8.4.2009 | 17:05
Djásssnið mitt!!!
![]() |
Miðstjórn Sjálfstæðisflokks sat á fundi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2009 | 17:02
Lygarar og föðurlandssvikarar, og er eitthvað fleira nýtt...?
Gaman að þessum lúðum sem ekki geta einu sinni farið rét með heimildirnar sínar og eru nú búnir að ergja heila akademíu með því að falsa orð þeirra og slíta úr samhengi.
Alveg magnað hvað þeim þykir vænt um þessa stjórnarskrá og heimilin í landinu allt í einu.
![]() |
Fordæma rangfærslur í auglýsingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.4.2009 | 16:57
Lítið úrtak og lágt svarhlutfall
Ekki miklar fréttir þarna áferðinni nema vera skyldi gríðarlegt tap Sjallanna í sínu allra sterkasta vígi, 11% er heilmikið tap þannig að eitthvað virðist nú fólk vera að vakna en að það séu enn 30% þarna er mér óskiljanlegt.
En 59% af 800 er ekki mikið.
![]() |
VG tvöfaldar fylgið í Kraganum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
7.4.2009 | 21:53
HVað erum við að gera?
Við teymdum hingað tugþúsundir útlendinga til vinnu við skuldasöfnunina okkar stóru, og rákum þá um hæl þegar við runnum á rassinn.
Og um þessar mundir erum við að reka fólk úir landi sökum þjóðernis....hvernig stenst það svona smámuni að reka fólk í pyntingar, frelsisviptingu og í versta falli opinn dauðann?
![]() |
Var rekin vegna þjóðernis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þetta er afar hjákátlegt og dapur málflutningur, þessu hefði ég haldið fyrir mig ef ég hefði verið hún eða flokkurinn hennar blessaður.
Þetta var ósmekklegt og hrikalega hallærislegt flopp hjá IGS og svo kemur aðstoðarkonan og minnir á vibbann núna......núna þegar skera á niður heilbrigðisþjónustu, menntun og atvinnuleysi blómstrar verjar svona kjánar 500 milljóna flipp útí loftið´með engum árangri.
![]() |
Engir kokteilpinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.4.2009 | 14:50
Rosa flott, endilega notum sama meðalið og sýkti okkur
Allra jafna hafa Bandaríkjamenn aukið gjaldeyrisforða sinn um 10% í stórum styrjöldum, síðustu 14 mánuði hafa þeir prentað seðla sem óðir menn og hafa fjórfaldað peningamagnið í umferð. Fjórfaldað!!!
Langar okkur að vera með í þessu?
Ég vona ekki þarsem þeir standa frammifyrir hruni dollarans, þannig að ef við tökum upp dollara á núvirði á hann eftir að hrynja aftur og þá töpum við enn meir.
Það sem við þurfum að gera er að verða fyrsta þjóð heims til að binda raunverulegt verðmæti við myntina sína, gamla hugmyndin er að nota gull.
SuS eru alltaf svo miklar dúllur, sætir verðandi alþingismenn sem venjulega gátu gert ráð fyrir að verða ráðherrar en nú gæti horft öðru vísi við.
Hér er videó, ekkert sérstaklega vísindalegt ég veit en afar einfalt og sjónrænt, skilst vel.
http://www.wikio.co.uk/video/807661
Fræðilegra, en sömu upplýsingar.
http://www.wikio.co.uk/video/807661
Og svo sem stefna, stefna sem snýst um að prenta peninga til að kaupa eigin skuldir.
