingar.......eða hvað?

 

Hvað ætli sé að gerast núna?


mbl.is Myndi fagna þúsund ræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband