14.6.2009 | 20:40
Gerum eitthvað í þessu
Ég birti þessa færslu í síðasta skipti þarsem hún smellpassar við viðfangsefnið, og líka aðeins af því að ég hef verið svo svekktur yfir hvað hún fær lítil viðbrögð.
Það er ófremdarástand í fangelsismálum landsins, einsog fram kemur í greininni eru menn ekki teknir til afplánunar í lengstu lög, margir sleppa altof vel vegna þessa en aðrir verða fyrir alverlegri lífsskerðingu vegna biðarinnar efitr plássi einsog bent er á í greininni.
Við höfum þyngt dóma og hert refsiramma án þess að auka pláss í fangelsum, á þetta eykst svo góður árangur lögreglunnar í "stríðinu" gegn eiturlyfjum, þetta hefur og er að hafa slæmar afleiðingar, hópurinn stækkar hratt og fangelsin stækka ekki, auk þess að enn er starfrækt fangelsi á Skólavörðustíg sem helst er til þess fallið að verða safn eða einhversskona túristagildra frekar en mannsæmandi fangelsi.
Já tala nú ekki um þegar verið er að handtaka menn í fangelsunum sjálfum einsog gerðist í þessari viku.
Já þetta er algjört grín, en staðreyndin er nú sú að það er bara ekkert pláss í fangelsum og lööööng bið eftir afplánun, því miður veldur þetta því að menn ganga lausir og afleiðingar eru afar vægar við afbrotum sem þessum. Gæsluvarðhaldsklefar eru fullir allstaðar og nú er það þannig að einangrunarklefa Litla Hrauns eru allir uppteknir svo þar er engin leið að setja þá erfiðustu í einangrun.
Það þarf að þjóðnýta aðalstöðvar Íslandsbanka/Glitnis við kirkjusand ásamt gamala strætósvæðinu og gera það að fangelsi, húsið er virkilega vel til þess fallið og lýtur meira að segja út einsog fangelsi, strætósvæðið gæti svo nýst sem viðhaldsplan fyrir ríki og bæ þarsem hægt er að gera við og janfvel byggja einhverja skemmtilega hluti sem nýtast okkur í kreppunni sem framundan er, jafnvel tilraunamatvælaframleiðslu með áherslu á nýbreitni og fullvinnslu. Þeir sem gerst hafa sekir um ræktun geta svo sett upp gróðurhús og svo er þarna kjörið tækifæri fyrir markað svo fangelsið getur að vissu leyti rekið sig sjálft.
Sérálmu er hægt að gera fyrir fjárglæframennina okkar þarsem þeir verða nýttir til að hjálpa til við að gera upp fortíðina og segja okkur satt um hvað gerðist í bönkunum, þeir sem sýna samvinnu fá afslátt á refsingum og hóflega launað starf við að endurreisa bankakerfið, hér þarf að búa til nýjar leikreglur og refsa þeim sem virkilega valda fjöldanum skaða.
Þar gæti líka farið fram síbrotavistun og frelsissvipting fyrir fíkla til endurhæfingar, þarsem ég trúi lítið á að dæma veikt fólk í fangelsi og ég persónulega tel eiturlyfjaneitendur undir veikt fólk sem þarf hjálp.
"Stríðið" gegn eiturlyfjum sem Nancy Reagan og maður hennar stóðu fyrir er ekki eiginlegt stríð vegna þess að stríð í skilningi þess orðs enda einhverntímann, þetta mun aldrei taka enda.
Þarna væri hægt að kalla saman þá aðila sem vinna að endurhæfingu fíkla, SÁÁ, Samhjálp, Samstöðu, Krýsuvíkursamtökin, Fangelsismálastofnun, Landspítalann, Hjálpræðisherinn, Ekron auk allra sem ég er að gleyma. Halda einn fund og bjóða ÖLLUM að starfa innan þessarar stofnunnar, án samkeppni því að ekki henta allar meðferði öllum, svo að fangarnir/sjúklingarnir fái virkilega hjálp til að komast útúr þessu lífi ef þeir kjósa svo. Svo er það að hafa öflug og góð samskipti við þá sem eru í hinum ýmsu 12 spora samtökum um mikið starf innan vegja þessa "Endurhæfingarfangelsis" sem án spaugs er að miklu leyti byggt á Kardemommubænum.
Ég er draumóramaður en ég er ekki sá eini og þetta er vel geranlegt.
