15.3.2009 | 09:19
Loksins týra!!
Mikið var að það kemur könnun með einhverjum jákvæðu fréttum, þetta og svo það að svona margir eru óákveðnir er mikið spennandi, fóki virðist vera leytandi og ég bara biðla til ykkar kæru vinir að vera með opinn huga og gefa nýju framboði sem sérstaklega er sett til höfuðs þessum algerlega spilltu flokkum okkar.
Þeir hafa sannað það með prófkjörum sínum að ekki er nú um mikla "endyrnýjun" að ræða og þarf fólk helst að vera fárveikt eða mikið laskað til að hverfa af listum þessara framboða.
Og þar mun leiða stærsta vagninn Bjarni nokkur Ben sem í október hætti sem stjórnarformaður N1 til að einbeita sér að þingstörfum, þá vissi allveganna ég að þessi afturhalds og íhaldsflokkur ætlaði að velja hann sem nýjann leiðtoga, aldrei hef ég heyrt þann mann tala um málefni en nafnið er víst fínt í svona "slektar" legum skilningi. Ef þú ert heiðblár garðbæingur kannski en varla búa 30% þjóðarinnar þar?
En fari framsókanra flokkurinn norður(yfirleitt já) og niður, þið eruð tímaskekkja og liðinn tíð, ekki eyða atkvæði í þetta drasl kæru landsmenn.
![]() |
Iðrast stuðnings við stjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2009 | 23:03
Maðurinn sem gerði ekki N1 N1
Dæmdur samráðsleiðtogi stærsta olíufélags landsins og krónuerfingi í valdaklíku Sjálfstæðisflokksins vinnur kosningu í endurreisn flokksins, hver kaupir svona?
Maðurinn sem hætti sem stjórnarformaður N1 í október eftir 2 ár á þingi til að "einbeita sér að þingstörfum" að eigin sögn, hvaða andskotans rugl er þetta?
Menn sem ekki einbeita sér í vinnunni í 2 ár eru allra jafna reknir og fá ekki meðmælabréf, en þarna eru menn verðlaunaðir fyrir lydduskap og "góð tengsl" svo ekki sé talað um flott nafn sem rímar við glæsta fortíð flokksins, það er að segja hleranir og valdníðslu gegn borgurunum.
Til hamingju og njótið þess áfram að vera einsog þið eruð og gangi okkur öllum vel.
![]() |
Bjarni: Mjög sterkur listi í fæðingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.3.2009 | 22:53
Hlægileg endyurnýjun og afelitt kynjahlutfall en hvað er svo sem nýtt við það? þetta er vilji 30% þjóðarinnar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.3.2009 | 11:28
Bréf til Ingu sem breyttist í minningargrein um Afa
Sæl Inga, mér langar að byrja á að hrósa þér fyrir hreinskilnina og að deila þessu með fólki það mættu margir bankamenn fylgja þínu fordæmi en einhverra hluta vegna gera þeir það ekki í stórum mæli. Stolt og ofsatrú á peninga sem huggun og vald yfir eigin lífi og annara virðist þar spila stórann þátt, þannig virðast peningar hafa spilað sama sess í lífi margar og vímuefni og áfengi í lífi alkóhólista og vímuefnafíkla, og þar tala ég af eigin reynslu.
Lausnin og hugarfarið virðist að miklum hluta vera sú sama hvort sem er um vímuefni eða peninga að ræða að skilja raunveruleg verðmæti og að finna leið til að gera sér, fjölskyldu sinni og í raun samfélaginu öllu gagn með framkomu sinni og gjörðum.
