Væntingarvístitala?

Vá og hvað tók þetta langann tíma, hversu stórt er úrtakið og hvað kostar svona bull?

Ég hefði geta sagt ykkur þetta ókeypis, en það er kannski þess vegna sem ég er bjartsýnn og fullur trúar á að við hverfum að sumu leyti aftur til gamalla gilda og að öðru leyti getum við tekið upp nýjar hugmyndir.

Gallup, Capacent og fleiri greiningarfyrirtæki eru alveg hræðileg fyrirbæri í mínum augum, að mæla hitt og þetta er bara leið til að sannfæra, það er hægt að haga öllum könnunum bara eftir hvað viðkomandi vill fá út og svo til að vera alveg viss er hægt að lesa útúr niðurstöðum eftir hentugleika...fyrirtæki sem selja kannanir munu seint segja kaupendum sannleikann enda er það ekki markaðsvænlegt né arðvænlegt samkvæmt rannsóknum.

Það er ekkert sérstakt áhugamál hjá fólki að tala mikið við þá sem gagnrýna þá og þora að segja þeim satt.

Ég eyddi heilum vetri í að læra gæðastjórnun bara til að komast að því að þetta er rugl, grunnhugmyndir Demings eru ágætar og í raun fallegar, en framþróun þessa í skrímslið ISO eru bara einsog flest mannleg kerfi ofvaxin og óviðráðanleg.


mbl.is Íslenskir neytendur svartsýnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vá maður roðnar bara...

Aldeilis stæðilegir gæðingar þarna á ferð, vantar bara Jón Baldvin og flokksgæðingarnir eru allir komnir. Ég er öfgasinnaður jafnaðarmaður með frelsi einstaklingsins til að velja sér gæði og þjónustu sem grunnhugmynd, soldið speisað ég veit en þetta rugl er mér algjörlega ofviða að skilja, gamlir flokkshestar settir á beit í nýrri og tímfrekri og væntanlega vel launaðri nefnd.

Hvað ef einhver spyr "Now wait a moment, is your name Jon Sigurdsson? Not the same mr Sigurdsson that was chairman of the fjármálaeftirlit? Why are you her?"

Vandræðalegt


mbl.is Svavar stýrir Icesave nefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höskuldur eru öll ljós kveikt en enginn heima?

 

Sonur minn spyr mig stundum að þessu þegar ég er utan við mig....nú er komið að þér.

Hitt er annað og kannski meira inná þessari grein, að það er gömul og gatslitin hugmynd að innan flokks sé samstaða og eining um alla skapaða hluti.

Ég er ekkert svo viss að það sé merki um styrk að kjósa alltaf hreint eftir vilja foringjans hverju sinni, það er ekkert merki um veikleika að vera ósammála, þvert á móti.

Að heilu þingflokkarnir kjósi alltaf hreint einni röddu er vonandi liðin tíð og hver og einn af okkar pólitíkusum ætti að sjá sóma sinn í að kjósa eftir sannfæringu sinni og að vel athuguðu máli, einsog þetta einstaka mál sýnir þá er ekkert rétt og rangt.

Höskuldur hefur að mér sýnist nokkuð til síns máls enda þekki ég hann persónulega og veit að hann er góður drengur sem vill öllum vel, reyndar Framsóknarmaður, og Birkir er jafnframt umhugað að mál sem brennur á þjóðinni verði leyst sem fyrst.

Það er hinsvegar merki um bardagamæði og einstrengingshátt að safna að sér Já-mönnum og liðleskjum sem ekki þora að gagnrýna né andmæla manni, þannig hningnar okkur öllum og við þær kringumstæður fer maður að missa sjónar á markmiðinu með starfinu, hvað sem starfið er.

Ekki eru allir viðhlæjendur vinir.

P.S. Við lok þessa pistils horfði ég á viðtal við Höskuld á mbl.is, þar birtist mér bugaður maður með mikinn áhyggjusvip sem kannski á að sannfæra mann um ábyrgðartilfinningu en gerði lítið annað fyrir mig en að ég sá mann sem er að hugsa úbbs hvað er ég búinn að gera?........nú það sem þú ert búinn að gera er að tefja þjóðþrifamál, ógna tilvist ríkisstjórnarinnar sem þið lofuðuð að verja og kannski síðast en væntanlega alls ekki síst lofa sjálfstæðismönnum að innan þíns flokks séu enn menn sem vilja og LANGAR innilega uppí aftur og þegar stutt er í kosningar og prófkjör er kjörið að skap sér sérstöðu og nú vitum við öll fyrir hvað þú stendur!! Þú stendur fyrir lítinn en gríðarlega valdamikinn flokk, með hörmulega sögu af einokun og græðgi, flokk sem er á þessum væng ekki neitt annað en hækja fyrir sjálfstæðisflokkinn.


mbl.is Framsókn skekur ríkisstjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samherjar sem gerðu ekki N1

Björn Bjarna er sár, neyddur á eftirlaun kallinn af einhverjum lúða með einkaþjálfara.

Sjálfstæðisflokkurinn er að fara að sanna fyrir landanum að hann er alveg rotinn í gegn, Bjarni Ben verður formaður og Kristján Þór skipasali varaformaður, þannig verður nú öll endurnýjunin, enda hætti Bjarni sem stjórnarformaður í risastóru olíufélagi og sjoppubissniss "til að einbeita sér að þingstörfum", hvað var hann að gera frammað því? Nota ókeypis síma og internet fyrir olíufélagið? Og hinn "leigubæjarstjórinn" og skipasalinn, lofaði að landað yrði á Ísafirði, afhverju sækir hann ekki stuðning þangað?