Stundum er mesti ósigurinn falinn í uppgjöfinni og eftir það að velja sér bardagana sem taka skal og forðast hina sem eru algjörlega fyrirsjáanlega tapaðir. Hver sýnist ykkur vera árangurin af hertum viðurlögum við eiturlyfjum? Svarið því heiðarlega, ég hef svarað því fyrir mitt leyti að sá árangur er lítill sem enginn, vissulega eru millisalarnir og smásalarnir læstir inni reglulega en það er svosem nóg til af þeim svo það sér ekki högg á vatni, stórlaxarnir nást afar sjaldan og t.d. þekki ég til þess að lögreglumenn eru enn þá steinhissa á sumum af þeim stóru málum sem þeir hafa komið uppum síðustu ár. En raunverulegir athafnamenn, verktakar og bissnissmenn eru orðnir stórir þáttakendur beint og óbeint í fíkniefnasmygli.
Það skírist af því að verð hér er mjög hátt og arðsemin er gríðarleg, arðsemi er jú málið í viðskiptum, þegar þú svo þarft aldrei að taka neina áhættu sjálfur þá verður þetta freistandi fjárfestingmöguleiki.
Gerum fangelsi að freistandi fjárfestingu fyrir ríkið og notum svo tímann í að endurhugsa þetta stríð.
![]() |
Aðbúnaður fanga ekki nógu góður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.6.2009 | 14:19
Það læra börnin
sem fyrir þeim er haft.
Eru Manure virkilega að verða jafn heimskir og Real Madrid?
En engu að síður verðr þessu hafnað........vitið til, Rafa segir upp starfi sínu ef þeir selja Rauðnef næstbesta leikmanninn hanns.
Þetta er að verða persónulegt.
En svo er þetta frétt úr Sunday Express, ekki beint heimild.
![]() |
United sagt íhuga tilboð í Torres |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.6.2009 | 23:51
Næsland.is
Svona gerum við í fjölskyldunum okkar, er einhver furða að við séum búin að koma okkur útaf korti í alþjóðlegum viðskiptum?
Þarna er að sjá kjarnann í Íslnesku viðskiptalífi, fólk sem svíkur eigið blóð og þjóð fyrir eigin gróða og hagsmuni, mikið er þetta sorglegt og mikið hlítur svona fjölskyldu að líða illa.
En hvað endurspeglar þetta ykkur um okkur sem þjóð, ég get alveg staðið á því að þar sem ég hef ekki komist í aðstöðu til ða svíkja út svona mikið fé sé ég eitthvað "meira" heiðarlegur en þetta fólk.
En hvað hefðum við gert hver og eitt okkar?
Þekkja ekki allir til náinna vina og ættingja sem hafa deilt um arf og kvóta svo ekki grær aftur, geta allir bloggarar og manneskjur á þessu landi svarið sig alheilbrigð og með það sterk bein að slíkar freistingar hafi engin áhrif?
Erum við manneskjur sem bara þurfum Sigurð G eða annann slíkann lögfræðing til að sýna okkur götin í lögunum svo við getum makað krókinn, því miður sýnist mér það.......
Lagaramminn er götóttur og góðu lögfræðingarnir og dýrustu leika sér að honum daglangt, þeir gera það sem þarf, á meðan kerfiskallar sem Valtýr og aðrir dómarar og saksóknarar kvarta undann fátæklegum aðbúnaði og litlum peningum.
![]() |
Skip og veiðiheimildir í nýtt félag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.6.2009 | 19:10
SS fjármögnun???
Þetta er afar slæm tímasetning fyrir ofurlögfræðinginn Sigurð G, hann eyðir tíma sínum í að verja kerfið og kallana innan þess vegna eigin hagsmuna í þeirra þágu, og svo poppar upp svona óþægileg "mistök".
Hann ræðst að Evu Joly fyrir að hún sé ósanngjörn við Valtýr Sigurðsson og telur hana vanhæfa til starfa, samt er hann virkur leikmaður úr hruninu og var greinilega virkilega upptekinn af að aðstoða þá sem minnst máttu sín í bankahruninu, það þýðir að menn sem eiga eiginn lífeyrissjóð geta lánað sér peninga af skattfrjálsum peningum með lágum vöxtum í mörg ár, það mörg ár að manni jafnvel grunar að aldrei eigi að borga það, var það ekki tilgangurinn með kúlulánunum?
Allir eiga rétt á verjanda og allir eiga að vera jafnir gagnvart lögunum, en ofurlögfræðingar einsog Sigurður G eru bara þarna til að hlunnfara kerfið og stefna hagsmunum almennings í stórhættu, Sigurður G er snjall en það er óþarfi að gera lögin þannig að hann geti gert bara það sem honum dettur í hug.
