4.6.2009 | 14:25
Marshall aðstoð?
Það er gríðar taktlaust og í raun bara vitlaust af Róbert Marshall af öllum að fara að ræða þessi mál, hann hefði getað sagt sé sjálfu hvað hann væri að biðja um. Eiginlega veitir hann Sjálfstæðismönnum Marshall aðstoð með þessari vitleysu.
En að því slepptu finnst mér þetta ekkert ómálefnalegt af honum, þetta er málefni er það ekki? Peningasvindl er málefni, en vissulega þarf persónur til að svíkja, vera sviknir og svo er það samsærið allt saman. En að sjálfsögðu taka sjálfstæðismenn peninga persónulega, það er nú allt sem þeir snúast um blessaðir.
Hér er gáta/dæmisaga til að varpa ljósi á þetta mál.
Það voru einu sinni þrír froskar á lækjarbakka, einn tók ákvörðun um að stökkva yfir hvað eru þá margir eftir?
Svarið er að það eru enn allir þrír á lækjarbakkanum, því að ákvörðun er engin framkvæmd, og þó að formaðurinn BB(sem gerði ekki N1 N1) með sínar stóru hendur hafi látið í ljós ákvörðun um að endurgreiða styrkina sina illa fengnu sitjandi á alþingi í krafti sömu illa fengnu peninga með gjörspilltan Guðlaug, þrotabús Þorgerði og illa gefna Illuga sem tókst að vera í miðjum storminum og sjá ekkert rangt, já það er þægilegt að vita ekkert og hrósa sér af ákvörðunum sínum.
Sem eru engar í framkvæmd.
![]() |
Sakaði Róbert Marshall um ósmekklegheit |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.6.2009 | 08:56
Áður en þið tryllist....
Spyrjum okkur sjálf hvort þetta séu virkilega fréttir, eða bara það sem við vissum öll þegar við gengnum til kosninga með orð Steingrím J um að væntanlega væri það versta afstaðið.
Ég vissi alveg betur, alla mína tíð hefur verið basl að reka Ísland og þá segir það sig sjálft að eftir svona áfall verður það hrikalegt basl og höggin verða þung.
En vissulega fara þau ekki að segja okkur það fyrir kosningar, slík bjartsýni er barnaleg, það væri einsog að ætlast til að glæpamenn yrðu allir heiðarlegir eða að trúa litlu barni fyrir ársbirgðunum sínum af nammi. Og varla treystið þið þjóni á veitingastað sem ekki getur mælt með matnum og treystir sér ekki að lofa hvað eitthvað kostar, við viljum þjón sem lofar öllu fögru.
Niðurskurðirnir sem framundan eru verða sársaukafullir og munu valda mikilli reiði, þessir stjórnarflokkar munu ekki jafna sig á þeim óvinsældum sem af því munu leiða í tugi ára og bíða svo að sjálfsögðu afhroð í næstu kosningum.
Stundum er snjallt að standa bara á hliðarlínunni og bera litla ábyrgð, það vissu held ég sjálfstæðismenn þegar þeir stilltu upp Bjarna Ben sem einhversskonar leiðtoga.
En aftur að kjarnanum, þarf þetta að koma okkur á óvart? Við hleyptum klárunum á skeið og margir duttu af baki, nú er allt stóðið fælt og taugaveiklað og hvergi góða haga að sjá.....þá kemur reiðin.
Þetta verður skrítið haust.
![]() |
Forsætisráðherra: Erfiðleikarnir eru meiri en búist var við |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.6.2009 | 11:28
Vinstri Grænland?
![]() |
Spá vinstrisveiflu á Grænlandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.6.2009 | 10:53
Eruð þið ekkert að fatta þetta?
Já þetta er algjört grín, en staðreyndin er nú sú að það er bara ekkert pláss í fangelsum og lööööng bið eftir afplánun, því miður veldur þetta því að menn ganga lausir og afleiðingar eru afar vægar við afbrotum sem þessum. Gæsluvarðhaldsklefar eru fullir allstaðar og nú er það þannig að einangrunarklefa Litla Hrauns eru allir uppteknir svo þar er engin leið að setja þá erfiðustu í einangrun.
Það þarf að þjóðnýta aðalstöðvar Íslandsbanka/Glitnis við kirkjusand ásamt gamala strætósvæðinu og gera það að fangelsi, húsið er virkilega vel til þess fallið og lýtur meira að segja út einsog fangelsi, strætósvæðið gæti svo nýst sem viðhaldsplan fyrir ríki og bæ þarsem hægt er að gera við og janfvel byggja einhverja skemmtilega hluti sem nýtast okkur í kreppunni sem framundan er, jafnvel tilraunamatvælaframleiðslu með áherslu á nýbreitni og fullvinnslu. Þeir se gerst hafa sekir um ræktun geta svo sett upp gróðurhús og svo er þarna kjörið tækifæri fyrir markað svo fangelsið getur að vissu leyti rekið sig sjálft.
