17.4.2009 | 13:41
Tónaðu þig niður Bjarni minn
Mikið er Bjarni duglegur á þingi eftir að hann hætti sem bensínssvindlari.....
Alveg ótrúleg framkoma og svakalega súrt hvað margir samt kjósa þetta fólk, en jú auðvitað eiga sægreifar og braskarar þessa lands afkomandur og svo eiga þeir moggann líka.
![]() |
Harðar deilur á Alþingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.4.2009 | 23:07
Hættið að væla
Hvaða endalausa væl er þetta? Hættið að kvart, Kristján er á margfaldri launaskráendalaust, hjá bæjum, ríki og Samherja......hvar sem er hvernær sem er.....skipasali og handbendi útgerðarbraskara.
Steingrímur vann í kvöld yfirburðarsigur í þessum umræðum.
![]() |
Segir Steingrím búa í glerhúsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
16.4.2009 | 13:16
Kardimommu-lögmálið? endurtekið efni
Hér er gömul færsla sem ég gatt ekki komist hjá að endurbirta
Fór með drengina og familíu að sjá Kardimommubæinn í gær, þvílíkt fínerí og gúmmelaði með glassúr.
Ég komst nú ekki hjá því að setja þetta í sambandi við íslenskt samfélag, og fyrst ber þá að nefna Jóhönnu Sigurðar sem Soffíu frænku, fussandi og sveiandi yfir óráðsíunni og óreglumönnum. En ekki sé ég nú Jóhönnu og Sigurð Kaupthingsbana fara að rugla saman reitum sínum neitt í framtíðinni enda enginn kemistría þar á ferð....
Kasper er svo Sigurður Kaupthingsbani, Lárus Welding er Jesper og svo er hægt að sjá Bjarna Ármann sem Jónatan hinn grandalausa og "næstum" saklausa. Að gera Bjarna að bakara hljómar vel sem og að Lárus Welding verði Sirkusstjóri en að setja Sigurð yfir FME gæti orkað tvímælis en kannski er það eina leiðin til að fá fram sannleikann? Hverjir vita betur hvað eiginlega gerðist og er það satt að allir eru góðir bara ef þeir fá tækifæri? því trúi ég allaveganna.....
Atriðið með þrjóska asnann minnti óneitanlega á þaulsetinn Seðlabankastjóra sem ég nenni ekki einu sinni að nefna en lausnin var auðvitað að setja asnann bara á vagninn og fólkið keyrði honum svo sjálft burt.
Sigurður Líndal er svo í hlutverki hins alvitra og ráðagóða Tobíasar, reyndar gerir Davíð Scheving harða atlögu að honum þessa dagana bitur úr hrunadansinum og eftir enn ein vonbrigðin.
Geir Haarde er bæjarfógetinn Bastíann, allaf léttur en vill lítið gera í málunum sökum ótta við sofandi Ljón, slær hlutunum á frest og dokar við með ofsafína frú uppá arminn, enda situr hún í flottasta fyrirtækina af þeim öllum, sem er svona nútímahobbí fyrir fínar frúr í stað þess að elda og baka.
Óttaslegnir bakarar, Hégómagjarnir rakarar og reiðir pylsugerðarmenn eru svo útum allt alveg gapandi á óréttlætinu og velta fyrir sér hvernig þeir geta tekið réttlætið í eigin hendur, kannski með því að skipta um banka eða bjóða sig fram? Erfitt að segja hvernig það fer allt saman en mér sýnist þeir nú ætla að velja bara það sama aftur mikið til......enda hefur það gefið svo góða raun.
Ljónið er spillingin og frændsemisgreiðakerfið okkar hér á þessu litla landi ásamt lífeyrissjóðunum okkar feitu og pattaralegu, þetta skrímsli þorir enginn maður að styggja á nokkurn hátt. Bara kommúnistadrullusokkar voga sér að nefna slíkt ódæði að gera atlögu að mönnum sem sýsla með mína peninga og þína og leika sér með þá á vægast sagt vafasamann hátt.
En þá eru kannski tvö mikilvægustu hlutverkin eftir, unga fólkið, Kamilla og Tommi sem leysa málin og láta sig varða um það sem gerist í kringum þau, framtíðin sjálf holdi klædd með bjartsýni og von um betri tíð........það skyldi nú aldrei vera?
Ég tek það fram að þetta eru hugleiðingar mínar í dag daginn eftir ég naut sýningarinnar með börnunum, brá þegar ræningjarnir ruddust inn og var á staðnum ekkert að vera kaldhæðinn og fullur svartsýni og vantrausts.....bara hugleiðing.
Ég er allavegann góður þegar ég fæ tækifæri til þess......
![]() |
Soffía frænka og Kasper |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.4.2009 | 20:50
Já misjafnt hafast þeir að/Sjaldan launar kálfurinn ofbeldið
Ótrúlega súrealískt og fyndið bréf, hefur verið skrítið að semja það, skrítið að hafa trú á störfum sínum þegar maður eyðir tímanum í svona vitleysu.
Sjaldan launar kálfurinn ofbeldið segir líka í málshætti.
![]() |
Hóta að aflífa hreindýrskálf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2009 | 20:31
Smjörklípa frá auglýsingastofu Sjallanna-mjög fyndið en ótrúlega rætið og merki um aðferðirnar
Þessu gríni fylgir mikil alvara, þetta var sett á netið í dag af auglýsingastofu Sjálfstæðisflokksins, menn hika ekkert.