Varla mun sjást kona ofarlega á listum enda þær bara til að fara með heim af ballinu og þurfa þá ekkert endilega að vera sætastar.

Eina von sjálfstæðisflokksins er Snorri Ásmundsson. Þá kýs ég ykkur í fyrsta sinn á ævinni.

En ef fram heldur sem horfir er ég með slagorðið fyrir Stjána og Bjarna. (Bjána og Stjarna?)

Samherjar sem gerðu ekki N1 neitt.


En afhverju?

Til hvers að bjarga gjaldþrota fjölmiðli?

Er morgunblaðið vilji þjóðarinnar?

Hver er þessi ástrali og hvernig dettur honum í hug að bjóða í þetta dót?

Var Óskar Magnússon forstjóri Hagkaupa?

Leyfum dauðum risum að sofna svefni hinna réttlátu(?), tökum skrímslið úr öndunarvélinni og sjáum hvort ekki vaxi bara nýir fjölmiðlar í jarðveginum eftir að við stingum upp og berum vel af næringu í hann.

 


mbl.is Þrjú tilboð bárust í Árvakur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýir tímar sjallana

Já hann er svo sannarlega tákn hins nýja og auðmjúka sjálfstæðisflokks hann Kristján, leigubæjarstjóri í vinnu hjá Samherja í mörg ár. Hann ætti kannski að sækja sinn stuðning til Ísafjarðar þarsem hann var eitt sinn bæjarstjóri og skipasali, bæði í einu.....
mbl.is Kristján Þór sækist eftir 1. sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já þið segið það

 

Þetta er alveg óborganlegt!!

Misgáfað lið með lítil sem engin áhrif og í raun bara æsingamenn, misstuð þið af einhverju?  Voruð þið sofandi í öndunarvél í 15 ár? Hafið þið ekki lesið eða skoðað annað en hina uggvænlegu staðreynd að markaðurinn leiðréttir alltaf!! Einsog við höfum orðið áþreifanlega vör við...


mbl.is Fagna andláti nýfrjálshyggjunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta grín?

 

Höfum við efni á þessu? Mér er nokk sama hvar þið standið pólitískt, þið hljótið að sjá að það er ekki til peningur í þetta?


mbl.is Tónlistarhúsið fær grænt ljós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

´Velkominn aftur Þráinn

 

Ég hvet hérmeð alla sem verða fyrir þessum skrítnu aukaverkunum að kjósa eða jafnvel starfa innan Framsóknarflokksins að hafa beint samband við mig, ég tel mig luma á lækningu við þessu ótrúlega lúmsa og hvimleiða einkenni.

Ég hef sent þér hugheilar óskir um skjótann bata allt síðann ég las þær hörmungarfréttir að þú hyggðist taka þátt í prófkjöri Framsóknar, þú virðist hafa dottið niður á lausn vandans uppá eigin spýtur, því miður eru ekki allir svona heppnir.


mbl.is Segir sig úr Framsóknarflokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvö lið?

 

Ég hef verið að spyrja mig að því hvort við séum í frímínútum að skipta í lið síðustu vikur,  endalaust virðist vera um hægri skoðun vs. vinstri skoðun og lítið um tilraunir til að finna nýja leið til að skoða hlutina, gefast upp á gömlum hugmyndum og byrja uppá nýtt.

Hvalveiðimálið er að verða eitt sterkasta dæmið um þetta, týpískt spin sem útilokar alla rökhugsun og skoðanir fólks hreinlega stöðva það í að skoða staðreyndir.

Við virðumst missa rannsóknarhæfni og rökhugsun, við draumkenndu vinstri svartsýnis lúðarnir með hatri á illa spilltum öflum þessa lands og þið draumkenndu hægri bjartsýnis lúðarnir með ótta við hvað koma skal ef ykkar ástkæru Sjálfstæðismenn ekki verða áfram við völd og ég lái ykkur ekkert við þekkjum ekkert annað í raun og veru, ekki hefði ég hætt á brjósti ef það hefði verið eitthvað val í mínum höndum.

Í öfgakenndri og heimskulegri umræðu um að hvort sé betra berjast menn í tveim fylkingum,  í einum búðunum bíða menn og vona og virðast trúa að allt verði aftur sem fyrr að við séum að berjast fyrir því íslandi sem við höfum þekkt í 18 ár, í hinum er hvatt til algjörrar hreinsunar og jafnvel á köflum daðrað við einelti og persónugervingu vandans í Davíð Oddsyni!!

Er þetta ekki að verða gott?

Manneskjan er gráðug og skilin eftir nógu langi með völd og peninga spillumst við öll.....

Plögg ALLRA flokka landsins eru fín og ég persónulega gæti kosið þau öll......

Skoðum við hvert mál hvort það sé jafnvel möguleiki að bæði öflin hafi rang fyrir sér, að það geti hugsast að það sé önnur leið betri  og greiðfærari en rykfallnir stjórnmálamenn slá upp sem sinni leið.

Með þessu áframhaldi gerum við fátt annað en að sanna orð Jónasar Kristjánssonar fyrrv. ritstjóra að þjóðin sé vanhæf til að velja sér fólk til valda, og það bjóst ég nú ekki við að ég myndi benda á Jónas sjálfann sem vonarglætu, hann hefur nefnilega dæmt mig ýmist alltof vel sem eða allt of illa sem matreiðslumann.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband