5.3.2009 | 10:28
Virðulegi þingmaður
Sæll Sturla
Ágúst heiti ég og er þegn í þessu blessaða landi, ekki vinstri grænn ég tek það sérstaklega fram......ég stóð á Austurvelli vikuna örlagaríku, ég er búinn að finna fyrir ótta síðustu mánuði einsog þú greinilega, en að kalla mig ofbeldismann þykir mér alveg ferlega sárt, ég stóð fyrir því sem í versta falli getur kallast borgarleg óhlýðni og er hornsteinn allra lýðræðissamfélaga í hinum vestræna heimi. Þannig hefur konungsveldum verið kollvarpað og þannig var endalausri valdasetu þinni og flokks þíns komið frá í vetur hér á landi, ég skil að undann svíði og það sé erfitt að tapa þegar maður þekkir það ekki.
Jafnvel þótt lögreglan sé búinn að gefa það út að þarna á miðvikudeginum hafi þetta verið glæpamenn með annað í huga en mótmæli, svokallaðir "góðkunningjar lögreglunnar", þráast þú við, þú minnist ekki einu orði á að daginn eftir var unnið hér kraftaverk sem á sér varla hliðstæðu í mótmælum og óeirðum(sem þetta vissulega var orðið), þegar svona ástand skapast þá er venjulega ekkki undið ofan af því heldur versnar það og stigmagnast.
Daginn eftir á fimmtudeginum sendum við nokkur á milli okkar skilaboð um þennan appelsínugula lit og að róa stemmninguna með kærleika, við mætum snemma og með fiðring í maga, ég er sjálfur tekinn í viðtal um miðjan dag og um kvöldið er þarna allt appelsínugult, og við leysu lögregluna af hólmi.
Orðrétt spurði lögreglan "getum við ekki bara farið?", og eftir stóðum við og trommuðum og sungum, ekki VG ekki ofbeldi bara gleði og við vissum þá að þessi ríkisstjórn væri búin að vera og að okkur hefði tekist án neins sérstaks skipulags að leysa hnútinn milli lögreglu og mótmælenda.
Vissulega gerðust þarna einn og einn sekir um glæpi, vissulega gengu margir hart fram og of langt, vissulega slasaðist lögreglumaður illa, maður sem ég einmitt talaði við fyrr sama dag og ósköpin dundu yfir og reyndist hann geðugur náungi sem var sjálfur ekkert voðalega ánægður með ástandið í landinu sínu, ég óska honum alls hins besta og bið að heilsa honum.
Mig langar samt að vara þig við eftir að hafa lesið skrif þín í Fréttablaðið í morgunn, framsaga þín og málefnalegur tilbúningur er í besta falli barnalegur, að gefa í skyn statt og stöðugt að fjölmiðill ríkissins sé með einhverjar duldar hvatir og að þar séu pantaðar spurningar er bara alveg fyrir neðann allar hellur.
Þessu hafið þú og Björn Bjarnason ítrekað haldið fram í marga mánuði og í raun fyrrverandi forsætisráðherra líka þarsem hann gékk nú svo langt að kalla einn af blaðamönnum Kastljóss "fífl og dóna" á blaðamannafundi.
Björn kenndi téðum blaðamanni kastljóss einmitt um hve fjölgaði á Austurvelli með ítrekuðum innslögum í útverpi og sjónvarpi. Hvað er miðillinn í þínum huga?
Á ekki að flytja fréttir af því sem er að gerast? Á ekki að spyrja forsætisráðherra þessarar og hinnar spurningarinnar?
Ef þú hefur á þinum langa ferli ekki orðið var við klíkuskap, spillingu og fjölskylduráðningar(sérgrein Sjálfstæðisflokksins), vafasamar embættisveitingar(allt litrófið) og hina makalausu afhendingu bankanna á silfurfati með þjóðargersemum í listaverkum í kaupbæti þá tel ég vinur minn að þú hafir sofið allsvakalega á verðinum.