Veð í hálfu húsi er svo auðvelt ef það þarf að innkalla það til fyrirtækis sem Sigurjón á("lifeyrissjóðurinn"), þá verður húseignin bara heimilisfang ehf og Sigurjón borgar frúnni leigu, getur ekkert klikkað, og ef það er eitthvað vesen þá kemur bara Siggi G og reddaressu.
Þess má líka geta að Sigurður G var stjórnarmaður í Íslandsbanka, hvernig væri að svipta þá sem settu bankana í þrot fjárhagslegu sjálfstæði einsog Bresk stjórnvöld gerðu við Ísland? Timabundið á meðan rannsókn stendur, því miður fara glæpamenn oft aftur á vettvang glæpsins og reyna að skemma fyrir rannsókninni, það kann Sigurður G öðrum fremur.
Skrítið að fá svona mikla vinnu ef maður er alltaf að gera einhver "mistök".
![]() |
Sigurjón lánaði sjálfum sér fé |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.6.2009 | 07:48
Opið bréf til Páls Winkel og Dómsmálaráðherra
Já tala nú ekki um þegar verið er að handtaka menn í fangelsunum sjálfum einsog gerðist í þessari viku.
Já þetta er algjört grín, en staðreyndin er nú sú að það er bara ekkert pláss í fangelsum og lööööng bið eftir afplánun, því miður veldur þetta því að menn ganga lausir og afleiðingar eru afar vægar við afbrotum sem þessum. Gæsluvarðhaldsklefar eru fullir allstaðar og nú er það þannig að einangrunarklefa Litla Hrauns eru allir uppteknir svo þar er engin leið að setja þá erfiðustu í einangrun.
Það þarf að þjóðnýta aðalstöðvar Íslandsbanka/Glitnis við kirkjusand ásamt gamala strætósvæðinu og gera það að fangelsi, húsið er virkilega vel til þess fallið og lýtur meira að segja út einsog fangelsi, strætósvæðið gæti svo nýst sem viðhaldsplan fyrir ríki og bæ þarsem hægt er að gera við og janfvel byggja einhverja skemmtilega hluti sem nýtast okkur í kreppunni sem framundan er, jafnvel tilraunamatvælaframleiðslu með áherslu á nýbreitni og fullvinnslu. Þeir se gerst hafa sekir um ræktun geta svo sett upp gróðurhús og svo er þarna kjörið tækifæri fyrir markað svo fangelsið getur að vissu leyti rekið sig sjálft.
Sérálmu er hægt að gera fyrir fjárglæframennina okkar þarsem þeir verða nýttir til að hjálpa til við að gera upp fortíðina og segja okkur satt um hvað gerðist í bönkunum, þeir sem sýna samvinnu fá afslátt á refsingum og hóflega launað starf við að endurreisa bankakerfið, hér þarf að búa til nýjar leikreglur og refsa þeim sem virkilega valda fjöldanum skaða.
Þar gæti líka farið fram síbrotavistun og frelsissvipting fyrir fíkla til endurhæfingar, þarsem ég trúi lítið á að dæma veikt fólk í fangelsi og ég persónulega tel eiturlyfjaneitendur undir veikt fólk sem þarf hjálp.
"Stríðið" gegn eiturlyfjum sem Nancy Reagan og maður hennar stóðu fyrir er ekki eiginlegt stríð vegna þess að stríð í skilningi þess orðs enda einhverntímann, þetta mun aldrei taka enda.
Þarna væri hægt að kalla saman þá aðila sem vinna að endurhæfingu fíkla, SÁÁ, Samhjálp, Samstöðu, Krýsuvíkursamtökin, Fangelsismálastofnun, Landspítalann, Hjálpræðisherinn, Ekron auk allra sem ég er að gleyma. Halda einn fund og bjóða ÖLLUM að starfa innan þessarar stofnunnar, án samkeppni því að ekki henta allar meðferði öllum, svo að fangarnir/sjúklingarnir fái virkilega hjálp til að komast útúr þessu lífi ef þeir kjósa svo. Svo er það að hafa öflug og góð samskipti við þá sem eru í hinum ýmsu 12 spora samtökum um mikið starf innan vegja þessa "Endurhæfingarfangelsis" sem án spaugs er að miklu leyti byggt á Kardemommubænum.
Ég er draumóramaður en ég er ekki sá eini og þetta er vel geranlegt.
Stundum er mesti ósigurinn falinn í uppgjöfinni og eftir það að velja sér bardagana sem taka skal og forðast hina sem eru algjörlega fyrirsjáanlega tapaðir.