http://www.theaustralian.news.com.au/business/story/0,28124,25212624-643,00.html
![]() |
SUS: Vilja Bandaríkjadal á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 6.4.2009 kl. 16:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
2.4.2009 | 13:51
Hræðilegt á að horfa
Ég eyddi tveimur tímum að mínu lífi í að horfa á þessi ósköp, mikið ofsalega er það sorglegt að horfa á valdasjúka sjálfsstæðismenn reyna að slá sig til riddara sem málsvara atvinnulauss fólks og almennings þessa lands. Þeir hafa aldrei verið flokkur fólksins heldur hafa þeir verið málsvari elítu landsins sem litið hefur ásig sem réttbornar erfingja peninga og valda þessa lands, og mikið er vandræðalegt að sjá eyðslusegginn og fjárglæframanninn Guðlaug þvaðra um skoðanir sínar í pontu, það kostar greinilega fullt af péníng að láta þennan bjána hljóma meðalgreindann og málefnalegann, og þegar ríkið er ekki að borga lengur er greinilega lítið um Eggert Skúla eða aðra ráðgjafa.
Kristján Þór með ósannar og illa rökstuddar dylgjur um að fólk sé að ganga óvarfærnislega um stjórnarskránna, þessar breytingar eru til langs tíma gríðarlega mikilvægar fyrir framtíð landsmanna, og munu koma í veg fyrir að spilling og glæpastarfsemi Sjálfstæðismanna og að hluta til Framsóknar mun ekki endurtaka sig hér.
Og að hártegja það og reyna að láta mig og aðra menn og konur sem styðja þetta stjórnlagaþing hljóma einsog okkur sé sama um atvinnulaust fólk er bara í besta lagi lélegt og lúaleg aðferð til að snúa útúr.
![]() |
Vilja vísa stjórnarskrármáli frá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
19.3.2009 | 23:49
SA reið Jóhönnu?
Soldið hlægilegt og illa upplýst hjal hjá málsvara stórmógúlanna, Vilhjálmur minn ég held að þú sért alveg svolítið langt frá að skilja hvað fólkið í þessu landi vill. Jóhanna er heldur langt komin frammúr þér þar og hefur alltaf verið, og að kalla það populisma er fáránlegt, hvað er óeðlilegt við að stjórnmálamenn séu málsvari meirihluta fólksins í landinu?
Allt þvaður um erlent fjármang og fjárfestingar og trúverðugleika fyrirtækjanna geturðu troðið þangað sem sólin aldrei skín því hún skal skína á rettláta sem rangláta, rétt einsog skuldunum rignir nú í milljarðatali yfir íbúa þessa lands efitr hamfarir þessara félagsmann þinna og stórspilltra pólitíkusa.
Lífið er yndislegt og það gæti orðið gaman að búa hér í framtíðinni ef þú og vinir þínir komið niður úr fílabeinsturninum, vertu velkominn í mannheima hvenær sem er kæri vinur aldrei of seint fyrir okkur að verða góða sjáðu bara ræningjana í Kardimommubænum.
![]() |
Atvinnurekendur reiðir Jóhönnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
18.3.2009 | 09:45
Breiðvíkursyndrome?
Þetta eru vissulega skelfilegar tölur og ótrúlegt að heyra fagmenn hafa þau orð um þetta að það komi sér á óvart, vita þeir ekki hvað þeir eru að gera?
Mér sýnist við þarna vera að eiga við sama vandamál og skapaði Breiðavíkurmálið á sínum tíma en með tilheyrandi þöggun og pukri tók það mál um 40 ár þangað til forsætisráðherra baðst afsökunar nú fyrir stuttu, afsökunar á að ákveðnum hópi drengja hafði verið mismunað og misþyrmt.
Í dag fá drengir með samskonar hegðunarvandamál gjarnan rítalín eða önnur skyld efni til að slá á einkenni ofvirkni og hvatvísi sinnar, vissulega vel meint að berja þessa drengi ekki lengur en það sem er að skapast í staðinn getur ekki varið kallað annað en faraldur.