Ef þú hefur ekki starfað í flokki sem sótti vald sitt og hugmyndafræði til bandaríkjanna í formi frjálshyggju Friedmanns, stuðnings við stríðsbrölt og stríðsglæpi og hlerana og lögregluríkis, þá fór eitthvað mikið framhjá þér, og að kvarta yfir að við sækjum hjálp frá nágrönnum okkar í Noregi núna, því fólki sem stendur okkur næst og að auki stendur hvað best að vígi í heiminum fjárhagslega(sem er skemmtileg tilviljun), norðmenn hafa haft af okkur miklar áhyggjur í vetur og það þrátt fyrir að óbeislaðir bankaglæpamenn í þínu/okkar umboði hafi þar farið offari og jafnvel ránshendi um í viðskiptalífinu þannig að norskir þegnar hafa tapað peningum.
Auðvitað hefði þér þótt viðeigandi að ráða Jón Sig sem seðlabankastjóra, en ef það hefði verið gert hefðir þú ekki þá bara látið þessa grein snúast um það að einu breytingarnar sem Samfylkingin stendur fyrir er að koma sínu fólki að? Og hefði það ekki bara verið eðlilegt framhald af sama flokkspólitíska ruglinu sem hefur komið okkur þangað sem við erum? Breytingar geta verið erfiðar og jafnvel stundum á gráu svæði en ég vona að þeir sem eru að stjórna núna séu að gera allt af heiðarleika og með hag landsmanna í huga.
Það gerðir þú ekki og þínar ríkisstjórnir, þú/þið hleyptuð börnunum í nammið og ætluðust til að þau gættu hófs, þið selduð landið okkar undir stóriðju og virkjanir genguð hér um á skítugum skónum og svo sérðu hvernig þú skilur þetta eftir þig....allt í kalda kolum.
Það mætti enginn á austurvöll til að meiða þig, við vildum bara reka þig úr vinnunni, og við erum þau einu sem getum það.......
"When governments fear the people, there is liberty. When the people fear the government, there is tyranny"
Þetta sagði Thomas Jefferson og þessi orð komu upp í huga mér þarsem ég sá þig bakvið gardínu í alþingishúsinu, þú hefur misst tengslin við fólkið þitt, hverju sem er um að kenna, laxveiðiferðum, heyrnaleysi eða bara of langri valdasetu. Ég óska þér góðs bata og vonandi finnurðu þér eitthvað til dundurs í atvinnuleysinu.
Vandamálið er þessi bilaða útgáfa af lýðræði, frelsi er það sem við viljum og ekkert annað.
Seinna segi ég þér söguna af honu afa mínum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.3.2009 | 12:17
Mjög gott skref, erfitt kannski en gott
Til að byrja með eru afar fáar fjölskyldur með þrjá unglinga yfir 16 ára á heimilinu og ef svo er er kominn tími til að þeir taki þátt í heimilishaldinu.
Ríkissjónvarpið er ein af okkar mikilvægustu menningarstofnunum og nú þegar upp er staðið er það líka í raun og veru eina sjónvarpið sem við höfum efni á, það er alveg öruggt að ef Ríkissjónvarpsins hefði ekki notið við værum við (enn) óupplýstari og fátækari þjóð í dag.
Innlend dagskrárgerð væri ekki til því að hvers vegna ættu sjálfstæð fyrirtæki með báðar fætur í frjálshyggjuforinni að tapa viljandi peningum á að búa til sjónvarp? Ef sjónvarpsins hefði ekki notið við hefði það lagst af fyrir löngu.
Skjár einn er meira að segja hættur því þó að sjónvarpið sé til staðar, láta nægja að framleiða fyrir sig Singing Bee og Fyndin myndbönd, ok segjum að við séum komin til 2070, viljum við að einu minjarnar á filmu um nútímann verði Jónsi í svörtum fötum að láta falskt fólk syngja texta og hlæja hrossalega við undirleik Buffs? Flippað
Stöð tvö hefur staðið sig vel í að framleiða gott efni inná milli enda algjörlega háð áskriftinni og samt er það múltímilljarða tapfíaskó undir stjórn eins af aðal frjálshyggjupésum landsins og fyrrum aðstoðarmanni Davíðs, þar eru menn í gíslingu áskriftarinnar og horfa með öfund á vini sína hinum meginn, en hvað er maður að kaupa fyrir 6000 á mánuði(ekki ég)?