![]() |
Aldrei fleiri í gæsluvarðhaldi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.6.2009 | 07:42
Já mjög gott nöldur, hressandi BA nöldur
Já piaprúðinn entist lengur enn þolinmæði almennings, eftir að piparúði hafði hér runnið út árum samann en ávallt hafði langlundargeð íslensks almennings verið án síðasta söludags, stríðsyfirlýsing tveggja stjórmálamann náði ekki einu sinni að vekj aokkur, en peningar þá varð allt vitlaust. Þá kláraðist piparúðinn á örfáum dögum, ég var nú reyndar þarna og sá honum nú sóað fullmikið , tildæmis á blaðamenn og ljósmyndara auk þess að ítrekað var honum sprauta beint í andlir fólks, sem mér skilst að sé nú bannað.
Við höfum einmitt nokkrir verið að nöldra saman á síðu hjá einum bloggvina minna, mikið er það hressandi og göfugt, er alveg búið að bjarga mér þar sem ég ligg rúmfastur og röflskaðinn í sambúðinn hefur fyrir vikið lágmarkast, sama taktík veit ég að er að virka vel á heimili föður míns og stjúpu og svei mér þá líka mömmu og fóstra.
Ef bara hann afi heitinn hefði kunnað að blogga, þá hefði nú heimurinn verið betri staður, því ötullega og yfirleitt vissi afi Kiddi betur og var ekki að spara það. Enda var hann lögga í rúm 40 ár. Læstur inni 30 mars 1949 vegna nödursins og skoðanna sinna, svo hann færi nú ekki ða hjálpa kommunum.
En hér á eftir fer einmitt smá niðurlag úr þessu röfli okkar kunningjanna sem helst snérist um umferðina, hringtorg, safnkort, fjölpóst, afgreiðslufólk, táknmálsfréttir(sem ég treysti ekki) og svona það helsta sem brennur á hverjum og einum okkar.
Já og fyrst við erum svo mikið uppá hjálp Norðamanna komnir datt mér í hug að setja hér inn tvær norskar hugleiðingar, og vegna þess að ég er andvaka á sjúkrahúsi.
Hér er sú fyrri og er hún um pirrandi huti
Svo er hér videoupptaka með teksta sem sannar hvernig þessir heyrnadaufu eru svo ekki er um að villast, varúð þetta eru sjokkerandi upplýsingar. Líf ykkar mun breytast og það verður erfitt að treyst aftur.
http://www.youtube.com/watch?v=O5D33voW5QU
![]() |
Piparúði á þrotum þegar átökin náðu hámarki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
9.6.2009 | 18:31
Hann hefði nú betur samiðvið bretana fyrir okkur
Gunnar hefði tekið þessa breta með trompi, valsað inn með Geira Goldfinger, Magnús Ver og fullt astrippurum og þeir hefðu skrifað unidr hvað sem er, meira að segja reikninga frá frjálsri miðlun. Af hverju er þetta ekki í tillögum Bjarna Ben og Þorgerðar Katrínar nágranna og flokkssystkyna Gunnars úr nágranna sveitafélögunum?
Hey þar er lausnin Frjáls Miðlun sendir bara reikninga bresku krúnuna, 650 milljarðar, það vefst nú ekkert fyrri þeim er það?
Svo hefði hann getað komið við og gert Leoncie að heiðursborgara Kópavogs í leiðinni, með heimaföndruðu viðurkenningarskjali frá dótturnni.
![]() |
Gunnar segir lög ekki brotin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.6.2009 | 17:44
Þessi hefði átt að semja um IceSleif
Gunnar hefði tekið þessa breta með trompi, valsað inn með Geira Goldfinger, Magnús Ver og fullt astrippurum og þeir hefðu skrifað unidr hvað sem er, meira að segja reikninga frá frjálsri miðlun. Af hverju er þetta ekki í tillögum Bjarna Ben og Þorgerðar Katrínar nágranna og flokkssystkyna Gunnars úr nágranna sveitafélögunum?
Hey þar er lausnin Frjáls Miðlun sendir bara reikninga bresku krúnuna, 650 milljarðar, það vefst nú ekkert fyrri þeim er það?
![]() |
Hugsanleg brot á lögum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.6.2009 | 13:24
Hahahahahah
hahahahaahahahahahaahahahahahahahahaahahahahaahahahahahahahahahaahahahaha
nei nú þarf ég að gráta aðeins til að gæta jafnvægis.
![]() |
Sjálfstæðisflokkurinn leggur fram efnahagstillögur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.6.2009 | 12:59
Handtekinn í fangaklefa....
![]() |
Stórfellt smyglmál rannsakað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)