Rítalín er í stórauknum mæli að verða eitt versta eiturlyf þjóðarinnar, eiturlyf sem gengur kaupum og sölum og í þeim hópi sem misnotar það sem er nú reyndar fyrir tilviljun samansettur að miklum hluta af "vanræðadrengjum" tíðkast gríðarlegt ofbeldi, glæpir og gríðarleg veikindi. Ekkert lyf hef ég séð sem gengur frá mönnum jafn hratt og rítalín, og þá tek ég inní myndina heróín og önnur sterk eiturlyf. Ofbeldi og ranghugmyndir eru fylgifiskur þessarar neyslu og dag hvern þakka ég serstaklega fyrir að hafa ekki alist upp á tímum þarsem ofvirkum drengjum með athyglisbrest eru gefin lyf ensog rítalín, þá hefði ekki þurft að spyrja að leikslokum fyrir mig.
En ekki heyrir maður um þetta neins staðar, í gær, bara í gær hitti ég tvo menn á förnum vegi sem hafa orðið þessu lyfi að bráð, þeir ráfa um bæinn fárveikir og leita að "lausninni", ungur drengur var nýverið dæmdur í 5 ára fangelsi fyrir að stinga bróður sinn og alla daga horfi ég uppá þessa hræðilegu veröld sem þessum mönnum hefur verið búin af þessu töfraalyfi.
Þetta er niðursoðin hraðlausn sem ekki virkar, að gefa hópi sem til að byrja með er í áhættu vegna alkóhólisma fíknivekjandi lyf er bara alveg hryllileg hugmynd og þegar lyfið er svo að sýna sig að vera eitt mest fíknivekjandi lyf sem um getur verður að grípa í taumana.
ÉG skora á fólk að fræðast, ræða málin og gera eitthvað í þessum faraldri áður en það er of seint að einhver biðjist afsökunar eftir 25 ár mun ekki gera neinum gagn sem dauður er eða hefur drepið einhvern undir áhrifum.
Að beita þessum lyfjum til að losna við vanræðagemsa er alveg eins vont og jafnvel verra en að senda menn í sveit þarsem þeir eru beittir ofbeldi.
![]() |
Mikill kynjamunur á lyfjatöku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.3.2009 | 10:03
Áfram stelpur
Þetta er ár kvenna á Íslandi, fótboltastelpurnar eru að fara í lokakeppni í Evrópu í sumar eitthvað sem körlunum hefur aldrei tekist og mun aldrei takast samt fá þeir margfalda peningaupphæðir á við stelpurnar frá KSÍ.
Karlrembusvín vilja verja svona skipanir og telja það byggja á að hæfasta fólkið er valið fremur en að einblína á kyn, eru semsagt karlmenn almennt hæfari en konur, ég segi nei. Mér funnst það í mesta lagi undarlegt að verja ójafnað vegna kyns og því miður virðist þurfa kynjakvóta og reglur til að b´rjóta niður þessa ósanngirni.
Hefur einhver ykkar velt því fyir sér að krati er stytting slanguryrðinu demókrati, samkvæmt mínum skilningi er það lýðræðissinni og hvernig getur það verið vont?
Og samkvæmt mínum skilningi á lýðræði að tryggja jafna þáttöku kynjanna í öllu þarsem konur eru nú einu sinni jafn margar og við og ekki gerum við nú mikið án þeirra kvennana í lífi okkar.
En já pólitík er svona og pólitísk hreinsun er eflaust rétt orð, en það er nú einu sinni þannig að Sjálfstæðisflokkurinn er nú búinn að fara ansi langt með að afsala þjóðinni sjálfstæðinu sem hann státar svo gjarnan af og hefur verið uppvís af að sanna svo um munar að þetta "stétt með stétt" kjaftæði er einmitt það kjaftæði.
Norðmenn eru einfaldlega eina þjóðin sem vill hjálpa okkur að svo stöddu það hefur sýnt sig, held þaðhefði þar engu skipt hvaða flokkar hefðu verið þar við völd. Norðmönnum þykir vænt um litla óþekka frænda sinn.
![]() |
Bankaráð Seðlabanka ólöglega skipað? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)