Sérálmu er hægt að gera fyrir fjárglæframennina okkar þarsem þeir verða nýttir til að hjálpa til við að gera upp fortíðina og segja okkur satt um hvað gerðist í bönkunum, þeir sem sýna samvinnu fá afslátt á refsingum og hóflega launað starf við að endurreisa bankakerfið, hér þarf að búa til nýjar leikreglur og refsa þeim sem virkilega valda fjöldanum skaða.
Þar gæti líka farið fram síbrotavistun og frelsissvipting fyrir fíkla til endurhæfingar, þarsem ég trúi lítið á að dæma veikt fólk í fangelsi og ég persónulega tel eiturlyfjaneitendur undir veikt fólk sem þarf hjálp.
Þarna væri hægt að kalla saman þá aðila sem vinna að endurhæfingu fíkla, SÁÁ, Samhjálp, Samstöðu, Krýsuvíkursamtökin, Fangelsismálastofnun, Landspítalann, Hjálpræðisherinn, Ekron auk allra sem ég er að gleyma. Halda einn fund og bjóða ÖLLUM að starfa innan þessarar stofnunnar, án samkeppni því að ekki henta allar meðferði öllum, svo að fangarnir/sjúklingarnir fái virkilega hjálp til að komast útúr þessu lífi ef þeir kjósa svo. Svo er það að hafa öflug og góð samskipti við þá sem eru í hinum ýmsu 12 spora samtökum um mikið starf innan vegja þessa "Endurhæfingarfangelsis" sem án spaugs er að miklu leyti byggt á Kardemommubænum.
Ég er draumóramaður en ég er ekki sá eini og þetta er vel geranlegt.
Stundum er mesti sigurinn falinn í uppgjöfinni og eftir það að velja sér bardagana sem taka skal og forðast hina sem eru algjörlega fyrirsjáanlega tapaðir.
![]() |
Innbrotsþjófur í tveggja vikna gæsluvarðhald |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.6.2009 | 14:21
Velkominn og takk fyrir að sýna okkur andlit stjórnmálanna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.6.2009 | 13:43
Sorgleg barátta sem er löngu töpuð.....
Já þetta er algjört grín, en staðreyndin er nú sú að það er bara ekkert pláss í fangelsum og lööööng bið eftir afplánun, því miður veldur þetta því að menn ganga lausir og afleiðingar eru afar vægar við afbrotum sem þessum. Gæsluvarðhaldsklefar eru fullir allstaðar og nú er það þannig að einangrunarklefa Litla Hrauns eru allir uppteknir svo þar er engin leið að setja þá erfiðustu í einangrun.
Það þarf að þjóðnýta aðalstöðvar Íslandsbanka/Glitnis við kirkjusand ásamt gamala strætósvæðinu og gera það að fangelsi, húsið er virkilega vel til þess fallið og lýtur meira að segja út einsog fangelsi, strætósvæðið gæti svo nýst sem viðhaldsplan fyrir ríki og bæ þarsem hægt er að gera við og janfvel byggja einhverja skemmtilega hluti sem nýtast okkur í kreppunni sem framundan er, jafnvel tilraunamatvælaframleiðslu með áherslu á nýbreitni og fullvinnslu. Þeir se gerst hafa sekir um ræktun geta svo sett upp gróðurhús og svo er þarna kjörið tækifæri fyrir markað svo fangelsið getur að vissu leyti rekið sig sjálft.
Sérálmu er hægt að gera fyrir fjárglæframennina okkar þarsem þeir verða nýttir til að hjálpa til við að gera upp fortíðina og segja okkur satt um hvað gerðist í bönkunum, þeir sem sýna samvinnu fá afslátt á refsingum og hóflega launað starf við að endurreisa bankakerfið, hér þarf að búa til nýjar leikreglur og refsa þeim sem virkilega valda fjöldanum skaða.
Þar gæti líka farið fram síbrotavistun og frelsissvipting fyrir fíkla til endurhæfingar, þarsem ég trúi lítið á að dæma veikt fólk í fangelsi og ég persónulega tel eiturlyfjaneitendur undir veikt fólk sem þarf hjálp.
Þarna væri hægt að kalla saman þá aðila sem vinna að endurhæfingu fíkla, SÁÁ, Samhjálp, Samstöðu, Krýsuvíkursamtökin, Fangelsismálastofnun, Landspítalann, Hjálpræðisherinn, Ekron auk allra sem ég er að gleyma. Halda einn fund og bjóða ÖLLUM að starfa innan þessarar stofnunnar, án samkeppni því að ekki henta allar meðferði öllum, svo að fangarnir/sjúklingarnir fái virkilega hjálp til að komast útúr þessu lífi ef þeir kjósa svo. Svo er það að hafa öflug og góð samskipti við þá sem eru í hinum ýmsu 12 spora samtökum um mikið starf innan vegja þessa "Endurhæfingarfangelsis" sem án spaugs er að miklu leyti byggt á Kardemommubænum.