Mörg falleg ummæli sem þú hefur fengið og augljóst að margir hafa þurft að fara í gegnum harða reynslu til að læra hver raunveruleg verðmæti lífsins eru. Nútíma hugmyndin um peningar er líka meingölluð og gjaldmiðlar eru í raun svo nátengdir hlutabréfum að það sem Ólafur segir á í raun við peninga líka í nútíma hagkerfi, að skilja gjaldmiðla eftir til túlkunar fyrir spákaupmenn, bankamenn, lögfræðinga og stjórnmálamenn mun aldrei koma okkur þegnunum að gagni nema mjög tímabundið og þá byggt á skýjaborgum og blekkingum einsog við höfum svo áþreifanlega orðið vör við hér á landi síðustu ár og þú væntanlega ekki farið varhluta af í þínu starfi, ég man að Norðmenn spurðu mig meðan ég bjó þar hvað hefði gerst á Íslandi, hvað hefði breyst því þeir gátu ekki séð nein raunveruleg verðmæti að baki þessum vexti og þessari óraunhæfu styrkingu krónunnar.
Ég trú i því að það sé lífsspursmál fyrir okkur og raun alla "meðalmenn" heimsins að tengja gjaldmiðla aftur við raunveruleg verðmæti svo forðast megi þessa aðstæður í framtíðinni.
En þegar allt kemur til alls er það rétt að heilsan(andleg ekki síst) og hamingjan sem skiptir máli í þessum heimi.
Ég átti afa sem var sósíalisti, hann hét Kristinn Óskarsson og sagði við mig alltaf þegar ég hitti hann að byltingin kæmi og að byltingin yrði blóðug og ég lygndi augunum og hugsaði mikið geturðu nú verið leiðinlegur afi minn. Afi var lögga í Reykjavík í 40 ár, hann var allan tímann svokölluð "blá skyrt" sem þýðir almennur lögreglumaður og komst aldrei í hvíta skyrtu einsog aðrir betur hugsandi menn, hann var bitur yfir þessu, jafnframt var hann læstur inni þegar berja átti á kommunum á Austurvelli 1949 sökum þess hve sterkur hann var og líkur þóttu benda til þess að hann færi að hjálpa kommunum í slagnum, ss það var fyrirfram ákveðið að ráðast gegn fólkinu. Afi minn táraðist jafnan þegar hann sagði mér frá þessum degi í Október og Nóvember lá hann banaleguna sína á Landspítalanum á meðann allt sem hann sagði mér allan tímann kom í ljós, á meðan Byltingin kraumaði á Austurvelli lá hann og kvaddi þennann heim, ég kom oft úr mótmælum að hitta afa á meðan þetta gerðis og til ða flytja honum fréttir af byltingu án blóðs. Afi var ekkert eins ánægður með að hafa rétt fyrir sér og hann hélt, það gátum við samsinnst um að það er ofmetið að hafa rétt fyrir sér þegar svo hryllilegar afleiðingar eru fyrir marga en það var huggun að geta horft í augun á honum og fullvissað hann um að hér verður aldrei sama ástand og þegar hann ólst upp, hér búum við í upphitaðri matarkistu gat ég sagt við hann og bent honum á að með tilkomu hitaveitu og mikilla fframfar í matarframleiðslu gætum við íslendingar séð um okkur sjálf að langmestu leyti, þetta fannst mér gott og ég sá að áhyggjur hanns dvínuðu og hann brosti mildiega og sagði já þú heldur það, trúir þú þessu Gústi minn?
Já sagði ég afi ég ekki bara trúi þessu ég veit þetta.
Afi var jarðaður í byrjun Desember hann fæddist frostaveturinn mikla 1918 og dó í Kreppunni 2008 eftir langa og viðburðarríka ævi, hvíldu vel afi minn, hvíldarinnar unnir þú þér ekki hér á jörð, nú er komið a þér.
Úff, þetta kom alveg óvart og varð kannsksi svolítið langt en enhvernveginn fannst mér þetta hafa með þína sögu að gera.
Gangi þér og þínum vel.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.3.2009 | 15:45
Magnað tækifæri frá frændum vorum
Þessi kona er búin að leggja líf sitt og limi í hættu til að berjast gegn spillingu einsog þeirri sem hér hefur viðgengist, hún er gríðaröflug og þorir meðan aðrir þegja.
Ég fylgdist með henni á meðann ég bjó í Noregi og hef heillast af hennar störfum, hún hefur lent í stærri fiskum en við erum að eiga við hér og það er ótrúleg lukka að fá hana þó ekki sé nema bara sem ráðgjafa, og svo ekki sé talað um hennar tenglsanet í þessum flókna heimi sem fjármálaglæpir eru.