Skjár einn er sérstök tapdeild innan Símans(okkar) þarsem heimskan og froðan ræður völdum, að mínu mati en ég er hrokafullur og þið fyrirgefið, þar er skipulega tapað peningum úr fyrirtæki sem við seldum vissulega dýrum dómu en hver borgar það haldið þið þegar upp er staðið?
Við erum nottla með nefskatt þá í símareikningum semborgar Skjá Einn er það ekki?
Stöndum saman um RÚV sem sýnir sig í vetur ásamt MBL sjónvarp(ekki restin) að vera eini þokkalega áreiðanlegi miðillinn okkar.
![]() |
Afnotagjöld RÚV í einni greiðslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
2.3.2009 | 00:26
Samfylking? hvað þýðir það?
Takk fyrir að leiðrétta þennan misskilning sem næstum fékk mig til að fara að kjósa aftur Samfylkinguna, nú mun ég geta auðveldlega staðið við sterkar yfirlýsingar mína þess efnis að ég muni aldrei kjósa þennann flokk.
Raunverulegur jöfnuður er ekki fyrir hendi í þessum flokki og að því er virðist ekkert raunsæi, var ekki konan að hamra í gegn 500 milljóna eyðsluflipp sem kallaðist umsókn um öryggisráð sameinuðu þjóðanna þegar hún veiktist og bankarnir hrundu?
Er þetta það besta sem þessi flokkur hefur að bjóða?
Fyrirfram ákveðið prófkjör með einu argandi gamalmenni á móti, ekki alveg endurnýjun og hreinlega léleg vara í boði fyrir atkvæðið mitt og þitt.
Tek að lokum fram svona fyrir kurteisissakir að Ingibjörg Sólrún er öflug kona og greinilega góð, en maður veltir fyrir sér að eftir langann eltingaleik við DO hvort hú sé ekki að verða soldið svona bardagamóð og jafnvel má spyrja í anda þeirr aleynilöggumynda þarsem löggan fer eftir vonda kallinum og stendur sig svo að viðlíka vinnubrögðum og siðferðishnignun.
Þetta sem boðið er uppá heitir samtrygging og mun verða Samfylkingunni að falli, fylgið er flakkandi og nú tapar Samfylkingin miklu og ég spái henni undir 20% fylgi í vor með þessu bulli, það versta í því er að það fylgi mun dreifast og fara jafnt milli framsóknar, sjálfstæðis og vinstri grænna.
Þar af leiðir að mögulega einangrast VG án meirhlutamöguleika enn einu sinni og Nýja Framsókn og gamli Örninn geta aftur hafið sitt farsæla samstarf, ef það verður raunin þá skrifast það á valdagræðgi Ingibjargar Sólrúna Gísladóttur sem þarmeð fylgir DO inní sólsetrið á sínum stjórnmálaferli.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
2.3.2009 | 00:05
Landsbyggðin lítur glaðann Dag
Mikið var að við Reykvíkingar sátum ekki lengur einir að honum Degi, nú vaknar fólkið á Tálknafirði til lífsins og sér nýjann málsvara sinn í pólitíkinni.
Þvílík endurnýjun og hann nottla búinn að taka nokkrar lotur í spillingunni og hringavitleysunni í borginni og getur þá farið að leika sér með stóru strákunum/stelpunum.
úff.....
![]() |
Dagur í varaformanninn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.3.2009 | 18:20
Einmitt!!
Og á morgun verður dreift teiknimynd þarsem við sjáum myndir af vörubílum og cocoa puffspökkum sem hugsanlega verða einhverntíman eða voru einhverntímann notuð til framleiðslu á úrani.
Kannski Bill Cosby verði með fréttaskýringuna í stað Colin Powells?
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem embættismenn bandaríkjanna hafa gefið svona yfirlýsingu, skrifaði Björn Bjarnason þessa frétt eða er þetta bara copy/paste af heimasíðunni hans?
![]() |
Telja Írana geta smíðað sprengju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.2.2009 | 23:53
Slitinn Strengur
Ég þekki kokka sem finna ekkert bragð og aðra sem er skítsama, Gunnar sýnist mér vera þannig viðskiptafræðingur, hef reyndar hitt hann og hann er geðugur náungi og rólyndur í fasi.
En eitthvað er nú skrítið að maður með hanns bókhaldsfortíð og skrautlega starfsferil sé settur yfir einn af bönkunum okkar, hanns hugðarefni er svo ein dýrasta lax-Á landsins Selá í Vopnafirði sem er nú væntnlega mönnum kunnug úr Stellu í orlofi.
Þar hefur hann staðið í löngu stríði um veiðiréttinn í á þarsem aðallinn safnast saman og drekkur sig fullann í friði fyrir milljónir, pólitíkusar og bissnissmenn sem njóta alls þess besta sem þetta land hefur uppá að bjóða í valdi auðsins og valdsins, ég mun kannski aldrei fá að vinna í slíkri á aftur fyrir að tala um þetta enda var mér nú ekkert minna en hótað af blindfullum forseta alþingis á sundbol(nei ekki Sturlu) að halda kjafti yfir því sem þar hafði gerst, og tek ég fram að þetta gerðist inní eldhúsi.
En sama er mér svosem, ég fæ vinnu og þetta verður allt í lagi.
![]() |
Gunnar Örn hættir í bankaráði Kaupþings |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.2.2009 | 23:24
Ertu ekki fyrrverandi aðstoðarmaður?
Soldið gott hjá þér að hlýða gamla húsbóndanum og byrja strax að "tala kjark í þjóðina", en kannski er í aðra röndina pínu ósmekklegt af þér að hvetja svo til ritskoðunnar og reyna að biðjast vægðar eftir hryllileg afglöp þín í starfi og þá á ég bæði við sem pólitíkus og sem "bankamaður.
En gott er að vita að þú vilt þjóðinni vel, hvernig áttu þá samleið með Þorgerði(bankafrú/kennitölusvindl), Bjarna Ben(olæiusamráð og okur), Guðlaugi(þjófnaður), Kristjáni Þór(skipa/kvótastuldur) og fleirum í þínum flokki sem augljóslega tengjast spillingunni svo svakalega að varla nokkuð þolir dagsins ljós jafnvel eiginkonu fyrrv. forsætisráðherra sem sat í stjórn bankans þíns?
En gott að vita að þú ert með sál, hún er okkur öllum nauðsynleg en þarfnast hreingerningar og bendi ég þér á næstu kirkju eða sáluhjálp af einhverju tagi, t.d. er til 12sporakerfi til að endurreisa líf sitt og hjálpa öðrum í sama vanda.
![]() |
Þessu verður að linna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.2.2009 | 15:20
Þetta er löngu dautt mál
Skil ekki hvað er verið að væla núna, Sigurður Óvarkári fer mikinn og sjaldann er neitt bitastætt í málaflutningi hanns, Birgir kollegi hanns Ármannsson er öllu flinkari að koma hlutunum frá sér.
Geir Hilmar Haarde gékk frá þessu með að höfða ekki mál á tilsettum tíma og tákngerfði það hanns lokadaga sem stjórnmálamanns, mannréttindadómstóllinn er ónothæfur í máli þarsem dómstólarleið viðkomandi lands hefur ekki verið farin áður en málin komast þangað, einskonar þrautarlending mála.
Það er bara orðið of seint og það er Gylfi að tjá sig um, hann er í raun ekkert að taka neina ákvörðun, það er að verða óhugnanlega þreytandi þetta karp og bull með tilheyrandi reykskýjum og ófögnuði.
Sjálfstæðismenn fullyrða að öll góð verk þessarar ríkisstjórnar séu í raun þeirra hugmynd, og allt klúður fyrri ríkisstjórnar er svo klístrað á þessa og sérstaklega á Gylfa Magnússon í dag af því að hann segir frá því sem blasir við, að við höfum litlar sem engar varnir.