Ég er draumóramaður en ég er ekki sá eini og þetta er vel geranlegt.
Stundum er mesti ósigurinn falinn í uppgjöfinni og eftir það að velja sér bardagana sem taka skal og forðast hina sem eru algjörlega fyrirsjáanlega tapaðir.
![]() |
Braust strax inn aftur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.5.2009 | 15:33
Siðferði auglýsinga og markaðsmála
Er ekkert og getur seint orðið það því að þegar allt kemur til alls ráða peningarnir og peningum er alveg sama, datt í hug þetta myndskeið sem hefur lengi verið í uppáhaldi hjá mér.
http://www.youtube.com/watch?v=gDW_Hj2K0wo
![]() |
Braut lög með auglýsingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.5.2009 | 20:53
Hvaða rugl er þetta?
Aldrei myndi nokkur ábyrgur stjónrmálamaður á íslandi láta svona vitleysu útúr sér, að refsa fólki sem hefur lagt líf sitt og limi í mikla og erfiða vinnuþágu almennings? Og segjum að þessir menn fá einsog smá sporslu hér og þar, hvað með það? Hvað þarf það að fara fyrir rétt eða vera rannsakað eitthvað "sérstaklega", ofsalegar ofsóknir eru þetta, væri nú ráð að gefa mönnum einsog 6 mánuði allaveganna til að laga slóðina og svo má skoða þetta í rólegheitum með litlum tilkostnaði og mikilli vægð.
Þessir kallar sko.....
![]() |
Þingmenn verði sóttir til saka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.5.2009 | 19:35
Dökk and kóver!
Rakst á þetta á almannavörnum ríkissins og fannst það soldið skondið
http://almannavarnir.is/default.asp?cat_id=105
minnir soldið á þetta
http://www.youtube.com/watch?v=-2kdpAGDu8s&feature=fvst
Guð forði samt að ég sé að gera grín rétt áður en hörmungar dynja yfir.
En við búum nú á einni stærstu jarðskjálftasprungu í heimi, þannig að maður ætti ekki að vera svona hissa.
![]() |
Grindvíkingar geri ráðstafanir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.5.2009 | 14:53
Hvað voru margir verðandi feður fullir í bænum?
Við pabbarnir erum nú ekki alveg saklausir heldur þó að vissulega göngum við ekki með börnin sem betur fer.
Það er gott og auðvelt að dæma veikt fólk og vonandi fær þessi stúlka stuðning og þá sérstaklega saklaust barnið sem hún gengur með.
En er ekki dæmalaust hvað við kallarnir höfum það gott á fylleríi?
Karlmenn eru líka foreldrar.
![]() |
Þunguð kona ofurölvi í miðbænum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Sorglegt sem það er að ráðherrar okkar ætli að hunsa þennan yndislega mann þá er það nú frekar kjánalegt að fara að kenna vinstrimennsku Jóhönnu sig eða VG um það einsog þau séu einhver partur af Kínverska kommúnistaflokknum.
Var vinstristjórn á Íslandi þegar Falun Gong liðar voru hér handteknir við mómæli á opinberri heimsókn kínverskara ráðamanna? Nei reyndar ekki, þá voru mannréttindi brotin alvarlega á vakt Björns Bjarnasonar enda það fjölskylduhefðin þar á bæ.(þarf að muna að biðja fyrir honum á eftir innsk. ritara)
það að pólitíkusar heimsins hræðist kína hefur lítið með hægri og vinstri að gera heldur með spillingu stjórnmálamanna og ofurvald peningann í heiminum sem skotið hefur rótum í valdatíð hægri manna.
Kína hefur örlög USA í hendi sér og ekkert nema hernaðarlegt inngrip Bandaríkjamanna í Asíu getur breytt því, svo þar fylgjum við svo fast á eftir sem afleiðing af því að verða algjörlga háð Bandaríkjunum fjárhagslega eftir áratuga sleikjuskap og jafnvel formlegum stuðningi og þáttöku í stríðsátökum um allan heim.
Það skrítna er að Tíbet er frjálsara en við í raun og veru á andlega sviðinu með þennan gríðarsterka leiðtoga sem sýnir í verki hvernig náungarkærleikur og bræðralag mun sigra ALLT að lokum og ekkert sem menn eða peningar geta sagt um það.
Já stjórnmálamenn heimsins eru sem lamaðir af ótta og hafa verið lengi vegna ógnarstærðar og krafts Kínverja, en það gildir einu hvort um er að ræða Kommúnista eða Frjálshyggjupésa. Sorglegt sem það er þá er þetta staða landsins okkar eftir alla spillinguna, allir stökkva til þegar Henry Kissinger mætir en Dalai Lama, eeee nei takk.