Takið samt eftir orðum hennar um 20-30 manns sem þarf til að rannsaka þetta, hvað eru þeir margir hér? Þrír ef ég man rétt, það gefur strax til kynna tregðuna við þessa rannsókn enda varla hægt að láta fólk sem beinlínis tengist þessu öllu saman vera að rannsaka maka sína og frændur.
En Eva Joly er vonarglæta í þessu öllu saman og svo er bara að bíða eftir kvörtunum Sturlu og Hannesar undann norskri afskiptasemi, það væri voðalega passandi núna.
Ég hugsa að þessi mæta kona hefði nú vart mætt hér í boði Geirs Haarde enda hefði hún bara farið að leita að sökudólgum, hún erhér fyrir tilstilli norskra stjórnvalda sem vilja aðstoða okkur í þessari erfiðu stöðu og fyrir það ber að þakka.
![]() |
Eva Joly ráðleggur ríkisstjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.3.2009 | 13:07
Kardimommu-lögmálið?
Fór með drengina og familíu að sjá Kardimommubæinn í gær, þvílíkt fínerí og gúmmelaði með glassúr.
Ég komst nú ekki hjá því að setja þetta í sambandi við íslenskt samfélag, og fyrst ber þá að nefna Jóhönnu Sigurðar sem Soffíu frænku, fussandi og sveiandi yfir óráðsíunni og óreglumönnum. En ekki sé ég nú Jóhönnu og Sigurð Kaupthingsbana fara að rugla saman reitum sínum neitt í framtíðinni enda enginn kemistría þar á ferð....
Kasper er svo Sigurður Kaupthingsbani, Lárus Welding er Jesper og svo er hægt að sjá Bjarna Ármann sem Jónatan hinn grandalausa og "næstum" saklausa. Að gera Bjarna að bakara hljómar vel sem og að Lárus Welding verði Sirkusstjóri en að setja Sigurð yfir FME gæti orkað tvímælis en kannski er það eina leiðin til að fá fram sannleikann? Hverjir vita betur hvað eiginlega gerðist og er það satt að allir eru góðir bara ef þeir fá tækifæri? því trúi ég allaveganna.....
Atriðið með þrjóska asnann minnti óneitanlega á þaulsetinn Seðlabankastjóra sem ég nenni ekki einu sinni að nefna en lausnin var auðvitað að setja asnann bara á vagninn og fólkið keyrði honum svo sjálft burt.
Sigurður Líndal er svo í hlutverki hins alvitra og ráðagóða Tobíasar, reyndar gerir Davíð Scheving harða atlögu að honum þessa dagana bitur úr hrunadansinum og eftir enn ein vonbrigðin.
Geir Haarde er bæjarfógetinn Bastíann, allaf léttur en vill lítið gera í málunum sökum ótta við sofandi Ljón, slær hlutunum á frest og dokar við með ofsafína frú uppá arminn, enda situr hún í flottasta fyrirtækina af þeim öllum, sem er svona nútímahobbí fyrir fínar frúr í stað þess að elda og baka.
Óttaslegnir bakarar, Hégómagjarnir rakarar og reiðir pylsugerðarmenn eru svo útum allt alveg gapandi á óréttlætinu og velta fyrir sér hvernig þeir geta tekið réttlætið í eigin hendur, kannski með því að skipta um banka eða bjóða sig fram? Erfitt að segja hvernig það fer allt saman en mér sýnist þeir nú ætla að velja bara það sama aftur mikið til......enda hefur það gefið svo góða raun.
Ljónið er spillingin og frændsemisgreiðakerfið okkar hér á þessu litla landi ásamt lífeyrissjóðunum okkar feitu og pattaralegu, þetta skrímsli þorir enginn maður að styggja á nokkurn hátt. Bara kommúnistadrullusokkar voga sér að nefna slíkt ódæði að gera atlögu að mönnum sem sýsla með mína peninga og þína og leika sér með þá á vægast sagt vafasamann hátt.