Geir, Þorgerður þeirra makar og fjöldi annara þingmanna þola í raun enga rannsókn einsog heyra mátti á máli DO í gær, þ.a.l. að það var lítið sem ekkert gert meðan þessi og hin dagsetningin leið og mál urðu sjálfdauð og lítið hægt að rannsaka....hentugt ekki satt?
Þannig að hlífið mér við meiri lygum og þvaðri og farið að vinna vinnuna ykkar, dulbúa Bjarna Ben og Kristján þór í sauðsgærur.
![]() |
Veldur miklum vonbrigðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.2.2009 | 18:32
Sniðugt með þessa skildi, sem aðrir hafa skitið út...Hössi vs. Össi
Skýrslan hefur ekkert að geyma sem ríkisstjórnin getur verið að fela, hvaða vitleysa er þetta? Hvernig getur ríkisstjórnin verið að fela eitthvað sem stendur í skýrslu sem þeir hafa ekki lesið og eru samdar af evrópusambandinu sem við erum ekki í ????
Höskuldur sem hreinn skjöldur?
Er s.s. Höskuldur hreinn skjöldur? Hann verður það ekki lengi með þessu áframahaldi, Lot segir í biblíunni "nei gesti mína fáið þér ekki en takið hérna dætur mínar tvær óspjallaðar meyjar og gerið við þær svo sem ykkur sýnist". Þær fæða svo seinna börn föður síns og undan því erum við víst komin, er eitthvað svo skrítið að við séum klikk? Bara svona pæling....en eitt skuluð þið vita að það borgar sig aldrei að efast um orð húsbóndans í Seðlabankanum.
Höskuldur er klárlega að bregða á leik, sem mér finnst frekar ósmekklegt, og verður svo voða sár yfir að Össur geri góðlátlegt grín af honum. Össur er búinn að sjá þessa leiki áður og jafnvel leika nokkra sjálfur, og margt er hægt að segja um hann en þetta í dag var bara svona létt grín.
Ef þetta er nóg til að særa þig Hössi þá ertu í rangri vinnu og að kalla Össur orðvarann er nú alveg óborganlegt þó að mig gruni að þú hafir nú ekki verið að reyna að vera fyndinn....en ef fólk hlær af manni og maður var ekki að grína hvað er maður þá?
Að rugga þessari ríkisstjórn núna er gríðarlega óábyrgt, ríkisstjórn sem hefur fylgið á bakvið sig og er til bráðarbrigða þartil kemur að kosningum. Skiltagerðamennirnir eru rétt búnir að jafna sig eftir borgina, förum nú ekki í sama dansinn í landsmálunum.
![]() |
FUFAN styður Höskuld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.2.2009 | 16:52
Lykilstöður, einmitt
Svo margt sem segir sig sjálft og svo mörg ummæli sem munu koma aftur og bíta menn í rassinn, þegar þeir loks standa upp af honum.
Varst þú ekkert í lykilstöðu við að keyra allt í klessu hér?
Nei þá varst þú saklaus áhorfandi í vinnu sem við treystum þér til að vinna, og þú gerðir ekkert! Ekki neitt, hér fór allt til andskotans á þinni/ykkar vakt og ef ég sem kokkur hefði gert eitthvað svipað og þú í þinni vinnu hefði ég ekki haldið henni. Ef læknir bregst ef hreinlega hver sem er bregst skyldum sínum einsog þú í starfi verður viðkomandi að fara og oftast tafarlaust án einhverrar pólitískrar sóttkvíar.
Gerðu þér, fjölskyldu þinni og þjóðinni allri greiða, hættu að hlusta á ráðgjafann þinn því hann(hver sem hann er) er vondur ráðgjafi, sýndu manndóm stígðu niður og með tímanum mun sannast ef þú gerðir eitthvað rétt.
Það er skammarlegt að sjá mann nota bréfsefni stornunar sinnar til að vera með svona lélegann málatilbúnað og vonlausar varnir.
Hvað hefur versnað við að kollegi þinn fór? Vantar einhverja skýrslu til að setja undir stól? Vantar foringjann einhvern nýjann óhróður á einhverja menn í sínu persónulega stríði?
Guð blessi þig og þína því ekki getur þetta verið auðvelt
![]() |
Furðar sig á vinnubrögðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)