Þau sögðu það allt og það var alveg fatalt sungu Stuðmenn um árið og það gildir enn í dag.
http://www.youtube.com/watch?v=kgxYstAYSEM
Bloggar | Breytt 16.4.2009 kl. 15:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2009 | 14:08
Sorglegt að sjá og ótrúlegar tengingar
Vel gerð frétt hjá Þóru, þarna sést vlji fólksins og hvernig almennir borgarara eru að vakna til meðvitundar, ekkert endilega hrifnir af illa klæddum pönkurum en samt með ákveðna samúð með hústökufólkinu, samúð sem á rót sína í andúð á þessum glæpamönnum sem hafa farið svona með miðbæinn okkar.
Brunahætta er lélegur fyrirsláttur fyrri að fara inn og stofna lífi fólks og limum í hættu með líkamsmeiðingum og vopnum.
![]() |
Í vegi fyrir glæsihúsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
15.4.2009 | 11:48
Hvers hagsmuna og öryggis er lögregla þessa lands að gæta?
Þetta er hið undarlegasta mál og vekur mér furðu hvaða tímasetning er valinn til verksins, laumast í skjóli svo minnst verði um þetta fjallað í fjölmiðlum og helst sem fæstir viti af þessu.
Hver á þetta hús? Eru það samson eða aðrir siðspilltir "verktakar" í þeirra stjórn sem skipulega hafa eyðilegt og lagt hús í eyði í miðbænum til að skapa sér meiri peninga og völd. Stundum með hjálp handrukkara og misyndismanna einsog frambjóðandi okkar í Reykjavík Norður Þráinn Bertelsson var duglegur og raunar einn um að benda á hér meðann allt lék í lyndi hann skrifaði um þetta greinar og þorði að fjalla um hættuleg mál meðan það var verulega óvinsælt að tala neikvætt um þessa mætu menn sem hér réðu öllu leynt og ljóst, með mútum til stærsta(hahahah í þátíð) stjórnmálaflokks landsins og tilheyrandi fyrirgreiðslum og spillingu.
Er þetta það fyrsta sem þarf að gera? Tæma tómt hús af fólki sem ætlar allaveganna að nota það til einhvers gagnlegs, hlúa að hvort öðru og gefa mat og upplýsa hvort annað um hina hlið málanna. Mikið finnst mér það undarlegt, hefði ekki bara verið fínt að fá þarna félagsmiðstöð hugandi fólks, þó það klæði sig undarlega og hafi undarlegar skoðanir þá hefði kannski bara eitthvað gott komið útúr því, kannski höfum við öll gott af að heyra mismunandi skoðanir og sjá hvort þar sé eitthvað að finna sem færir okkur saman að eihverskonar sannleika og sátt í frekar sundruðu og lömuðu þjóðfélagi dagsins í dag.
En nei vélsagir og táragas, fjöldahandtökur og peningasóun Lögreglustjóra, og hvar er Dómsmálaráðherra?
![]() |
Komnir upp á aðra hæð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.4.2009 | 15:17
Til hamingju kæru landsmenn!!
Nú höfum við í Borgarahreyfingunni skilað inn listum með meðmælendum og frambjóðendum fyrir alþingiskosningar á Íslandi 2009, mikilvægustu kosningar Íslandssögunnar jafnvel.
Með þessu trúi ég að komið sé fram framboð sem býður uppá óspillt val, val um að setja í gang breytingar hér á landi, róttækar breytingar sem munu gagnast börnunum okkar og framtíð þessa lands.
Svo ekki sé talað um að velja ódýrustu þingmenn sem völ er á í þessum kosningum, fólk einsog mig og þig.....sem með mikill vinnu hefur tekist að koma þessum listu til skila og setja saman lista af frambjóendum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.4.2009 | 15:08
Ekkert endilega? Mjög fyndið....mjöög
Hvenær drepur maður mann og hvenær ekki? Tífaldir styrkir á við önnur stjórnmálaöfl, hundraðfaldir á við hvað er löglegt viku seinna og algjörlega frá subbulegustu og siðlausustu fyrirtækjum Íslands fyrr og síðar.......ok gefum þessu séns bara.
Ertu vitlaus manneskja? Eða haldið þið að fólk hér í landi séu algjörir fávitar, þið talið hvert oní annað eitt segist vilja uppgjör og þú dregur í efa að nokkuð siðlaust eða slæmt hafi gerst ég meina hver getur réttlætt að eyða atkvæði sínu í svona vitleysu ómútað eða ólyfjað hreinlega.
![]() |
Erla Ósk: Ekki endilega vafasamt athæfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.4.2009 | 14:40
Hverjum á að endurgreiða?
Þetta er svo ógeðslega fyndið, siðblindur risaflokkur blindaður af græðgi og rotinn í gegn af hagsmnapoti og frændsemispólitík.
Og hverjum á að greiða? Þessum gjaldþrota fyrirtækjum? Ríkinu? Þetta er svo skítugt allt saman og svo verður einhverju 3 mönnum fórnað fyrir "málstaðinn" og hinir standa hjá og þykjast ekkert hafa vitað. þvílíkt rugl og þessum ósóma sinnst 30% þjóðarinnar allt í lagi að taka þátt í, hvað er að gerast hér? Þið verðið að hugsa sjálfstætt, það er ekki ávísun á sjálfstæða hugsun að kjósa sjálfstæðisflokkinn......
![]() |
Þingflokkur fundar í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)