En þá eru kannski tvö mikilvægustu hlutverkin eftir, unga fólkið, Kamilla og Tommi sem leysa málin og láta sig varða um það sem gerist í kringum þau, framtíðin sjálf holdi klædd með bjartsýni og von um betri tíð........það skyldi nú aldrei vera?
Ég tek það fram að þetta eru hugleiðingar mínar í dag daginn eftir ég naut sýningarinnar með börnunum, brá þegar ræningjarnir ruddust inn og var á staðnum ekkert að vera kaldhæðinn og fullur svartsýni og vantrausts.....bara hugleiðing.
Ég er allavegann góður þegar ég fæ tækifæri til þess......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.3.2009 | 09:13
Feit staða
Þetta er nú aldeilis spennandi, ég legg strax til að viðkomandi verði sæmdur nafnbótinni Hundadagakonungur.
Ég sá listann mjög skýrt og sé alveg fyrir mér hverjir munu sækja um þetta, segi það samt ekki fyrr en ljóst er hverjir það eru.
Finnst nú kannski til full mikils ætlast að viðkomandi sé með hagfræðipróf, er það ekki?
Fer svo ekki bara fyrrum fjölmiðlafúlltrúi Impregilo að vinna hjá þeim líka? Finnst það liggja beinast við enda sambærilegt fyrirtæki á margann hátt.
![]() |
IMF vill ráða starfsfólk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.3.2009 | 14:42
Við getum fengið lán fyrir þessu
Þessi rök heyrði ég orðrétt drjúpa af vörum Jórunnar Frimannsdóttur borgarfulltrúa í gær, ómenguð og beint af hennar vörum. Þetta er alveg óskiljanleg rök fyrir einu mesta bruðli Íslandssögunnar, þetta nýja fólk Sjálfstæðisflokksins er greinilega alveg jafn fast í gamla farinu og eldri mennirnir, nema þau eru tilbúin að bruðla meira núna þegar Ísland er í raun "gjaldþrota".
Meira að segja Pétur Blöndal er sammála mér, enda virkar hann meira og meira á mig sem gamaldags kommúnisti þessa dagana og alveg á villigötum í þessum flokki. Jórunn fullyrti fyrir fullu húsi á einhverju sem varð að einhversskonar framboðsfundi að það væri hægt að fá lán fyrir þessu og það væru rökin, ég segi nei takk við þessu rugli, jöfnum þetta við jörðu og gerum bílastæði eða látum þetta skrípi standa okkur til áminningar og erlendum gestum til skemmtunar um ókomin ár.
Reynum að vera fyndin fyrst við erum nú á annað borð orðin hlægileg.
Helst vil ég gera þetta að kvikmyndaveri eða location fyrir kvikmynd í fullri lengd gerðri eftir Aldrei Stríð á Íslandi sem frumsýnd er einmitt í kvöld áundann Clint Eastwood, kannski getur einhver talað við kallinn sjálfann bara....gæti orðið svona nútíma Mad Max með kreppuna í huga og það hrun sem vofir yfir okkur.
Sleppið að koma með 600 starfa afleiðureikninginn, búinn að heyra það og það er ca ein milljón á starf á mánuði fyrir laun, full mikið.
Sleppið að skrifa um sektir vegna framvirkra samninga við glerframleiðandann í Kína, einhver segir þar 5 milljarðar en annar 1,5 svo það er eitthvað á reiki, borgum það bara og þeir mega skreyta Kínamúrinn með þessu glingri.
Sleppið að skrifa um 10 milljarðana sem hafa farið í þetta rugl, þeir eru farnir og við eigum ekki meir, reyndar eigum við svo mikið minna.
