Eru mótmælin loks að snúast uppí andhverfu sína?

Semsagt þegar hægri menn hvetja til mótmæla þá auglýsir mbl.is það með dags fyrirvara og flytur nákvæmar fréttir af þeim en þegar þau eru ætluð ung-VG þá er allt með kyrrum kjörum o glítið gert úr þeim skipulega? Skrítið, en gangi öllum vel sem vilja mótmæla, það er svo hressandi.

Ég fyrir mitt leyti sé ekki alveg hver krafan er.....

 


mbl.is Fimm handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viltu þá ekki lækka bensínið kallinn minn, mér er misboðið þar.

Hvorri vinnunni ertu í í dag? Ótímabær hækkun ykkar er að stela peningum úr vasa landsmanna, endurgreiðið þið það?


mbl.is Gróflega misboðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott viðtal, og því miður held ég alveg vandræðaleg mótmæli.

 Þetta er alltaf meira og meira að verða mér ljóst: Það skiptir afar litlu máli hvað við gerum, hvort við veljum að borga reikningana sem ég reyndar tel okkur bera ábyrgð á, skil vel að kjósendur sjálfstæðisflokksins vilji ekki horfast í augu við það þarsem það var nú þeirra ástkæri flokkur sem stóð sig best í braski og svínaríi. Eða að við veljum að segja þessu liði(bretar, holland og þjóðverjar) að fokka sér(afs) og borgum ekkert. Ég sem fyrrverandi Samfykingarkjósandi í bata, hef ákveðið að horfast í augu við að ábyrgðin er að hluta til mín, þannig upplifi ég það að vera í samfélagi veit ekki með ykkur.

Afleiðingin af hvoru tveggja þó leiðirnar séu ólíkar er nánast sú sama, það veit ég sem haf áralanga reynslu af þeirri heimsku að fara í banka og taka lán til að borga skuldir(íslenska leiðin?), því hætti ég loksins fyrirr 3 árum og hef fyrir vikið eignast yndislegt líf, það var ekkert rosa auðvelt en það tókst. En ef við segjum alþjóðasamfélaginu að fara í rassgat þá lokast hér allar lánalínur og fjármálaflæði um ókomna tíð, það sem meira gerist er að 30% af okkar útflutningi sem fer til bretlands mun stöðvast svo við þurfum að finna nýjar leiðir, þarmeð gætum við sagt farvel við allt velferðarkerfið okkar og menntun um árbil. Þá leið reyndi ég líka og kynntist Intrum fullvel fyrir vikið.

Hin leiðin verður svipuð, nema við verðum einsog mér sýnist kallarnr vera að gera ráð fyrir "heppin" og náum hámarks virði útúr sölu eigna Landsbankans og jafnvel ef Breski seðlabankinn samþykkir að borga okkur vexti afturvirkt af þeirri inneig(líklegt),  en líklega verður þetta svona "meðal". En það er alveg ljóst að þessar afborganir munu hafa veruleg áhrif á velferðarkerfið ef ekki nú þá þegar fram í sækir.

En að kenna Svavari Gests og Steingrími um þetta allt saman er alveg fáránlegt og ósanngjarnt.

 

Það er nú svo fyndið krakkar að Geir HAarde skrifaði undir samning þess efnis þann 18 nóvember að Ísland hyggðist ekki sækja þetta mál fyrir dómstólum.

Hvað voruð þið þá snillingarnir sem allt vitið....?

Það vissi hann að það er ekkert hægt að gera gegn hryðuverkalögunum fullkomnu, nóg að hafa vafa og eitt arabanafn eða rússa, þau voru fyrir hendi í íslenskum bönkum svo ....simmsalabimm.

Það vissi Geir af því að hann var nú ásamt flokksbræðrum sínum og systrum með í að semja þennann ósóma auk þess að selja bankana líka í hendur vina sinna sem bröskuðu með landið okkar niður í svaðið En að samþykkja einnig einsog eitt stykki stríð í mínu nafni.Sem einmitt part af þessari öryggisráðsumsókn HÁ sem Svavar grætur í þessu viðtali að hrunið hafi eyðilaggt, guði sé lof segi ég nú bara. ÞAð stríð verður seint máð af nafni okkar íslendinga.

Stríð sem byggt var á þessum sömu hræðilegu ólögum og nú hafa verið notuð á okkur, ólög sem öryggisráðið beitir nú jafnt yfr ala sem ekki eru þeim sammála, heiti þeir norður kórea, ísland eða palestína.

Svo vildi ég bara benda ykkur á að kannski gengur Svavari Gestsyni ekkert illt til með að vera að reyna að semja um þetta, bara möguleiki sko.


mbl.is Hagkerfið kemst í skjól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur leyfir þó fólkinu að kjósa, Ekki SAMfylkingin

 

Já en er þetta ekki soldið einsog með stasi leigumorðingjann sem var að komast upp um núna 40 árum seinna, þegar hann drap ungann mann varð allt vitlaust í Þýskalandi  og í kjölfarið mynduðust hópar vinstri sinnaðra hryðjuverkamanna.

Nú fyrir stuttu komst svo upp að hann var Stasi flugumaður dulbúinn sem fasisti.

Við hlaupum á okkur og það er ekki enn búið að samþykkja þennann samning í Alþingi, málsatvik í honum eru ekki komin fram nema fyrir alþingismenn og þeir mega ekkert segja, en þó er komið fram að við eigum þarna 50 milljarða á reikning til að greiða höfuðstól, að eignirnar verða "affrystar" svo við getum komið þeim í verð.

Svo er 5,5% vextir akkúrat meðalvextir milli vaxta sem bjóðast með veð í fasteign (ca 3%) og vaxta sem bjóðast fyrir lán án fasteignaveðs(7%) í Bretlandi,  en einsog menn vita þá eru raunvextir í bönkum ekki þeir sömu og stýrivextir seðlabanka. heheh er að reyna að vera fyndinn sko. Hagfræðikaldhæðni.

Já vissulega skelfir mig að framreiknað í botn er þetta ca 916 milljarðar(eru það ekki tvær þjóðarframleiðslur?) og tölum þá ekki um hvað gerist þegar krónan hrynur endanlega sem ég reyndar tel óumflýjanlegt, við trúum ekki á hana sjálf hvernig getum við ætlast til að aðrir trúi á hana?

En að æsa fólk upp endalaust og jafnvel hlusta að enn eina útgáfuna af hvernig þetta(einsog allt) er partur af samsæri Samspillingarinnar til að koma okkur nauðugum í ESB er langsótt og ber vott um vænisýki. Fyrir utan að gera ráð fyrir að þeir séu snillingar, sem þeir augljóslega eru ekki.

Ég held svona eftir því sem ég kemst næst að við eigum ekki mikið val þarna, og að okkar færustu lögfæðingar í evrópurétti hafi ráðið okkur frá því að fara með þetta fyrir dóm.

En svo er það hin leiðin, að segja þessu öllu að fokka sér, og þá á ég við ESB, IMF og World Bank, afþakka öll lán og tilkynna kröfuhöfum að við borgum ekki og byrja svo að framleiða hér nóg af mat og nauðsynjum fyrir fólkið okkar svi við getum að mestu lifað án innflutnings. Og taka upp nýjann gjaldmiðil sem tengur er við raunveruleg verðmæti, hráefnistengdur viðhelstu verðmæti hvers lands fyrir sig. Við getum gert það fyrst þjóða, þar er tækifærið, það eru nefnilega þjóðir þarna úti sem hafa fengið nóg af ofríki bandaríkjamanna og breta og við myndum kannski eignast nýja vini. En svo það sé á hreinu þá fylgir því frysting í Evrópu og ekki einu sinni Norðmenn geta hjálpað okkur þá.

Það er nefnilega þannig að eina samsærið í þessu öllu er að IMF og World Bank með hjálp ESB gætu verið að fá hér aðgang að náttúruauðlindum og þá helst vatni sem fer að verða það allra verðmætasta hér á jörð þegar fram í sækir með meiri ræktun og ofneyslu.