![]() |
Glundroði í málum tónlistarhúss |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.3.2009 | 00:30
Opið bréf til Sturlu
Ágúst heiti ég og er þegn í þessu blessaða landi, ekki vinstri grænn ég tek það sérstaklega fram......ég stóð á Austurvelli vikuna örlagaríku, ég er búinn að finna fyrir ótta síðustu mánuði einsog þú greinilega, en að kalla mig ofbeldismann þykir mér alveg ferlega sárt, ég stóð fyrir því sem í versta falli getur kallast borgarleg óhlýðni og er hornsteinn allra lýðræðissamfélaga í hinum vestræna heimi. Þannig hefur konungsveldum verið kollvarpað og þannig var endalausri valdasetu þinni og flokks þíns komið frá í vetur hér á landi, ég skil að undann svíði og það sé erfitt að tapa þegar maður þekkir það ekki.
Jafnvel þótt lögreglan sé búinn að gefa það út að þarna á miðvikudeginum hafi þetta verið glæpamenn með annað í huga en mótmæli, svokallaðir "góðkunningjar lögreglunnar", þráast þú við, þú minnist ekki einu orði á að daginn eftir var unnið hér kraftaverk sem á sér varla hliðstæðu í mótmælum og óeirðum(sem þetta vissulega var orðið), þegar svona ástand skapast þá er venjulega ekkki undið ofan af því heldur versnar það og stigmagnast.
Daginn eftir á fimmtudeginum sendum við nokkur á milli okkar skilaboð um þennan appelsínugula lit og að róa stemmninguna með kærleika, við mætum snemma og með fiðring í maga, ég er sjálfur tekinn í viðtal um miðjan dag og um kvöldið er þarna allt appelsínugult, og við leysu lögregluna af hólmi.
Orðrétt spurði lögreglan "getum við ekki bara farið?", og eftir stóðum við og trommuðum og sungum, ekki VG ekki ofbeldi bara gleði og við vissum þá að þessi ríkisstjórn væri búin að vera og að okkur hefði tekist án neins sérstaks skipulags að leysa hnútinn milli lögreglu og mótmælenda.
Vissulega gerðust þarna einn og einn sekir um glæpi, vissulega gengu margir hart fram og of langt, vissulega slasaðist lögreglumaður illa, maður sem ég einmitt talaði við fyrr sama dag og ósköpin dundu yfir og reyndist hann geðugur náungi sem var sjálfur ekkert voðalega ánægður með ástandið í landinu sínu, ég óska honum alls hins besta og bið að heilsa honum.
Mig langar samt að vara þig við eftir að hafa lesið skrif þín í Fréttablaðið í morgunn, framsaga þín og málefnalegur tilbúningur er í besta falli barnalegur, að gefa í skyn statt og stöðugt að fjölmiðill ríkissins sé með einhverjar duldar hvatir og að þar séu pantaðar spurningar er bara alveg fyrir neðann allar hellur.
Þessu hafið þú og Björn Bjarnason ítrekað haldið fram í marga mánuði og í raun fyrrverandi forsætisráðherra líka þarsem hann gékk nú svo langt að kalla einn af blaðamönnum Kastljóss "fífl og dóna" á blaðamannafundi.
Björn kenndi téðum blaðamanni kastljóss einmitt um hve fjölgaði á Austurvelli með ítrekuðum innslögum í útverpi og sjónvarpi. Hvað er miðillinn í þínum huga?
Á ekki að flytja fréttir af því sem er að gerast? Á ekki að spyrja forsætisráðherra þessarar og hinnar spurningarinnar?
Ef þú hefur á þinum langa ferli ekki orðið var við klíkuskap, spillingu og fjölskylduráðningar(sérgrein Sjálfstæðisflokksins), vafasamar embættisveitingar(allt litrófið) og hina makalausu afhendingu bankanna á silfurfati með þjóðargersemum í listaverkum í kaupbæti þá tel ég vinur minn að þú hafir sofið allsvakalega á verðinum.
Ef þú hefur ekki starfað í flokki sem sótti vald sitt og hugmyndafræði til bandaríkjanna í formi frjálshyggju Friedmanns, stuðnings við stríðsbrölt og stríðsglæpi og hlerana og lögregluríkis, þá fór eitthvað mikið framhjá þér, og að kvarta yfir að við sækjum hjálp frá nágrönnum okkar í Noregi núna, því fólki sem stendur okkur næst og að auki stendur hvað best að vígi í heiminum fjárhagslega(sem er skemmtileg tilviljun), norðmenn hafa haft af okkur miklar áhyggjur í vetur og það þrátt fyrir að óbeislaðir bankaglæpamenn í þínu/okkar umboði hafi þar farið offari og jafnvel ránshendi um í viðskiptalífinu þannig að norskir þegnar hafa tapað peningum.
Auðvitað hefði þér þótt viðeigandi að ráða Jón Sig sem seðlabankastjóra, en ef það hefði verið gert hefðir þú ekki þá bara látið þessa grein snúast um það að einu breytingarnar sem Samfylkingin stendur fyrir er að koma sínu fólki að? Og hefði það ekki bara verið eðlilegt framhald af sama flokkspólitíska ruglinu sem hefur komið okkur þangað sem við erum? Breytingar geta verið erfiðar og jafnvel stundum á gráu svæði en ég vona að þeir sem eru að stjórna núna séu að gera allt af heiðarleika og með hag landsmanna í huga.
Það gerðir þú ekki og þínar ríkisstjórnir, þú/þið hleyptuð börnunum í nammið og ætluðust til að þau gættu hófs, þið selduð landið okkar undir stóriðju og virkjanir genguð hér um á skítugum skónum og svo sérðu hvernig þú skilur þetta eftir þig....allt í kalda kolum.
Það mætti enginn á austurvöll til að meiða þig, við vildum bara reka þig úr vinnunni, og við erum þau einu sem getum það.......
"When governments fear the people, there is liberty. When the people fear the government, there is tyranny"
Þetta sagði Thomas Jefferson og þessi orð komu upp í huga mér þarsem ég sá þig bakvið gardínu í alþingishúsinu, þú hefur misst tengslin við fólkið þitt, hverju sem er um að kenna, laxveiðiferðum, heyrnaleysi eða bara of langri valdasetu. Ég óska þér góðs bata og vonandi finnurðu þér eitthvað til dundurs í atvinnuleysinu.
Vandamálið er þessi bilaða útgáfa af lýðræði, frelsi er það sem við viljum og ekkert annað.
Seinna segi ég þér söguna af honu afa mínum.
![]() |
Deildu hart í þingsal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.3.2009 | 16:08
Heyr heyr
Ég hef einmitt verið að velta fyrir mér gangsemi þess að flytja fréttir af slagsmálum á skólalóðum, ef mig minnir var þetta fastur liður í gagnfræðaskóla.
Við erum að eiga við þversnið af samfélaginu pakkað saman í þessa skóla og þá vill ýmislegt gerast, einsog í samfélaginu almennt, við erum ekki að gera neinum greiða með þessari umfjöllun nema kannski ofbeldisseggjum framtíðarinnar sem fara langt á orðspori og ótta.
Hugsum okkur um áður en við dæmum börn og unglinga og treystum skólayfirvöldum og foreldrum til að vinna að þessum málum af heilindum.
Annað mál eru fullorðnir sem í skjóli valds beita börn og unglinga ofbeldi þar mætti afnema ákveðna þöggun sem hefur ríkt og erfitt fyrir börn að segja frá.
Ég var svona drengur sjálfur, í endalausu veseni og átti erfitt með þetta frumskógarlögmál unglinganna, svo ég óska fjölskyldum allra þessara drengja friðs og næðis til að gera þetta upp.
![]() |
Óvægin ummæli á bloggi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Sjálfstæði Íslendinga virðist hafa verið búið til af körlum fyrir karla og svo mega konur þakka fyrir að giftast vel inní sjálfstæðisflokkinn, einu undantekningarnar á því eru ríkar forstjórakour sem dútla sér í stjórnmálum á vafasömum forsendum samanber álversforstjórafrú sem skammast yfir stóriðjustefnu VG.
Tek fram að ein er þó undantekning á þessu og er það Ragnheiður Ríkharðsdóttir og meiri Krata held ég að sé leit að hér á landi svo þetta er stórundarlegur íhaldsflokkur með vafasama fortíð og litla endurreisnarvon.
En samt velja 30% þjóðarinna þessi ósköp.