Þessu er ég tilbúinn að berjast gegn ef einhver sér þetta sem ógnina......en að níða niður einhverja samfylkingarplebba og gamla allaballa sem fastir eru í gamla kerfinu er ekki eitthvað sem ég nenni að eyða tíma mínum í, þeir kunna ekkert annað og halda eflaust að þeir séu að gera gagn.

Alveg einsog Sjálfstæðismenn forðum daga....


mbl.is Hugsanleg Icesave mótmæli á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þú ert vitleysingur Bjarni

Hvað hefðir þú bara látið þá heyra það? Vaðið inn með stæl og sagt svona verður þetta strákar mínir og ekkert öðruvísi.....

Þvílíkt bull í þessum dreng, einsgott að hann er með stórar hendur.

 

 

 


mbl.is Öll óvissa á kostnað Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta eru góðar fréttir

Alveg sama hvað hver segir þá tel é þetta frekar jákvæðar fréttir og bera vitni um að eitthvað hefur nú samninganefndin gert á þessum mánuðum.

Svartsýnustu hægrimenn hljóta nú að fagna þessu er það ekki?

 


mbl.is 50 milljarðar á reikningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg geðveikt!!

Til hamingju með daginn og takk fyrir að tala máli okkar sem klikkuð erum....

Vissi ekki af þessu því miður.

Eigið geðveika helgi.


mbl.is Geðveikt far í bæinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lélegt

Allt er þetta lélegt...

Lélegur samningur...

Léleg frétt....

Og léleg fyrirsögn.....

það efast ég ekki um.


mbl.is Niðurstaða eða ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brú eða undirgöng?

Ég skrifa þessa grein sem uppkominn Kjalnesingur, ég ólst upp sem "Gústi á Móum", og óð yfir þennan veg sem um er rætt linnulaust frá 6 ára aldri og lifi til að segja frá því. Við þenna vegkafla skaut ég líka á bíla úr túttubyssu þartil einn þeirra stoppaði. Það reyndist vera enginn annar en Vernharður Linnet stjórnandi barnaútvarps RÚV, hann var hress og tók viðtal við okkur pörupiltana þótt við hefðum nú átt von á einhverju verra þegar við sáum bremsuljósin kvikna, viðtalið var svo spila á afmælisdaginn minn og "allir" hlustuðu, mér fannst ég frægur.

En nóg um mig....

Er ekki ráð að verktaki á svæðinu leggi í þessa framkvæmd í umboði ríkis og sveitar? Hægt er að gera samning um verkið sem greitt er svo út á ákveðið löngum tíma, skapar á meðan atvinnu og tryggir öryggi barna.

Svo er líka hægt að fela verktaka verkið en láta atvinnulausa vinna það í atvinnubótavinnu.

Það er möguleiki núna til að velta upp öðrum leiðum til að leysa þjóðþrifamál sem þessi, ekki alltaf að fara beinustu leið í stóru verktakafyrirtækin sem mörg hver eru jú angandi af pólitískum tengingum samanber Klæðningu og ÍAV......legg til að sveitarstjórnin fari í hugmyndavinnu með þetta mál á opnum sveitarstjórnarfundi og falist svo eftir aðkomu ríkissins.

Hagur allra og sérstaklega barnanna.

 


mbl.is Þolinmæði Kjalnesinga á þrotum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvær þjóðarframleiðslur (vergar?)

Veit ekkert hvað verg þýðir, en er smá argur, er það það sama?

En mér sýnist við vera að borga tvisvar sinnum þjóðarframleiðslu með þessum vöxtum og höfuðstól, er það rangt skilið?

En svo er það gamla góða íslenska bjartsýnin(hence fools gold/glópagull) að finnast fínt að borga bara seinna, þá er maður að græða.

En og aftur er ég  bara kokkur...


mbl.is Engin Icesave-greiðsla í 7 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband